Morgunblaðið - 18.02.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022
60 ÁRA Sigurður ólst upp í Reykja-
vík en býr á Akureyri. Hann er raf-
virki að mennt frá Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti og vinnur hjá
Rafeyri. Hann var í Lúðrasveit verka-
lýðsins þegar hann bjó í Reykjavík, en
hann spilar á trompet. Áhugamál
Sigurðar eru útivera og ferðalög.
FJÖLSKYLDA Sigurður er í sam-
búð með Rósu Friðriksdóttur, f. 1979,
fisktækni. Dætur Sigurðar eru Stein-
unn Þuríður, f. 1985, og Helga Hrund,
f. 1991. Barnabörnin eru orðin þrjú.
Foreldrar Sigurðar voru Haraldur
Leó Hálfdánarson, f. 1919, d. 2007,
vélgæslumaður í Slippnum í Reykja-
vík, og Ragnhildur Oddný Guðbjörns-
dóttir, f. 1921, d. 2011, húsmóðir. Þau
voru búsett í Reykjavík.
Sigurður Már Haraldsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Láttu ekki aðra verða til þess að
þú lokir þínar tilfinningar inni. Einhver
kemur þér skemmtilega á óvart í kvöld.
20. apríl - 20. maí +
Naut Eyddu meiri tíma með fólki sem
kemur þér til þess að hlæja og líta á björtu
hliðarnar. Taktu til í geymslunni og losaðu
þig við óþarfa hluti.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú hefur dregið að þér ögrandi
fólk upp á síðkastið. Skrúfaðu frá innsæinu
og reyndu að vanda valið betur.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Segðu frá ef þú átt í vanda. Finndu
þína forgangsröð og taktu fyrsta skrefið í
átt að því að láta drauma þína rætast. Þér
eru allir vegir færir ef þú trúir á þig.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Fyrirhyggja í fjármálum er nauðsyn-
leg þessa dagana. Allir hlutir kosta sitt en
margt það besta í lífinu er ókeypis.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú ert eins og milli steins og
sleggju í ákveðnu máli. Þú kynnist mak-
anum betur í gegnum sameiginlegt áhuga-
mál.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Taktu ekki vinnuna með þér heim því
hollara væri að nota þann tíma sem þú átt
aflögu til að sinna þér og þínum nánustu.
Þú ert fær í flestan sjó.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Dagurinn í dag er upplagður
fyrir útiveru. Notaðu tækifærið og segðu
þeim sem stendur hjarta þér næst hug
þinn. Stundum er betra að telja upp að tíu
áður en maður opnar munninn.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú mátt ekki taka það óstinnt
upp þótt einhver vilji kenna þér réttu hand-
tökin í vinnunni. Sá vægir sem vitið hefur
meira.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Tækifærin bíða þín í hrönnum
ef þú aðeins opnar augun og ert tilbúin/n
til þess að vinna með öðrum. Þú átt eftir
að hitta áhugaverða persónu fljótlega.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Njóttu vináttunnar og þiggðu
heimboð sem þér kunna að berast. Samn-
ingaviðræður ganga vel og þú átt eftir að
hrósa happi fljótlega.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Upp koma tilfinningamál sem þú
verður að leysa. Einhver treystir þér fyrir
leyndarmáli og því trausti máttu ekki
bregðast.
oftast gott en fáir fara ótruflaðir í
gegnum lífið. Það á við um mig og
okkur hjónin en 12. mars 1980 fædd-
ust okkur hjónum andvana tvíburar.
Við þurftum að höndla þessa reynslu
nánast ein og er án vafa að svolítið
sigg kæmi á sálina. Nákvæmlega ári
síðar á sama stað í sama rúmi fæddist
okkur sonur. Í febrúar 1992 á Valent-
ínusardegi fékk ég alvarlegt hjarta-
áfall og mikla skemmd í hjartavöðva.
Ég var fljótur að gleyma þessum at-
burði og og hélt mínu striki. Árin liðu
og í ágúst 1999 fór ég í ferð til Parísar
og lenti í járnbrautarslysi við kom-
una. Í stuttu máli kræktist myndavél-
artaska sem ég var með spennta um
mig í lestinni sem flutti okkur frá
flugvelli og ég dróst a.m.k. 100 metra
með henni með höfuð og herðar undir
brautarpalli en fætur upp í loft. Það
var á þessu augnabliki sem konan
mín sagði: „Hvernig ferðast maður
með lík á milli landa?“ Eftir 11 daga á
spítala við hliðina á Notre Dame-
kirkjunni komst ég heim.
Hjartað átti eftir að minna á sig ár-
ið 2006 en þá fór ég í hjartastopp og
komst lifandi frá því eftir þriggja
vikna spítalavist með bjargráð í
brjósti. Árin liðu en sálin var ekki sátt
við síðustu atburði. Allt gekk þó
ágætlega næstu árin með nokkrum
inngripum frá bjargráði. En svo gekk
árið 2017 í garð og í maí sama ár var
hjartað komið í stuð. Þetta ár og í
byrjun þess næsta var ég fluttur 12
væri ekki svo vitlaus því ekki þyrfti
að byggja ný hús fyrir dýrin því þau
myndu hægt og bítandi éta sig gegn-
um fjárhúsin.“
Jón hefur verið fréttaritari Morg-
unblaðsins í 37 ár. Hann sat í síðustu
hreppsnefnd Blönduóss 1986 og
fyrstu bæjarstjórn Blönduóss 1988
og sat til 1990. Hann var félagi í
Lionsklúbbi Blönduóss meðan sá var
og hét og söng í gamla daga með
Vökumönnum. Hann hefur fengið
viðurkenningar fyrir lagasmíðar og
textagerð og þá aðallega í tengslum
við dægurlagakeppni Kvenfélags
Sauðárkróks . „Einnig hafa fallið til
nokkrar viðurkenningar fyrir ljós-
myndir og svona eitt og eitt klapp á
bakið gegnum tíðina eins og gengur
og gerist.“
Margvísleg áhugamál
„Hér á árum áður var ég mjög
virkur í golfklúbbnum Ósi og gegndi
þar m.a. formennsku í nokkur ár.
Laxveiðar voru líka mikið stundaðar í
Blöndu þegar Blanda rann óbeisluð
til sjávar en þá var lítið hægt að veiða
nema vera þokkalega að sér í húkk-
inu. Ég er mikill áhugamaður um at-
ferli og farflug grágæsa og hef fylgst
með og tekið þátt í merkingu þeirra
hér á Blönduósi frá árinu 2000. Ljós-
myndun skorar líka hátt sem og bók-
lestur. Limrur eru í miklu uppáhaldi
hjá mér.
Lífið hefur verið minni fjölskyldu
J
ón Sigurðsson er fæddur 18.
febrúar 1952 í Reykjavík og
bjó ungdóms- og þroskaár-
in á Laugarnesvegi 43. „Því
ólst ég upp í Laugarnes-
hverfi með óspillta fjöruna, Fúlutjörn
og eyðibýlið Kirkjuból í nánasta um-
hverfi. Höfuðstöðvar Strætó og Slát-
urfélags Suðurlands voru í seilingar
fjarlægð. Laugarneskampur var líka
spennandi staður þar sem krakkarnir
máttu eiga dúfur og kanínur.“ Jón var
mörg sumur á Blikastöðum og sýndi
þar stundum erlendum fyrirmönnum
íslenska hestinn.
Jón var lengst af í Laugarnesskóla.
„Þar var ég undir verndarvæng hins
frábæra kennara Jóns Freys Þórar-
inssonar og síðar skólastjóra.“ Jón er
gagnfræðingur frá Vogaskóla. Hann
var vinnumaður eitt sumar á Laugar-
dælum 1972 og veturinn 1973-74 á
bænum Geltinggaard rétt sunnan við
Kolding á Jótlandi við skógarhögg og
lærði þar að plægja. Jón útskrifaðist
árið 1977 úr búvísindadeildinni á
Hvanneyri með BS í búvísindum.
Hann hóf störf hjá Búnaðarsambandi
A-Húnavatnssýslu sumarið 1977 og
starfaði þar óslitið til ársloka 2001.
Eftir það var hann umboðsmaður TM
til ársins 2018.
„Er ég kom til starfa fyrir bændur í
A-Hún var framleiðsla búvara óheft
og með aukinni tækni og bættri hey-
verkun jókst framleiðslan og hin
þekktu fjöll fóru að rísa. Leitað var
leiða til að koma böndum á ástandið
og var niðurstaðan að kvóti var settur
á. Þessir tímar voru erfiðir fyrir alla.
Mörgum bændum leist ekki á blikuna
og töldu jafnvel að stefnt væri að því
að kippa undan þeim tilverugrund-
vellinum. Þung orð og jafnvel tár féllu
og þar sem ráðunautar voru yfirleitt
nærtækastir í hinu opinbera kerfi
fundu þeir vel fyrir þunganum og til-
finningunum í þessari umræðu. Þetta
voru erfiðir en óhjákvæmilegir tímar.
Í kjölfar þessa hófst mikil leit að
öðrum tækifærum til að tryggja hin-
um dreifðu byggðum lífsviðurværi.
Loðdýraræktin var endurvakin og
hún fór eins og hún fór. Ég minnist
þess að Halldór heitinn Pálsson bún-
aðarmálastjóri sagði einu sinni á fundi
með ráðunautum að loðdýraræktin
sinnum með forgangi, ýmist með
sjúkrabíl eða flugi, vegna alvarlegra
hjartsláttartruflana. Síðasta inn-
lögnin á hjartadeild var 24.1. 2018 og
slapp ég þaðan út 5.4. 2018, 20 kílóum
léttari en í upphafi hremminga. Það
er erfitt að halda þessari sjúkrasögu
utan við lífsgöngu mína því hún hefur
markað mig nokkuð. En ég virðist
eiga níu líf og sumir segja fleiri, ég
taki kettinum fram.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóns er Margrét Ein-
arsdóttir, f. 31.12. 1953, starfsmaður
Verslunarinnar Vísis 1978-2003. Síð-
an verslunarstjóri ÁTVR í 16 ár og
lauk starfsferli sem móttökuritari hjá
HSN Blönduósi. „Við höfum búið á
Blönduósi síðan 1977 og þá eins ná-
lægt Blöndubökkum og kostur er.
Tvo vetur bjuggum við á Syðstu-
Fossum í Andakíl hjá sómahjónunum
Sigríði Guðjónsdóttur og Snorra
Hjálmarssyni.“ Foreldrar Mar-
grétar: Hjónin Einar Þorláksson, fv.
sveitarstjóri og kaupmaður, f. 3.1.
1927, d. 7.10. 2020, og Arndís Þor-
valdsdóttir, fv. kaupmaður, f. 27.1.
1928, búsett á Blönduósi.
Börn Jóns og Margrétar eru 1)
Einar Örn Jónsson, f. 8.12. 1975,
hljómborðsleikari í Í svörtum fötum
og tvíeykinu Löðri og sérfræðingur
hjá Orkuveitu Reykjavíkur, kvæntur
Huldu Birnu Baldursdóttur frá Akra-
nesi, f. 23.5. 1973, kennara við MH.
Börn þeirra eru Margrét, f. 2000,
Baldur, f. 2002, Mikael, f. 2005, og
Gabríel, f. 2009. 2) Andvana fæddir
tvíburadrengir 12.3. 1980. 3) Hjalti, f.
12.3. 1981, sjálfstætt starfandi sál-
fræðingur og tenórsöngvari, kvæntur
Láru Sóleyju Jóhannsdóttur frá
Húsavík, f. 30.1. 1982, fram-
kvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Börn þeirra eru Jóhann
Ingvi, f. 2008, Hulda Margrét, f. 2013,
og Jón Benedikt, f. 2015. 3) Ásta
Berglind, f. 4.8. 1990, tómstunda- og
félagsmálafræðingur frá HÍ, nú
starfsmaður Arion banka. Gift Jó-
hanni Inga Hjaltasyni, f. 31.8. 1991, á
lokaári í námi í kennslufræðum við
HÍ. Dóttir þeirra er Gróa Margrét, f.
2015. Öll eru börnin búsett í Reykja-
vík.
Jón Sigurðsson, fyrrverandi héraðsráðunautur í A-Húnavatnssýslu – 70 ára
Fjölskyldan Frá vinstri: Einar Örn, Margrét, Jón, Ásta Berglind og Hjalti.
Virðist eiga níu líf og jafnvel fleiri
Til hamingju með daginn
Vestmannaeyjar Daníel Andri fædd-
ist 16. júní 2021 kl. 11.44 á Landspít-
alanum í Reykjavík. Hann vó 2.520 g
og var 47 cm langur. Foreldrar hans
eru Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull
Andri Sigurðsson.
Nýr borgari
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
18.– 20. febrúar
20% afsláttur
af völdum vörum
Konudags
TILBOÐ