Morgunblaðið - 18.02.2022, Side 26

Morgunblaðið - 18.02.2022, Side 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022 Evrópudeild karla 24-liða úrslit, fyrri leikir: Atalanta – Olympiacos............................ 2:1 - Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos. Porto – Lazio............................................. 2:1 RB Leipzig – Real Sociedad.................... 2:2 Sevilla – Dinamo Zagreb ......................... 3:1 Barcelona – Napoli ................................... 1:1 Dortmund – Rangers ............................... 2:4 Sheriff – Braga ......................................... 2:0 Zenit Pétursborg – Real Betis ................ 2:3 _ Lyon, Mónakó, Spartak Moskva, Eint- racht Frankfurt, Galatasaray, Rauða stjarnan, Leverkusen og West Ham fara beint í 16-liða úrslit. Sambandsdeild karla 24-liða úrslit, fyrri leikir: Midtjylland – PAOK................................ 1:0 - Elías Rafn Ólafsson varði mark Midt- jylland. - Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK. Celtic – Bodö/Glimt................................. 1:3 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Fenerbahce – Slavia Prag ....................... 2:3 PSV Eindhoven – Maccabi Tel Aviv....... 1:0 Rapid Vín – Vitesse .................................. 2:1 Leicester – Randers................................. 4:1 Marseille – Qarabag................................. 3:1 Sparta Prag – Partizan Belgrad ............. 0:1 _ LASK Linz, Gent, Roma, AZ Alkmaar, Feyenoord, Köbenhavn, Rennes og Basel fara beint í 16-liða úrslit. Arnold Clark-bikar kvenna Leikið í Middlesbrough á Englandi: Þýskaland – Spánn................................... 1:1 England – Kanada.................................... 1:1 >;(//24)3;( Coca Cola-bikar kvenna 16-liða úrslit: Fjölnir/Fylkir – ÍBV ............................ 18:44 _ ÍBV mætir FH eða Stjörnunni. Afturelding – HK ................................. 27:31 _ HK mætir KA/Þór. Selfoss – Haukar .................................. 29:39 _ Haukar mæta Val. ÍR – Grótta................... (26:26) (29:29) 35:33 _ ÍR mætir Fram. Coca Cola-bikar karla 16-liða úrslit: Kórdrengir – ÍBV................................. 21:30 _ ÍBV mætir Selfossi. Meistaradeild karla A-riðill: Elverum – Kiel ..................................... 30:31 - Orri Freyr Þorkelsson og Aron Dagur Pálsson léku ekki með Elverum. Staðan eftir 11 umferðir af 14: Aalborg 16, Montpellier 16, Kiel 15, Pick Szeged 14, Elverum 8, PPD Zagreb 8, Var- dar Skopje 7, Meshkov Brest 4. _ Tvö efstu liðin fara í 8-liða úrslit og næstu fjögur í 16-liða úrslit. Þýskaland Magdeburg – Göppingen.................... 37:26 - Ómar Ingi Magnússon skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 4. - Janus Daði Smárason lék ekki með Göppingen. Minden – Melsungen ........................... 22:26 - Elvar Örn Jónsson skoraði 5 mörk fyrir Melsungen, Arnar Freyr Arnarsson ekkert en Alexander Petersson var ekki með. Staðan: Magdeburg 38, Kiel 32, Flensburg 30, Füchse Berlín 29, Wetzlar 24, Melsungen 24, Göppingen 23, Leipzig 21, Lemgo 20, Hamburg 16, Erlangen 15, Bergischer 15, RN Löwen 15, Hannover-Burgdorf 14, N- Lübbecke 10, Stuttgart 9, Balingen 9, Minden 8 Frakkland Cesson Rennes – Nancy ...................... 30:25 - Elvar Ásgeirsson skoraði 2 mörk fyrir Nancy sem er neðst af 16 liðum. Danmörk Kolding – Skanderborg...................... 27:37 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 6 skot í marki Kolding sem er í 14. sæti af fimmtán liðum. E(;R&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Þorlákshöfn: Þór Þ. – Breiðablik ........ 18.15 Njarðvík: Njarðvík – Grindavík.......... 20.15 1. deild karla: Hveragerði: Hamar – Skallagrímur ... 19.15 Egilsstaðir: Höttur – Álftanes ............ 19.15 Akranes: ÍA – Selfoss........................... 19.15 Höfn: Sindri – Hrunamenn.................. 19.15 1. deild kvenna: Kennaraháskóli: Ármann – Snæfell ... 19.15 KNATTSPYRNA Deildabikar karla, Lengjubikarinn: Egilshöll: Leiknir R. – Vestri ................... 21 Í KVÖLD! KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Keflvíkingar eru efstir ásamt Ís- landsmeisturunum í Þór frá Þor- lákshöfn í Subway-deild karla í körfuknattleik eftir vel heppnaða vinnuviku. Keflvíkingar unnu öruggan sigur á Þór frá Akureyri 97:77 og hafa þá náð í fjögur stig í þessari viku því á mánudaginn vann Keflavík stórsigur gegn Breiðabliki 126:80. Liðin mættust í Keflavík og kom Þór talsvert á óvart í fyrri hálfleik. Liðið var ell- efu stigum yfir eftir fyrri hálfleik- inn 48:37. Keflvíkingar létu hendur standa fram úr hlýrabolunum og höfðu yfirburði í síðari hálfleik sem skilaði liðinu tuttugu stiga sigri. Jaka Brodnik skoraði 25 stig fyrir Keflavík og Darius Tarvydas 23 stig. Eric Fongue skoraði 25 stig fyrir Þór sem er í erfiðri stöðu í neðsta sæti með aðeins tvö stig og fall blasir við liðinu. Valsmenn í efri hlutanum Valsmenn náðu í tvö góð stig þegar þeir fóru í Breiðholtið og unnu ÍR-inga í hörkuleik 83:80. Valsmenn voru með ágæt tök á leiknum í fyrri hálfleik og voru með níu stiga forskot að honum loknum. ÍR-ingar breyttu þeirri stöðu rækilega í þriðja leikhluta og voru með þriggja stiga forskot fyrir síðasta leikhlutann. Þar reyndust Valsmenn hins vegar sterkari og unnu síðasta leikhlut- ann 25:19. Landsliðsmaðurinn Kristófer Acox var stigahæstur með 21 stig hjá Val og Kári Jónsson skoraði 17 stig. Valur er með 20 stig í fjórða sæti. Tomas Zdanavicius var stiga- hæstur hjá ÍR með 31 stig. ÍR er með 14 stig eins og þrjú önnur lið í 7.-10. sæti. 55 stig í fyrri hálfleik Stjarnan vann KR 90:79 í Ás- garði í Garðabæ en Garðbæingar komu sér upp góðu forskoti í fyrri hálfleik en að honum loknum voru þeir yfir 55:36. KR-ingar minnk- uðu forskotið niður um sjö stig í þriðja leikhluta og eitt í þeim síð- asta og Stjarnan landaði því sigri með ellefu stiga mun. Stjarnan er með 20 stig í 5. sæti en KR er með 14 stig í 10. sæti. Robert Turner III var stiga- hæstur hjá Stjörnunni með 27 stig en Björn Kristjánsson skoraði 17 stig fyrir KR. Tindastóll vann öruggan sigur gegn Vestra þegar liðin áttust við á Ísafirði. Tindastóll sigraði 107:88 og er með 16 stig í 6. sæti deild- arinnar en Vestri er í næstneðsta sæti með 6 stig. Fall blasir við lið- inu eins og Þór Akureyri þar sem átta stig eru í næsta lið fyrir ofan. Sigtryggur Arnar Björnsson skoraði 32 stig og Javon Bess skoraði 27 fyrir Tindastól en Marko Jurica 26 stig fyrir Vestra og Hilmir Hallgrímsson 22 stig. 4 stig á fjór- um dögum - Góður sigur hjá Val í Breiðholtinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Klókur Landsliðsmaðurinn Kári Jónsson sækir að körfu ÍR í gær en hann skoraði 17 stig fyrir Val. Til varnar er Róbert Sigurðsson. ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslit- um Coca Cola-bikarkeppni karla í handknattleik í gær og mætir Sel- fossi í næstu umferð. Eyjamenn heimsóttu b-deildar- liðið Kórdrengi í Digranesið og unnu 30:21. ÍBV var yfir 19:13 að loknum fyrri hálfleik og þá var ljóst hvert stefndi. Hornamaðurinn snarpi Theodór Sigurbjörnsson skoraði 8 mörk fyr- ir ÍBV og Ásgeir Snær Vignisson 5 mörk. Matthías Daðason skoraði mest fyrir Kórdrengi eða 5 mörk. Eyjamenn slógu út Kórdrengi Morgunblaðið/Þórir Markahæstur Theodór Sigur- björnsson skoraði 8 mörk. Rut Jónsdóttir, besti leikmaður Ís- landsmóts kvenna í handknattleik 2020-21, verður áfram í röðum Ís- lands- og bikarmeistara KA/Þórs á Akureyri. Hún hefur skrifað undir nýjan samning til tveggja ára. Þá hefur unnusti hennar Ólafur Gústafsson samið að nýju við KA- menn til tveggja ára. Þau fluttu til Akureyrar frá Danmörku sumarið 2020 eftir langan atvinnuferil er- lendis og hafa styrkt lið KA/Þórs og KA verulega. Rut og Ólafur eru nú samningsbundin til sumarsins 2024. Rut og Ólafur sömdu að nýju Ljósmynd/KA Sömdu Ólafur Gústafsson og Rut Jónsdóttir verða áfram á Akureyri. HK sló Aftureldingu út úr Coca Cola-bikar kvenna í handknattleik þegar úrvalsdeildarliðin mættust í Mosfellsbænum í gær. HK vann 31:27 og er því komið í 8-liða úrslit keppninnar en þar mætir HK bikar- meisturunum í KA/Þór. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var atkvæðamikil eins og oft áður hjá HK og skoraði 8 mörk í ellefu tilraunum. Sylvía Björt Blöndal skoraði einnig 8 mörk fyrir Aftur- eldingu. Mikið fjör var í Breiðholtinu þar sem b-deildarliðin ÍR og Grótta börðust til síðasta manns. Fram- lengja þurfti leikinn í tvígang til þess að knýja fram úrslit en að loknum venjulegum leiktíma var staðan 26:26. ÍR vann 35:33 þegar upp var staðið eftir maraþonleik. ÍR fær sterkan andstæðing í 8-liða úrslitum en þá mætir liðið Fram. Ksenija Dzaferovic og Stefanía Ósk Hafberg skoruðu 8 mörk hvor fyrir ÍR en hjá Gróttu átti Katrín Anna Ásmundsdóttir þvílíkan stór- leik og skoraði 14 mörk. ÍBV burstaði lið Fjölnis/Fylkis 44:18 á útvelli og mætir ÍBV annað- hvort FH eða Stjörnunni. Haukar unnu Selfoss 39:29 og Haukar mæta Val á útivelli í 8-liða úrslitum. Þar þurfti að framlengja. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Marksækin Jóhanna Margrét Sigurðardóttir komin í loftið í Mosfells- bænum í gær en þá hafnar boltinn oftar en ekki í netinu. Tvíframlengja þurfti Evrópuævintýrið heldur áfram hjá Alfons Sampsted og samherjum hans í norska meistaraliðinu Bodö/ Glimt. Eftir að hafa sigrað Vals- menn tvisvar í júlímánuði hefur lið- ið verið á mikilli siglingu og í gær- kvöld vann það glæsilegan útisigur á skoska liðinu Celtic í Glasgow, 3:1, í fyrri viðureign liðanna í 24- liða úrslitum Sambandsdeild- arinnar í fótbolta. Alfons lék allan leikinn í stöðu hægri bakvarðar og staða Bodö/ Glimt er afar vænleg fyrir seinni leikinn á eigin heimavelli. Runar Espejord, Ahmal Pellegrino og Hugo Vetlesen skoruðu mörkin. Elías hélt hreinu Elías Rafn Ólafsson landsliðs- markvörður hélt marki sínu hreinu þegar Midtjylland lagði Sverri Inga Ingason og samherja í PAOK frá Grikklandi, 1:0, í fyrri leik liðanna í sömu keppni í Herning í Dan- mörku. Joel Andersson skoraði sigurmark Dananna á 20. mínútu leiksins. _ Rangers fór allt öðruvísi að en grannarnir í Celtic því skosku meistararnir unnu frækinn útisigur á Dortmund, 4:2, í Þýskalandi í 24- liða úrslitum Evrópudeildarinnar. _ Leicester er í góðri stöðu í Sambandsdeildinni eftir 4:1 sigur á Randers frá Danmörku. Wilfried Ndidi, Harvey Barnes, Patson Daka og Kiernan Dewsbury-Hall skoruðu fyrir Leicester. _ Barcelona og Napoli skildu jöfn, 1:1, á Camp Nou í stórleik kvöldsins í Evrópudeildinni. Piotr Zielinski kom Napoli yfir en Ferran Torres jafnaði fyrir Barcelona úr vítaspyrnu. Ævintýrið heldur áfram hjá Alfons Ljósmynd/Bodö/Glimt Ævintýri Alfons Sampsted fagnaði sigri á Celti Park í Glasgow.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.