Morgunblaðið - 18.02.2022, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2022
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Þær voru eiginlega vonum framar,“
segir kvikmyndagerðarmaðurinn
Guðmundur Arnar Guðmundsson
um viðtökur gesta á heimsfrumsýn-
ingu nýjustu kvikmyndar hans, Ber-
dreymi, á kvikmyndahátíðinni í
Berlín 11. febrúar síðastliðinn. „Ég
er alltaf mjög stressaður fyrir svona
frumsýningar, maður veit aldrei
hverju maður má búast við en við-
tökunar hafa bara verið frábærar og
ég gat sjálfur setið og notið myndar-
innar og haft gaman af henni sem er
ekki oft þegar ég er að horfa á eigin
verk. Ég hafði gaman af því. Þegar
þú hringdir var ég að lesa tilvitnanir
í gagnrýni og þær eru bara frá-
bærar.“
Sú gagnrýni sem birst hefur um
myndina er á jákvæðum nótum og
fagnar Guðmundur því, eðlilega. „Í
hvert skipti sem maður fær sendan
dóm fær maður í magann. Ég opna
hann svo og les og vona það besta.
Það er léttir að fólk skilur myndina
og tengist henni, skilur hvað maður
var að gera,“ segir Guðmundur.
Langt ferli
–Líkt og í síðustu kvikmynd,
Hjartasteini, ertu með ungmenni í
aðalhlutverkum …
„Já, þau eru einum eða tveimur
árum eldri núna. Það er svo mikill
þroskamunur á þessum aldri, mér
finnst þau vera miklu eldri,“ svarar
Guðmundur og er í kjölfarið spurður
á hvaða aldri þetta unga fólk hafi
verið þegar myndin var tekin.
„Strákarnir voru milli 14 og 16 ára,“
svarar hann en tökur fóru fram
haustið 2020 og eitt ár fór svo í eftir-
vinnslu. „Þetta er búið að vera langt
ferli.“
–Tafðist myndin eitthvað út af
Covid?
„Nei, í rauninni ekki, við fengum
aukastuðning frá Kvikmynda-
miðstöð út af Covid og vorum heppn-
ir líka að ríkisstjórnin veitti
kvikmyndagerðarmönnum leyfi til
að vinna í lokuðum teymum ef þeir
væru ekki í samskiptum við aðra.
Það var frekar stressið og öll óvissan
í kringum Covid sem var að hamla
manni í ferlinu en þetta hafðist allt,“
svarar Guðmundur. Enginn í töku-
liðinu hafi veikst af veirunni, sem
betur fer, enda ekki í samskiptum
við neinn utan tökuliðsins.
Skyggnigáfan hliðarsaga
–Um hvað fjallar þessi mynd?
„Hún fjallar um strák sem á móð-
ur sem er með skyggnigáfu. Hann er
í frekar ofbeldisfullum vinahópi og
tekur að sér eineltisfórnarlamb í
skólanum, strák sem á enga vini.
Hann tekur hann inn í hópinn og við
sjáum hvernig sá strákur hefur áhrif
á allan hópinn og þeir finna sinn far-
veg, án þess að ég segi of mikið. Það
er oft erfitt að segja hvað myndin
fjallar um af því það er svo margt í
einu.“
Guðmundur segir skyggnigáfu
vissulega atriði í sögunni en hún sé
þó alltaf hliðarsaga frekar en eitt-
hvert aðalatriði. Hann segir Íslend-
inga marga hverja tengja vel við
slíka hluti og þá m.a. berdreymi.
Slagsmál fyrr og nú
En hvernig fékk Guðmundur hug-
myndina að þessari sögu?
„Hún er innblásin af tíma mínum í
Árbænum, ég fór í Árbæjarskóla og
þar var svolítið hörð menning í
kringum 1990-2000, mikið um slags-
mál og á milli hverfa og ég var svolít-
ið í þannig vinahópi. Sagan byrjaði
þar en varð svo að skáldsögu og mér
finnst mikilvægt að fólk viti það því
Ísland er lítið og Árbærinn enn
minni,“ segir Guðmundur.
Hann telur að fólk á öllum aldri
muni tengja við myndina og bendir á
að slagsmál hafi alltaf tíðkast meðal
barna og unglinga og tíðkist enn,
eins og umfjallanir fjölmiðla sýni.
Nokkrir fullorðnir leikarar eru í
myndinni og í hlutverkum foreldra
eru þau Anita Briem, Ólafur Darri
Ólafsson, Ísgerður Elfa Gunnars-
dóttir og Davíð Guðbrandsson. Guð-
mundur segir að fólk muni varla
þekkja Ísgerði í myndinni, svo mikil
sé umbreyting hennar. Blær Hin-
riksson, sem fór með eitt af aðalhlut-
verkunum í Hjartasteini, leikur líka í
myndinni og algjöran fant að þessu
sinni, að sögn Guðmundar. Blær er
fæddur árið 2001 og því orðinn full-
orðinn. „Fólk mun þekkja hann af
útlitinu en ekki karakternum,“ segir
Guðmundur um manninn sem Blær
leikur.
Frumsýnd í apríl
Íslandsfrumsýning á myndinni
verður 22. apríl og eflaust margir
sem bíða spenntir. Guðmundur segir
margar íslenskar kvikmyndir frum-
sýndar á árinu og að reynt hafi verið
að koma frumsýningu á Berdreymi
að sem fyrst. Frumsýningardagur
hafi verið valinn með tilliti til ann-
arra frumsýninga á íslenskum
myndum. „Þetta verður mjög spenn-
andi Edduverðlaunahátíð af því það
eru svo margar góðar myndir að
koma,“ segir Guðmundur og er
greinilega bjartsýnn á íslenska bíó-
árið 2022.
Ljósmyndari/Nadja Hallström
Tökur Guðmundur með hópi ungra leikara við tökur á Berdreymi. Frá vinstri eru Snorri Rafn Frímannsson, Birgir
Dagur Bjarkason, Áskell Einar Pálmason, Aðalbjörg Emma Hafsteinsdóttir og Kamilla Guðrún Lowen.
Átakasaga Stilla úr Berdreymi sem er átakasaga um einelti og ofbeldisfull
ungmenni þar sem berdreymi kemur meðal annars við sögu.
Ísland er lítið og Árbærinn minni
- Skyggnigáfa og ofbeldisfull ungmenni koma við sögu í kvikmyndinni Berdreymi - Hefur fengið
góðar viðtökur eftir frumsýningu í Berlín - „Það er léttir að fólk skilur myndina,“ segir leikstjóri
Alcarràs, önnur leikna kvikmynd
spænska leikstjórans og handrits-
höfundarins Cörlu Simón, hreppti
Gullbjörninn, aðalverðlaun Berlin-
ale, kvikmyndahátíðarinnar í Berlín.
Myndin fjallar um ferskjubændur á
Norður-Spáni. Nokkrar kynslóðir
fjölskyldunnar hafa ræktað landið
en þurfa að víkja fyrir fyrirtæki sem
virkjar sólarorku. Athygli hefur
vakið að leikarar í Alcarràs eru allir
lítt reyndir áhugamenn. Simón er
sjálf úr bændafjölskyldu og segja
gagnrýnendur myndina tregafulla. Í
The New York Times segir að í til-
finningaríkri þakkarræðu sinni hafi
Simón tileinkað verðlaunin hófsöm-
um bændum sem yrkja landið alla
daga til að færa okkur mat á
diskana með vinnulagi sem sé eins
konar andspyrna gegn stórfyrir-
tækjum á þessu sviði.
Formaður dómnefndar Berlínar-
hátíðarinnar var leikstjórinn M.
Night Shyamalan og í nefndinni sátu
einnig danska leikkonan Connie
Nielsen og japanski leikstjórinn
Ryusuke Hamaguchi.
Önnur verðlaun hlaut The Novel-
ist’s Film eftir suðurkóreska leik-
stjórann Hong Sangsoo en hann var
valinn besti leikstjórinn á hátíðinni
fyrir tveimur árum. Sérstök verð-
laun dómnefndar hlaut síðan Robe
of Gems, frumraun leikstjórans
Natalia López frá Mexíkó.
Hin franska Claire Denis var valin
besti leikstjórinn, fyrir myndina
Both Sides of the Blade. Heiðurs-
verðlaun Gullna bjarnarins, fyrir
ævistarf í kvikmyndum, hlaut
franska leikkonan Isabelle Huppert.
Hún gat ekki tekið við þeim á sviði
þar sem hún er í einangrun með
Covid-19.
Alcarràs valin besta
myndin á Berlinale
- Konur hrepptu
Gullbjörninn og
leikstjóraverðlaun
AFP
Lukkuleg Carla Simón hampar
Gullna birninum, sigri hrósandi.
Styrkveitingar menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkurborgar 2022 voru upplýstar í vikunni. Sem
fyrr var faghópi, skipuðum fulltrúum Bandalags ís-
lenskra listamanna og Hönnunarmiðstöðvar Íslands, fal-
ið að fara yfir styrkumsóknir og leggja til styrki til
menningar og lista. Alls voru 153 umsóknir til meðferðar
þar sem sótt var um rúmar 265 milljónir króna. Menn-
ingar-, íþrótta- og tómstundaráð hafði 44,6 milljónir til
úthlutunar til styrkja á sviði menningarmála í ár, þar af
tvær milljónir til Listhóps Reykjavíkur, og veitti vilyrði
fyrir 55 styrkjum.
Hópurinn sem stendur að Rusl Fest í Gufunesi var út-
nefndur Listhópur Reykjavíkur þetta árið. Fyrir hópn-
um fara Elín Margot Ármannsdóttir, Björn Loki Björns-
son og Elsa Jónsdóttir. Rusl Fest er hönnunarhátíð með
áherslu á sjálfbærni, hringrásarhagkerfið og samstarf
skapandi rýma í Gufunesi.
Hæsta styrkinn þetta árið, eða 2,5 milljónir, hlaut al-
þjóðlega leiklistarhátíðin Lókal. Tvær milljónir hljóta.
Menningarfélagið Hneykslist fyrir Reykjavík Fringe
2022; Samband íslenskra myndlistarmanna fyrir TORG,
Listamessa í Reykjavík 2022 og Listvinafélagið í Reykja-
vík, 1,5 milljónir hljóta Ung Nordisk Musik; Ragnheiður
Maísól Sturludóttir fyrir Norræna músíkdaga 2022 og
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs fyrir DesignTalks. 1,2
milljónir hlutu Edda Björg Eyjólfsdóttir fyrir Venus in
Furs; Kammerhópurinn Nordic Affect, Hringleikur –
Sirkuslistafélag fyrir Sirkushátíð Hringleiks og Litla
Havana fyrir menningarstarf Skuggabaldurs. „Hæstu
framlög til menningarlífsins í borginni fyrir utan rekstur
menningarstofnana hennar, Borgarbókasafns, Lista-
safns Reykjavíkur og Borgarsögusafns, fara til Leik-
félags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss.
Jafnframt njóta Listahátíð í Reykjavík, Sviðslista-
miðstöð í Tjarnarbíói, Bíó Paradís, Nýlistasafnið og fleiri
sjálfstæðir aðilar húsnæðis- og/eða rekstrarstyrkja frá
Reykjavíkurborg,“ segir í tilkynningu.
Listhópur Reykjavíkur
stendur fyrir Rusl Fest
- 44,6 milljónum úthlutað - Listhópur og 55 verkefni styrkt
Jafnvægi Sirkuslistafélagið Hringleikur hlaut styrk til
að standa fyrir Sirkushátíð Hringleiks á árinu 2022.