Morgunblaðið - 18.02.2022, Qupperneq 32
FULLKOMIN
ÞÆGINDI
FALLEG
HÖNNUN OG
ÞÆGINDI
PANDORA
HÆGINDASTÓLAR
HLEÐSLUSTÓLLMEÐ 3 MÓTORUM
STILLANLEG HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
– EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI
ZERO
GRAVITY
Allt fyrir góðan svefn
og betri heilsu
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 49. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
„Ég fann það strax hjá sjálfri mér að þetta var eitthvað
sem ég var mjög spennt fyrir og eftir að hafa skoðað
málin betur varð ég í raun sannfærð um að þetta væri
rétta skrefið fyrir mig,“ segir knattspyrnukonan Kristín
Dís Árnadóttir sem hefur hingað til leikið með Breiða-
bliki en er nú komin til liðs við Bröndby, sigursælasta
félag Danmerkur. »27
Sannfærð að það væri rétta skrefið
ÍÞRÓTTIR MENNING
Hljómsveitin Four Others kemur fram ásamt João
Barradas á tónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Kaldalóni
Hörpu í kvöld kl. 20. „Barradas er einn þekktasti harm-
ónikkuleikari Evrópu og leikur jöfnum höndum djass og
klassíska tónlist af ótrúlegri færni,“ segir í tilkynningu.
Hljómsveitina skipa Haukur Gröndal á saxófón, Ásgeir
Ásgeirsson á gítar, Birgir Steinn Theódórsson á bassa
og Magnús Trygvason Elíassen á trommur. Á efnis-
skránni verða frumsamin lög eftir flytjendur og efni af
tilvonandi plötu Four Others sem nefnist Five Angles.
João Barradas og Four Others leika
á Múlanum í Hörpu í kvöld kl. 20
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Aðstandendur hátíðarinnar Rusl
Fest, sem haldin verður í Gufunesi í
sumar, voru valdir Listhópur
Reykjavíkur 2022 og hlaut verkefnið
veglegan styrk. Í fararbroddi Rusl
Fest eru þau Elín Margot Ármanns-
dóttir, Björn Loki Björnsson og
Elsa Jónsdóttir.
„Þetta er samstarfsverkefni nokk-
urra aðila sem komu saman og lang-
aði að búa til listahátíð í nýja hverf-
inu sem er að rísa í Gufunesinu,“
segir Elsa, ein skipuleggjendanna.
Rusl Fest var haldið í smærri mynd í
fyrra en það er verkefni sem Elín
Margot hefur verið að þróa. Fleiri
hópar og einstaklingar hafa síðan
komið að verkefninu sem hefur
stækkað ört.
Stefnt er að því að hátíðin verði
haldin dagana 27. júní til 3. júlí. Um
er að ræða vikulangan viðburð þar
sem áhersla verður á sjálfbærni og
hringrásarhagkerfi. Heiti hátíð-
arinnar, Rusl Fest, tengist einmitt
endurnýtingu.
„Við verðum með alls konar
vinnustofur þar sem við einblínum á
hönnun og list í sambandi við hvern-
ig má gera þær umhverfisvænni. Við
leggjum til dæmis áherslu á arki-
tektúr og vöruhönnun og endurnýt-
ingu á alls konar efni í tengslum við
það. Við leggjum líka áherslu á mat
og svo verðum við með útvarpsstöð
þar sem fólk mun fara í rannsóknir á
sjálfbærni í hljóðheiminum. Þetta
verður mjög margþætt og við erum
enn að móta þetta og þróa.“
Spennandi miðstöð í Gufunesi
Á Rusl Fest munu ýmsir ólíkir
hópar koma saman og verður af-
rakstur samstarfsins sýndur á loka-
dögum hátíðarinnar með viðburðum,
sýningum, fyrirlestrum, pallborðs-
umræðum og ýmsum samkomum í
fjölmörgum rýmum í Gufunesi.
Í Gufunesi hefur skapast spenn-
andi listamiðstöð. „Við erum með
batterí sem heitir Fúsk Gufunes og
það er stór hópur í kringum það. Svo
er annar hópur með útibú hér sem
heitir Verkvinnslan. Þetta eru í
rauninni stúdíórými þar sem fjöl-
breyttur hópur kemur saman og
vinnur að því að gera rýmið áhuga-
vert og vinnur svo sjálfstæð verkefni
innan rýmisins líka,“ segir Elsa.
„Við ætlum að fagna þessu starfi á
hátíðinni og tengja saman fólk úr
ólíkum áttum. Áhersla okkar er líka
mikið á uppbyggingu á svæðinu.
Þetta er skapandi hverfi á vegum
Reykjavíkurborgar og við höfum
fengið að setja okkar mark á hverfið
meðan það er í uppbyggingu sem er
mjög áhugavert samspil. Þessi hátíð
mun svolítið kóróna það starf.“ »28
Hópurinn Elsa Jónsdóttir, Björn Loki Björnsson, Narfi Þorsteinsson og Elín Margot Ármannsdóttir.
Margþætt listahátíð
í skapandi hverfi
- Rusl Fest er Listhópur Reykjavíkur 2022 og hlaut styrk