Morgunblaðið - 25.02.2022, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022
SÓL Á TENERIFE & KANARÍ
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
TENERIFE
02. -09. MARS - 7 DAGAR
LABRANDA SUITES COSTA ADEJE 4*
VERÐ FRÁ137.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 182.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA
KANARÍ
29. MARS - 11. APRÍL - 13 DAGAR
SERVATUR WAIKIKI 4*
VERÐ FRÁ110.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 157.500 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA
MEÐ
MORGUNV.
HÁLFT
FÆÐI
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
Unnur Freyja Víðisdóttir
„Það streymir enn fólk til okkar,“
segir Gylfi Þór Þorsteinsson, for-
stöðumaður farsóttarhúsa Rauða
krossins.
Þó öllum takmörkunum hafi nú
verið aflétt og þar með talið að þeir
sem smitast af kórónuveirunni skuli
sæta einangrun er enn þörf á farsótt-
arhúsum að mati Gylfa. „Við verðum
með opið út mars. Hér í Reykjavík
verðum við með Hótel Lind opið og
fyrir norðan er það Hótel Akureyri.
Nú eru 70 manns hjá okkur sem er
kannski ekki mikið miðað við það
sem verið hefur en er þó nóg til að
fylla Lindina,“ segir Gylfi.
Hann segir jafnframt að mismun-
andi ástæður geti verið fyrir því að
fólk þurfi að geta leitað í sóttvarna-
hús í dag. „Í mörgum öðrum löndum
hefur ekki verið létt á þessum
ákvæðum þannig að fólk getur ekki
ferðast til síns heima nema með nei-
kvætt PCR-próf. Það eru einnig allt-
af einhverjir Íslendingar sem geta
ekki einangrað sig heima fyrir og svo
eru hér einhverjir sem búa úti á
landi en þurfa að vera nálægt spít-
alanum.“
Almennri notk-
un PCR-prófa var
hætt í gær. Þann-
ig er ekki lengur í
boði fyrir al-
menning með ein-
kenni sem benda
til smits af völd-
um Covid-19 að
panta PCR-sýna-
töku heldur eru
einungis hrað-
greiningarpróf í boði.
Hámarki PCR-greiningargetu
vegna Covid-19 var náð fyrir nokkru,
sem leiddi til þess að bið eftir niður-
stöðu úr PCR-greiningum var orðin
allt að þrír sólarhringar. Samkvæmt
tilkynningu frá sóttvarnalækni er
bæði hægt að panta tíma í hraðgrein-
ingarpróf hjá heilsugæslunni í gegn-
um Heilsuveru og hjá þeim einka-
fyrirtækjum sem bjóða upp á
hraðgreiningarpróf. Prófið er ein-
staklingum að kostnaðarlausu.
Jákvætt hraðgreiningarpróf mun
því nægja til greiningar á Covid-19
og ekki verður þörf á staðfestingu á
greiningunni með PCR-prófi. Próf-
anir á vegum heilsugæslunnar munu
eftir sem áður fara fram á Suður-
landsbraut 34.
Farsóttarhúsin
opin til marsloka
- Almennri notkun PCR-prófa hætt
Gylfi Þór
Þorsteinsson
Allir háskólar landsins taka þátt í Há-
skóladeginum á morgun, laugardag,
frá klukkan 12 til 15. Tilkynnt hafði
verið að dagurinn yrði stafrænn í ár,
rétt eins og í fyrra, og verður staðið
við þau áform þrátt fyrir að sótt-
varnaaðgerðum hafi verið aflétt.
Nemendur, kennarar, náms- og
starfsráðgjafar og starfsfólk háskól-
anna verða tilbúin að spjalla við gesti
dagsins í netspjalli á vefsíðu Há-
skóladagsins og hægt er að kynna sér
allar námsleiðir í grunnnámi.
Háskóladagurinn stafrænn
ENGAR BREYTINGAR ÞRÁTT FYRIR AFLÉTTINGAR
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við ætlum að byrja snemma og tök-
um öllum gestum fagnandi,“ segir
Geoffrey Þ. Huntingdon-Williams,
meðeigandi og rekstrarstjóri á Prik-
inu við Laugaveg.
Búast má við að mikil stemning
verði í miðborg Reykjavíkur í kvöld
og um helgina. Skemmtistaðir mega
hafa opið fram á nótt eftir að sótt-
varnaaðgerðum var aflétt á mið-
nætti. Að undanförnu hefur af-
greiðslutími verið skertur og gestir
og starfsfólk skemmtistaða hafa
þurft að gangast undir ýmsar reglur
vegna samkomutakmarkana. Það
breytist í kvöld.
„Það er gott hljóð í fólki hér. Við
fengum fínan fyrirvara til undirbún-
ings og nú eru allar pantanir komnar
í hús, vaktir á stöðunum eru vel
mannaðar og plötusnúðar eru klárir
að vaka fram eftir og spila fyrir
gesti. Það mun eflaust taka marga
tíma að venjast gamla kerfinu. Hér
eru starfsmenn sem eru komnir með
ágætan starfsaldur, jafnvel tveggja
ára, en hafa sjaldnast unnið lengur
en rétt fram yfir miðnætti,“ segir
Geoffrey en þeir skemmtistaðir sem
eru opnir lengst skella ekki í lás fyrr
en hálffimm í nótt.
Geoffrey segir aðspurður að hann
búist við að gestir vilji fá útrás fyrir
uppsafnaða skemmtanaþörf eftir
takmarkanir síðustu mánuði.
„Það eru margir nýir og betri siðir
sem hafa orðið til í þessum faraldri
en ég býst nú við að margir verði
eins og beljurnar á vorin. Mér finnst
líklegt að það mælist óróapúls í fólk-
inu í bænum í kvöld.“
Steinþór Helgi Arnsteinsson, eig-
andi skemmtistaðarins Röntgen við
Hverfisgötu, segir að ríkisstjórnin
hafi sýnt hugrekki með því að aflétta
öllu. Hann býst við því að mjög
margir verði í bænum um helgina.
„Það verður stuð, ekki spurning. En
þetta verður kannski ekki eins og
þegar aflétt var síðasta sumar. Fyrir
okkur á Röntgen eru þetta bara
tveir tímar til viðbótar sem opið
verður og við munum bara halda
okkar striki.“
Hann segir að það hafi verið líf-
legt skemmtanahald síðustu helgar í
bænum. Mesti munurinn verði að nú
verði nokkrir staðir opnir lengur
fram eftir. „Ég held að þessar aflétt-
ingar muni aðallega verða góðar
andlega fyrir fólk.“
Víkingar halda dansleik
Hrefna Sif Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá miðasölufyrirtæk-
inu Tix, segist finna fyrir jákvæðum
breytingum á miðasölumarkaðinum
í kjölfar þess að tilkynnt var um af-
léttingar.
„Miðasala hefur aukist jafnt og
þétt í vikunni og mér heyrist að það
séu mjög margir að fara að setja við-
burði af stað í sölu. Auk þess hefur
sala á viðburði sem búið var að til-
kynna tekið aftur við sér. Það er
mjög gott hljóð í viðburðahöldurum
og allt að fara á fulla ferð á ný,“ segir
hún.
Sem dæmi um að margir hugsa
sér nú gott til glóðarinnar mátti sjá á
samfélagsmiðlum í gær að Íslands-
meistaralið Víkings í knattspyrnu
hefur auglýst Víkingsgleði hinn 25.
mars nk. Er þar um að ræða áður
auglýst þorrablót sem sett verður í
nýjan búning. Ekki er ólíklegt að
fleiri íþróttafélög og félagasamtök
fylgi í kjölfarið á næstunni.
Hrefna segir jafnframt að við-
burðahaldarar virðist treysta því að
afléttingarnar nú séu komnar til að
vera. Síðustu mánuði hafi margir
veigrað sér við að fara af stað við
skipulagningu af ótta við að skellt
yrði í lás að nýju. „En nú eru þeir
orðnir öruggari með að það sé hægt
að halda viðburði,“ segir hún.
Óróapúls í miðborginni í nótt
- Mikil ánægja með afléttingu samkomutakmarkana - Skemmtistaðir mega nú hafa opið fram eftir
nóttu og búist er við miklu lífi í miðbænum í kvöld og nótt - Miðasala á viðburði hefur aukist í vikunni
Morgunblaðið/Eggert
Djammið Búast má við því að mikið líf verði í miðborginni í nótt. Á Bankastræti Club verður dansað fram eftir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vinsæll Laddi hefur bætt við auka-
sýningu í tilefni 75 ára afmælisins.
Aflétting allra sóttvarnaaðgerða
Forvitni Háskóladagurinn 2016.
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson