Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.02.2022, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.02.2022, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022 Laugavegi 178, 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | misty.is Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15 ER FERMING FRAMUNDAN Fáið fagleg ráð og mælingu fyrir stóra daginn Haldari 7.650,- Hlýralaus haldari 7.990,- Frábært úrval af vörum fyrir fermingardaginn á móður og dóttur. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ef nýtt tengivirki Landsnets og af- hendingarstaður raforku við Lækjar- tún, skammt frá Þjórsárbrú, hefðu verið komin í gagnið í óveðrinu í vik- unni hefði ekki komið til þess víðtæka straumleysis sem varð á Suðurlandi og í Vestmanna- eyjum. „Þetta undirstrikar mikilvægi þeirra framkvæmda sem við erum með um allt land til að auka afhending- aröryggi raf- orku,“ segir Guð- mundur Ingi Ásmundsson, for- stjóri Landsnets, en veðrið olli talsverðu tjóni á flutn- ingskerfinu enda með verri veðrum sem gengið hafa yfir. Forstjórinn er ánægður með hvernig gekk að mæta ógnunum í óveðrinu, þótt um 20 línur hafi slegið út og sumar oft. „Við höfum gott skipulag þegar við búum okkur undir óveður. Kom það í ljós núna og okkur gekk mjög vel að eiga við ástandið, miðað við aðstæður. Þar skiptir miklu máli að hafa þrautþjálfað starfsfólk auk þess sem við höfum gott samstarf við almannavarnir. Línurnar fara inn og út og þegar ekki eru skemmdir er mikilvægt að setja þær inn eins fljótt og mögulegt er. Það gekk mjög vel,“ segir Guðmund- ur. Hann bætir því við að raforkukerf- ið sjálft sé ekki að mæta sívaxandi kröfum um afhendingaröryggi og hluti af því sé það veikburða að það þoli illa það mikla rok sem var í óveðrinu í vikunni. Auka veðurþol mannvirkja Rifjar Guðmundur upp að Lands- net hafi unnið samkvæmt áætlun um styrkingu kerfisins. „Mikilvægast er að fjölga tengingum og vera alltaf með varaleiðir, ef eitthvað fer úr- skeiðis. Við þurfum einnig að upp- færa þol mannvirkja okkar gegn veðuráraun eins og búast má við hér á landi. Í þeim tilgangi höfum við ver- ið að byggja yfir spennistöðvar okkar og gera þær óháðar veðri. Við áætl- um að koma flestum sem eftir eru í hús á næstu tíu árum. Annar liður í því er að koma línum á lægri spennu sem mest í jarðstrengi. Þá þarf að byggja sterkari línur með stálmöstr- um í stað tréstaura sem brotna gjarn- an í óveðrum,“ segir Guðmundur. Veðrið var verst á vesturhluta landsins. Á Suðurlandi fóru út þrjár af þeim fjóru línum sem sjá lands- hlutanum fyrir raforku og því þurfti að skerða orkuafhendingu um tíma. Guðmundur segir að Landsnet hafi verið í miklum framkvæmdum á Suðurlandi. Verið sé að reisa nýja spennistöð og afhendingarstað raf- orku í Lækjartúni, skammt frá Þjórs- árbrú, sem komist í gagnið með vor- inu. Búið sé að leggja línu þaðan á Hellu í jarðstreng og sömuleiðis lín- una á milli Hellu og Hvolsvallar. „Ef tengivirkið hefði verið komið hefði ekki orðið neitt straumleysi á Suður- landi eða í Vestmannaeyjum,“ segir Guðmundur. Varaafl aukið Hann segir að áhersla fyrirtækis- ins sé að tryggja öryggi raforkukerf- isins. Það sé í samræmi við loftslags- markmið stjórnvalda. Eigi að síður þurfi að styrkja varaafl á nokkrum stöðum. Það hefur þegar verið gert með fimm vararafstöðvum sem sett- ar hafa verið upp á Snæfellsnesi, Dal- vík, Kópaskeri og í Vestmannaeyjum. Fimm stöðvar til viðbótar eru á leið- inni til landsins og verða þær notaðar til að styrkja varaafl á einhverjum af þessum stöðum og öðrum. Viðgerðum að ljúka Nú er viðgerðum lokið á flestum þeim línum sem biluðu í vikunni. Þó er byggðalínuhringurinn enn rofinn vegna brotinna staura í Vesturhópi í Húnavatnssýslu. Guðmundur segir að línumenn Landsnets séu í kapp- hlaupi við tímann að ljúka viðgerð áð- ur en næsti stormur gengur yfir svæðið. Gekk vel að eiga við óveðrið - Nýtt tengivirki Landsnets við Þjórsárbrú hefði komið í veg fyrir víðtækt straum- leysi í óveðrinu - Tekið í notkun í vor - Fimm nýjar vararafstöðvar keyptar Ljósmynd/Þóroddur Þóroddsson Gert við Unnið að viðgerð á Sultartangalínu 3 en hún bilaði í óveðrinu í hálendisbrúninni skammt frá Búrfellsstöð. Guðmundur Ingi Ásmundsson Herjólfur siglir ekkert til Landeyja- hafnar þessa dagana. Stafar það af brælum og of litlu dýpi í innsigling- unni. Í staðinn er siglt til Þorláks- hafnar, þegar það á annað borð er hægt. Veðurútlitið er ekki gott fyrir næstu daga. Hörður Orri Grettisson, fram- kvæmdastjóri Herjólfs, segir að þegar veður leyfi sé siglt inn í Land- eyjahöfn eftir flóðatöflum, það er að segja þegar flóð er en ekki fjara. Síð- ast hafi verið siglt þangað síðastlið- inn laugardag. Hann segir að marg- ar ferðir hafi einnig fallið niður í siglingum til Þorlákshafnar, til dæmis hafi ekkert verið siglt 7. og 8. febrúar. Mikilvægt samgöngutæki Dýpkunarskipið Dísa hefur unnið að dýpkun, þegar veður hefur leyft, og heldur áfram þegar lægðirnar hafa gengið yfir. Hörður segir ekki vitað hvernig staðan er núna í höfn- inni. Hugsanlegt sé að meiri sandur hafi borist inn í innsiglinguna. Það verði mælt þegar hægt verður. „Við erum óánægð með að þurfa að sigla til Þorlákshafnar en sýnum því skilning þegar ekki er fært í Landeyjahöfn. Okkur Eyjamönnum þykir verra ef ekki er hægt að sigla í góðu veðri vegna þess að dýpið er ekki nógu mikið. Þessi staða kemur fram í því að flutningur farþega hrapar, fólk er ekkert á ferðinni þeg- ar svona er, enda hefur ófærð líka verið á Hellisheiði og í Þrengslum,“ segir Hörður. Hann vekur athygli á að Herjólfur gegni einnig mikilvægu hlutverki fyrir atvinnulífið í Vestmannaeyjum. Fyrirtækin treysti á öflugar sam- göngur og því sé mikilvægt að sigla, ef þess er einhver kostur. helgi@mbl.is Ekki hægt að sigla til Landeyjahafnar - Ekki er gott veðurútlit fyrir allra næstu daga Morgunblaðið/Óskar Pétur Óveður Ferjan hefur verið bundin við bryggju heilu dagana. Hafrún Olgeirs- dóttir mun leiða lista sjálfstæð- ismanna í Norð- urþingi í sveitar- stjórnakosn- ingum í vor. Upp- stillingarnefnd Sjálfstæðisflokks- ins í Norðurþingi bar upp til sam- þykktar framboðslista flokksins vegna sveitarstjórnarkosninganna 2022 á félagsfundi á Húsavík í gær, en þar með er kominn fram fyrsti framboðslisti fyrir kosningarnar í vor. Hafrún var kjörin í sveitarstjórn Norðurþings fyrir E-listann, Lista samfélagsins, í sveitarstjórnarkosn- ingum 2018. Sveitarstjórnarfólk E- listans ákváð nú að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og skipa 1. og 4. sæti listans. Í síðustu kosningum fengu sjálfstæðismenn þrjá menn kjörna og E-listinn einn, en eins og fram hefur komið leitaði Kristján Þór Magnússon, sveitarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna, ekki endurkjörs. Meirihluta í sveitarstjórninni skipa nú Sjálfstæðisflokkurinn með þrjá fulltrúa og Vinstri græn og Samfylk- ing með sinn fulltrúann hvor. Hafrún efst í Norð- urþingi Hafrún Olgeirsdóttir - Sjálfstæðismenn kynna framboðslista Smitum af völdum Covid-19 heldur áfram að fjölga. Tilkynnt var í gær um 3.349 smit innanlands síðan á miðvikudag. Á landamærunum voru smitin 167 talsins. Aldrei hafa fleiri smit greinst innanlands. Í gær voru 12.944 í einangrun, 54 á sjúkrahúsi og tveir á gjörgæslu. Sjúkrahúsið á Akureyri leiðrétti í gær að andlát aldraðs manns um síðustu helgi hefði verið vegna Co- vid-19. Á vefnum covid.is segir að alls hafi 61 látist í faraldrinum. Veirusmit áfram í hæstu hæðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.