Morgunblaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022
Evrópa stendur frammi fyrir
mestu stríðsaðgerðum frá
seinna stríði og heimurinn allur
stendur frammi fyrir
ógn af stærðargráðu
sem hann hefur ekki
séð áratugum saman.
Innrás rússneska hers-
ins hefur valdið óhug
og verulegum áhyggj-
um víða um heim, ekki
síst hinn vestræna.
- - -
Ástæðan er vita-
skuld hættan á
verulegu mannfalli,
auk þess sem öryggi
og lífskjörum almenn-
ings langt út fyrir
Úkraínu er ógnað. En svo eru þeir til
sem missa ekki sjónar á aðalatrið-
unum þó að svona atburðir hristi
upp í hinum almenna manni sem átt-
ar sig ekki á því sem mikilvægast er.
- - -
John Kerry, fyrrverandi vonbiðill
demókrata um forsetaembættið
í Bandaríkjunum og núverandi sér-
stakur útsendari Bidens forseta í
loftslagsmálum, hefur miklar
áhyggjur af stríðsrekstri Rússa, en
þó ekki síst vegna áhrifa á loftslagið
og afleiðingar stríðsins á stefnu
Rússlands í loftslagsmálum.
- - -
Kerry bendir á að stríðinu muni
fylgja mikill útblástur gróð-
urhúsalofttegunda en ekki sé síður
áhyggjuefni að athyglin á loftslags-
málum verði minni en ella.
- - -
Og Kerry segist þrátt fyrir stríðið
„vona að Pútín forseti muni
hjálpa okkur að halda okkur við það
sem við þurfum að gera fyrir lofts-
lagið“.
- - -
Nú er bara að taka undir með út-
sendara Bidens og vona að
Pútín gleymi ekki loftslagsmarkmið-
unum, þá hlýtur allt að fara vel.
John Kerry
Útsendarinn
og aðalatriðin
STAKSTEINAR
Vladimír Pútín
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Maðurinn sem var skotinn af lög-
reglu á Egilsstöðum í ágúst sl. og var
ákærður fyrir að hafa skotið af byssu
sinni nokkrum sinnum, bæði inni í
húsi fyrrverandi manns sambýlis-
konu sinnar og víðar, játaði brot sín
að hluta en neitaði m.a. sök um til-
raun til manndáps. Þetta kom fram
við aðalmeðferð málsins fyrir Hér-
aðsdómi Austurlands í gær.
Líkt og mbl.is hefur greint frá er
maðurinn ákærður fyrir tilraun til
manndráps, húsbrot, eignarspjöll og
vopnalagabrot, hótun, brot gegn
barnaverndarlögum, brot gegn vald-
stjórn og hættubrot. Fram kemur í
ákæru málsins að hann hafi að kvöldi
26. ágúst ruðst heimildararlaust inn í
íbúðarhúsið í Dalseli, undir áhrifum
áfengis og vopnaður hlaðinni hagla-
byssu og hlaðinni skammbyssu, með
þeim ásetningi að bana húsráðanda.
Var húsráðandi ekki heima en mað-
urinn skaut þremur skotum úr
haglabyssunni innandyra og tveimur
úr skammbyssunni. Þá skaut hann
einnig tveimur skotum í hlið bifreið-
ar og framan á annan bíl, bæði með
haglabyssunni og skammbyssunni.
Maðurinn neitaði við aðalmeðferð-
ina að hafa hótað sambýliskonu
sinni. Hann neitaði ásetningi að hafa
ætlað að bana húsráðanda og neitaði
sök um tilraun til manndráps.
Neitaði sök um tilraun til manndráps
- Aðalmeðferð skotárásarmálsins
í Dalseli á Egilsstöðum fór fram í gær
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Egilsstaðir Frá aðalmeðferð í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra gær.
Áformað er að auka fiskeldi við Kal-
manstjörn á Reykjanesi og hefur
Benchmark Genetics Iceland lagt
fram umhverfismatsskýrslu um
verkefnið. Framleiðsla á laxi verður
aukin úr 190 tonnum, miðað við gild-
andi leyfi, í allt að 600 tonna há-
markslífmassa. Með auknu eldi á
kynbótalaxi verður hægt að fram-
leiða allt að 200 milljónir hrogna,
sem er tvöföldun á núverandi fram-
leiðslu í stöðinni.
Við þetta bætist hrognafram-
leiðsla BG Iceland í eldisstöðinni við
Vogavík, þannig að heildarfram-
leiðsla fyrirtækisins verður um 350
milljónir hrogna, ef allt gengur eftir.
BG Iceland sér öllum laxeldis-
stöðvum á landinu fyrir laxa-
hrognum og er eina fyrirtækið á Ís-
landi sem selur laxahrogn til
annarra landa, segir í skýrslunni.
Til að mæta aukinni framleiðslu
og hafa svigrúm til aukinnar vatns-
vinnslu í framtíðinni er gert ráð fyrir
að bora tvær vinnsluholur á lóð BG
Iceland, austan Nesvegar. Ætlunin
er að auka vinnslu á grunnvatni um
700 l/s. Sótt verður um leyfi til að
nýta allt að 1.500 l/s meðalrennsli á
ári af grunnvatni (jarðsjór og ísalt
vatn), að því er fram kemur í frum-
matsskýrslunni.
Rekur sex eldisstöðvar
Stofnfiskur hf. var stofnaður í
mars 1991 af Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafirði í þeim tilgangi að sjá um
kynbætur og rannsóknir á norsk-
ættuðum laxi sem hafði verið fluttur
til landsins 1984-87. Stofnfiskur sér-
hæfir sig í kynbótum á laxi og eldi á
hrognkelsum. Stofnfiskur er nú í
eigu fyrirtækisins Benchmark Hold-
ing og frá janúar 2021 hefur fyrir-
tækið starfað undir nafninu Bench-
mark Genetics Iceland (BG Iceland).
Á vegum BG Iceland eru starf-
ræktar sex eldisstöðvar og ein af
þeim er eldisstöðin Kalmanstjörn.
Þar hefur fyrirtækið haft starfsemi
síðan 1991, en Silfurlax þar á undan.
Í eldisstöðinni eru níu starfsmenn en
samtals starfa um 85 manns í eldis-
stöðvum og á skrifstofu BG Iceland.
Hyggjast tvöfalda
hrognaframleiðslu
- Aukning í fiskeldi
við Kalmanstjörn