Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.02.2022, Síða 11

Morgunblaðið - 25.02.2022, Síða 11
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Í kjölfar þess að Vladimir Pútín Rússlandsforseti lýsti stríði á hend- ur Úkraínu í fyrrinótt tóku áhrif innrásarinnar að hafa áhrif á verð- bréfamörkuðum víða um heim. Fyrst komu áhrifin fram á mörk- uðum í Asíu sem voru opnir. Féll t.d. Hang Seng-markaðurinn í Hong Kong um 3,2%. Svipuð áhrif komu fram á mörkuðum í Evrópu og þannig lækkaði DAX-vísitalan þýska um tæp 4%. Þyngsta höggið reið þó yfir í Kauphöllinni í Moskvu þar sem úrvalsvísitalan féll um þriðjung og mörg stórfyrirtæki tóku á sig tugprósenta högg. Urðu miklar vendingar á mörkuðum eftir því sem þvingunaraðgerðir vestur- veldanna tóku á sig mynd. S&P 500-vísitalan bandaríska hélt sömu- leiðis áfram að gefa eftir og hefur frá áramótum lækkað um 12%. Hagfræðingurinn Neal Shearing hjá Capital Economics sagði í sam- tali við New York Times að mark- aðurinn þyrfti að hafa sinn gang. Seðlabankar, sem alla jafna gætu brugðist við og dælt fjármagni út í hagkerfin til að örva þau vegna herpings af völdum stríðsátaka, væru nú með báðar hendur bundn- ar í viðleitni sinni til að herða pen- ingastjórnina í skugga mikillar verðbólgu. Íslenski markaðurinn rauður Íslenski hlutabréfamarkaðurinn var ekki eyland í þessu gjörninga- veðri. Úrvalsvísitalan lækkaði um tæp 5% í viðskiptum gærdagsins. 41 milljarður þurrkaðist út af mark- aðsvirði Marel, er það jafnvirði alls markaðsvirðis fasteignafélagsins Eikar. Bréf Icelandair Group lækk- uðu mest allra hér á landi eða um rúm 9%. Mörg flugfélög um heiminn urðu raunar fyrir þungu höggi á mörk- uðum í gær vegna ástandsins sem talið er að muni hafa áhrif á ferða- vilja fólks, ekki síst í Evrópu. Þann- ig lækkuðu t.d. hlutabréf Lufthansa um tæp 7% í gær og Wizz air, sem er með mikil umsvif í Austur-Evr- ópu lækkaði um 12,5%. Þyngstu höggi varð þó rússneska flugfélagið Aeroflot fyrir, en eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra Bret- lands, lýsti því yfir að flugfélaginu væri nú bannað a fljúga um loft- helgi landsins og þar með að lenda á breskum flugvöllum lækkaði fé- lagið um rúm 25% í Kauphöllinni í Moskvu. Þá lækkuðu bréf Finnair um rúm 11% en fyrirtækið stólar í sínu viðskiptamódeli mjög á yfir- flugsheimildir hjá Rússum. Olían í hæstu hæðum Orkumarkaðir hafa verið í deigl- unni vegna yfirvofandi stríðsátaka í Úkraínu. Skýrist það ekki síst af því að Rússar eru þriðji stærsti ol- íuútflytjandi heims og stærsti ga- sútflytjandi veraldar um leið. Hafa áhyggjur vaxið mjög af því að útflutningur frá Rússlandi muni raskast á komandi dögum og vik- um. Þannig hækkuðu framvirkir samningar um gas (Dutch TTF) í gærmorgun um tæp 70% en í lok dags nam lækkunin frá miðvikudeg- inum um 52%. Þá hækkaði Brent- Norðursjávarolían á tímabili um 9% og fór í 105 dollara á tunnuna. Hef- ur olían ekki reynst dýrari á mörk- uðum frá árinu 2014. Gaf verðið nokkuð eftir þegar leið á gærkvöld- ið og stóð þá tunnan í 98,5 doll- urum. Aukin verðbólga í kortunum Verðbólgan sem hefur verið í kastljósi flestra seðlabanka heims- ins síðustu mánuði hverfur allra síst af sviðinu við núverandi aðstæður. Bendir Financial Times m.a. á að ótti við truflanir á birgðakeðjum einskorðist ekki við olíu- og gasút- flutning frá Rússlandi. Þannig munu aðgerðir Rússa á Azov-hafi, þar sem mikilvægar stórskipahafnir þeirra og Úkraínumanna eru stað- settar, raska mjög flæði korns og stáls á alþjóðlega markaði. Birtast áhrifin af þessu m.a. í hækkandi verði á hrávörum á borð við hveiti og þannig skutust fram- virkir samningar með hveiti í Chi- cago upp um nærri 6% og er það til marks um það með hvaða hætti átökin munu hafa verðbólguhvetj- andi áhrif. Skjálfti á verðbréfamörkuðum - Rússneska rúblan í frjálsu falli - Úrvalsvísitalan íslenska lækkaði um 4,85% - Icelandair lækkaði um 9% - Olíuverð ekki verið hærra síðan 2014 - Framvirkir gassamningar hækkuðu um 70% um tíma AFP Miklar lækkanir Gríðarleg verðmæti hafa orðið að engu með því höggi sem árás Rússlands hefur í för með sér. FRÉTTIR 11Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022 Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 |eirvik.is | Opið virka daga10-18 – 3 tæki í einu og mögulegt að breyta samsetningu ryksugu eftir þörfum – Allt að 60 til120 mínútna samfelldur gangtími – Breiður ryksuguhaus sem hentar fyrir allar gerðir gólfefna Skaftryksuga frá Miele með Li-ion rafhlöðu Hagnaður Kviku banka meira en fjór- faldaðist á milli áranna 2020 og 2021. Hagnaðurinn í fyrra nam 10,7 millj- örðum króna samanborið við 2,3 millj- arða árið á undan. Þetta kemur fram í ársuppgjöri bankans. Heildareignir hans námu í lok tíma- bilsins rúmum 246 milljörðum króna en þær tvöfölduðust milli ára og voru 123 ma. kr. árið 2020. Kvika og TM runnu saman í eina sæng á liðnu ári. Eigið fé er nú 78,4 ma. kr. en það var 19,2 ma. kr. í lok árs 2020. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar án tryggingastarfsemi (CAR) var 33,8% í lok tímabilsins. Viðburðaríkt ár Jákvæð hrein virðisbreyting var 139 milljónir króna á árinu samanbor- ið við hreina virðisrýrnun upp á 317 milljónir árið á undan. Marinó Örn Tryggvason forstjóri segir í tilkynningunni að árið 2021 hafi verið viðburðaríkt. „Samruninn gekk vonum framar og betur hefur gengið að ná fjárhagslegum mark- miðum samrunans en væntingar stóðu til.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjármál Sameining TM, Lykils og Kviku gekk vel á árinu 2021. Kvika hagnaðist um 10,7 milljarða - Heildareignir fyrirtækisins 246 milljarðar króna 25. febrúar 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.47 Sterlingspund 169.18 Kanadadalur 98.1 Dönsk króna 18.982 Norsk króna 14.073 Sænsk króna 13.364 Svissn. franki 135.37 Japanskt jen 1.0813 SDR 174.56 Evra 141.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 174.1594 Gjaldmiðlar verða fyrir mismunandi áhrifum af völdum hernaðarbrölts Rússa í Úkraínu. Líkt og gjarnan áður, þegar óvissa eykst mikið, leita fjár- festar í dollar, langsterkasta alþjóðlega gjaldmiðilinn. Styrktist hann tals- vert gagnvart helstu myntum í gær. Komu þessar hreyfingar fram í gengi íslensku krónunnar gagnvart helstu myntum. Þannig veiktist krónan um 0,43% gagnvart evru en veik- ingin gagnvart dollar nam 1,52%. Enginn gjaldmiðill varð þó eins illa úti vegna aðgerða Pútíns en hans eigin. Rússneska rúblan beinlínis hrundi í verði og hefur aldrei verið jafn veik gagnvart dollarnum. Úkraínski gjaldmiðillinn hryvnia veiktist einnig og hefur reyndar verið á þeirri vegferð undanfarna daga eftir því sem átökin hafa tekið á sig skýrari mynd. Er myntin nú veikari en hún hún hefur verið frá því í ársbyrjun 2015. Dollarinn sýnir styrkleika sinn FJÁRFESTAR LEITA Í ÖRUGGA HÖFN

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.