Morgunblaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022
1053 9361 19133 30872 41089 48307 58229 69177
1116 9387 19603 31230 41444 48335 58543 69247
1171 9468 20551 31265 41659 48397 58610 69305
1754 9488 20816 31903 42054 48814 58640 69435
2327 9522 20836 31962 42213 48904 58954 69980
3006 9570 20906 31977 42369 49318 59376 70004
3280 9886 21014 32531 42661 50663 59642 70810
3836 10898 21233 33391 42975 50738 59963 70956
3972 11032 21663 33944 42978 50848 60788 71535
4349 11150 21729 34157 43148 50888 60855 71567
4372 11347 21737 34225 43299 50900 60874 72686
4833 11553 21802 35912 43496 51197 61368 72688
4855 11764 21980 35915 43627 51578 61498 72984
5040 11996 22276 36126 43878 52039 61774 73041
5058 12089 22773 36871 44050 52134 61870 73831
5305 12127 23807 37079 44133 52417 62162 73854
5383 12271 24113 37245 44220 52945 62598 73937
5603 12345 24837 37302 44383 53250 62745 74972
5653 12740 25118 37414 44444 53407 62905 75680
5772 13672 25536 37455 44455 53724 63739 75786
5929 14094 25759 37656 44482 53820 64482 76157
5935 14200 26074 37829 44546 53847 64883 76332
6103 14612 26132 38062 44635 53900 65438 76438
6594 14672 26973 38132 44740 53906 65535 76551
6683 15292 27177 38257 45066 54339 65709 76766
7192 15321 27499 38325 45258 54728 65939 76883
7275 15428 27557 38658 45318 55079 65969 76903
7299 15766 27792 39163 45704 55264 66201 77147
7301 15870 28517 39280 46009 55378 66712 77222
7383 16778 28659 39349 46097 55889 66886 77439
7545 16873 28731 39680 46307 55913 67107 77531
7674 16933 28909 39807 46950 56438 67203 77769
7770 17026 28977 39855 47020 56541 67304 77817
7773 17028 29188 40041 47239 56554 67569 77897
7792 17158 29766 40257 47247 56811 68061 78722
7855 17358 29902 40342 47299 56818 68063 78755
8487 17874 30117 40514 47383 56883 68121 79161
8768 18102 30218 40670 47699 56901 68384 79613
9010 18486 30474 40704 47792 57011 68387 79760
9086 18777 30712 40744 48026 57063 68650 79849
761 11121 21766 31993 41220 57233 64299 72485
2382 11147 22245 32146 43397 57480 65392 72702
3332 11203 22507 34051 43932 57947 66782 73923
5775 11751 22878 34827 45326 58028 67562 77737
6252 14495 23978 36028 46869 59750 68452 77843
6535 14538 24138 36193 47855 60095 69184 78006
6951 15322 25229 36339 49266 60112 69451 78245
8153 18523 26890 36739 49942 61916 70839 78655
9528 19364 27113 37233 49995 61985 70903 79798
9916 19784 28934 37235 53175 62198 71189
10156 19786 29768 37436 54349 62402 71274
10172 21357 29960 39071 55693 62696 72019
10364 21563 30705 39173 56106 63560 72158
Næstu útdrættir fara fram 3., 10., 17., 24. & 31. mars 2022
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
1348 33697 44550 51257 66174
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
364 2900 21921 37477 49827 64143
1407 5329 22531 39497 50015 70223
1941 7414 23256 47004 54808 75877
2673 10123 36596 47065 59978 76232
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
6 5 7 7 5
43. útdráttur 24. febrúar 2022
Þá sóttu hersveitir Rússa í Hvíta-
Rússlandi suður í átt að höfuðborg-
inni Kænugarði, og reyndu þær að
sækja í gegnum útilokunarsvæðið
við Tsjernóbyl-kjarnorkuverið, sem
hefur verið lokað fyrir mannaferðir
frá kjarnorkuslysinu árið 1986.
Kviknaði sá ótti að sprengingar við
verið kynnu að þyrla upp geislavirk-
um jarðvegi og dreifa um stærra
svæði. Eftir því sem leið á gærdag-
inn var ljóst að Rússar hefðu náð að
eyða megninu af flugher Úkraínu-
manna, og var búist við því að þeir
myndu sækja fast að Kænugarði og
umkringja borgina í nótt, með það að
markmiði að knésetja stjórnvöld.
Fyrstu tíðindi bentu til þess að
Hvít-Rússar tækju einnig þátt í
sókninni að Kænugarði, en Alexand-
er Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rúss-
lands, hafnaði þeim ásökunum í gær.
Ekki er þó víst hversu mikið hald er í
orðum hans, og hafa vesturveldin
ákveðið að beita landið refsiaðgerð-
um fyrir þátt þess í innrás Rússa.
Loka fyrir markaði
Vesturveldin hófu í gær að hrinda
í framkvæmd hótunum sínum um
viðskiptaþvinganir og aðrar refsiað-
gerðir gagnvart Rússum. Tékkland,
Lettland og Litháen tilkynntu um
daginn að þau myndu hætta að veita
Rússum vegabréfsáritanir til landa
sinna, og ákváðu Tékkar um leið að
loka ræðismannsskrifstofum Rússa í
landi sínu og kalla sína eigin ræð-
ismenn heim.
Joe Biden Bandaríkjaforseti til-
kynnti svo í gærkvöldi að Banda-
ríkjamenn og bandamenn þeirra í
Evrópu, Bretlandi, Kanada, Ástralíu
og Japan hefðu tekið höndum saman
um að koma í veg fyrir að Rússar
geti endurfjármagnað erlendar
skuldir sínar með gjaldmiðlum þátt-
tökuríkjanna.
Eigur tveggja stærstu banka
Rússlands verða frystar og Gazprom
og önnur rússnesk ríkisfyrirtæki
verða útilokuð frá lántöku á vest-
rænum mörkuðum. Þá munu vest-
urveldin banna útflutning á hátækni-
vörum til Rússlands og reyna þannig
að lama vopnaþróun og flugiðnað
Rússa.
„Þetta mun setja þungar byrðar á
efnahag Rússa, bæði núna strax og
yfir lengri tíma,“ sagði Biden. Ekki
var þó ráðist í að útiloka Rússa frá
alþjóðlega SWIFT-bankakerfinu,
þrátt fyrir að Úkraínumenn kölluðu
eftir því í gær. Sagði Biden að það
væri enn þá á borðinu, en að ríki
Evrópu væru ekki reiðubúin til þess.
Hann lagði hins vegar áherslu á að
þær aðgerðir sem kynntar voru í
gær væru enn harðari en útilokun
Rússa frá SWIFT, og sagði að enn
kæmi til greina að beita Pútín sjálfan
refsiaðgerðum.
Blóði drifinn einræðisherra
Boris Johnson, forsætisráðherra
Breta, tilkynnti í gær um umfangs-
miklar refsiaðgerðir, sem eiga að
bíta á hagkerfi Rússa næstu árin og
knésetja efnahag landsins. Kallaði
Johnson Pútín blóðidrifinn einræð-
isherra sem myndi „aldrei geta
þvegið blóð Úkraínu af höndum sér“.
Bretar frystu meðal annars allar
eigur rússneska VTB-bankans og
vopnaframleiðandans Rostec. Þá var
rússneska flugfélagið Aeroflot bann-
að frá breskri lofthelgi.
Breska þingið mun einnig setja ný
lög í næstu viku, sem ætlað er að
finna eigur rússneskra ólígarka í
Bretlandi og frysta þær. Njóta til-
lögurnar þverpólitísks stuðnings á
þinginu.
Liz Truss, utanríkisráðherra
Breta, kallaði Andrei Kelín, sendi-
herra Rússlands í Bretlandi, á teppið
til sín í gær. Stóð fundur þeirra yfir í
tíu mínútur, en þá rak Truss hann út
fyrir að „endurtaka lygar Rússa um
ástæður innrásarinnar“. Sagði Truss
að Kelín ætti að skammast sín, og að
trúverðugleiki Rússa væri horfinn.
AFP
Árásir Slökkviliðsmenn í bænum Tsjúgúiv reyna að slökkva eld í íbúðablokk sem Rússar réðust á í gær með eld-
flaugaárásum. Segjast Rússar bara hafa skotið á hernaðarmannvirki, en óbreyttir borgarar féllu í árásum þeirra.
Allt um sjávarútveg
Þúsundir manna mótmæltu innrás
Rússa í Úkraínu á götum helstu
borga Rússlands, þrátt fyrir að lög-
reglan væri með virkt eftirlit með
mótmælendum. Mættu nokkur þús-
und manns um kvöldið á Púshkín-
torgið í miðborg Moskvu, skammt
frá Kremlarmúrum og hrópuðu þar
slagorðið „Segjum nei við stríði!“
Var það einnig málað með úðabrúsa
á hlið við rússneska þinghúsið. Þá
mættu um þúsund manns til mót-
mæla í St. Pétursborg.
Lögreglan handtók rúmlega 1.700
manns sem tóku þátt í mótmælum í
53 borgum vítt og breitt um Rúss-
land. Þar af voru um 900 manns
handteknir í Moskvu og rúmlega 400
manns í St. Pétursborg. Þá bárust
jafnvel fregnir um að lögreglumenn
hefðu setið fyrir þekktum and-
ófsmönnum og handtekið þá er þeir
fóru út úr húsi.
Í yfirlýsingum rússneskra stjórn-
valda í gær sagði að Rússar styddu
stríðið og þörfina á að „frelsa Úkra-
ínu og hreinsa af nasistum.“ Fjöldi
þekktra Rússa sendi hins vegar frá
sér skilaboð á samfélagsmiðlum þar
sem stríðinu var mótmælt harðlega.
Alexei Navalní, helsti leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Rússlandi,
sem nú afplánar fangelsisdóm, lýsti
því yfir að hann væri mótfallinn
stríðinu, og að tilgangur þess væri að
fela hinn mikla þjófnað sem valdhaf-
ar í Kreml hefðu stundað á almenn-
um Rússum og beina athygli þeirra
frá öðrum vandamálum Rússlands.
Mótmælt í mörgum borgum
Fjölmenn mótmæli gegn stríðinu
voru einnig í nokkrum af helstu
borgum Evrópu og Norður-
Ameríku. Nokkur hundruð manns
komu saman við Brandenborg-
arhliðið í Berlín, sem lýst var í fána-
litum Úkraínu annað kvöldið í röð.
Mótmælendur í Prag gengu með
borða, þar sem Pútín var líkt við
Adolf Hitler og sungu söngva til
stuðnings frelsishetjum Úkraínu.
Sama var uppi á teningnum í Par-
ís, þar sem mótmælendur komu
saman við sendiráð Rússlands og
líktu innrásinni í Úkraínu við innrás
Hitlers í Pólland 1939.
1.700 handteknir vítt
og breitt um Rússland
- Stríðinu mótmælt um víða veröld - Pútín líkt við Hitler
AFP
Mótmæli gegn stríði Innrás Rússa í Úkraínu var mótmælt víða um heim.