Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.02.2022, Side 14

Morgunblaðið - 25.02.2022, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Leiðtogar Vestur- landa for- dæmdu hver um sig innrás Rússlands í Úkraínu. Það hlutu þeir að gera. Biden tönglaðist á því að varnarbandalagið NATÓ hefði aldrei verið samhentara en það er nú. Erfitt er að átta sig á hver viðmiðunin er. Og miðað við það sem áður hefur fram komið í sama dúr þá er þessi breyting sögð hafa orðið á NATÓ með komu Bidens sjálfs inn í Hvíta húsið og brottför Trumps forvera hans. Það er satt og rétt að Trump ýtti hressilega við leiðtogum NATÓ í Evrópu. Og það var tilefni til. Evrópuríkin í NATÓ höfðu komið sér hjá að standa í skilum með sinn hluta af sameig- inlegum framlögum til banda- lagsins og treyst á að Bandarík- in létu það yfir sig ganga eins og þau voru vön. En löngu fyrir Trump höfðu Bandaríkin gert ítrekaðar athugasemdir um að hvað sem liði þeim fjármunum, sem Evrópuríkin veittu þar fyr- ir utan í varnarviðbúnað, hvert hjá sér, þá hefði lítt eða ekki verið horft til þess hvernig þau framlög kæmu varnarbandalag- inu og sameiginlegum hags- munum þess til góða. Allar þessar athugasemdir voru gagnlegar og áttu rétt á sér. Pútín forseti safnaði saman miklu liði að landamærunum með Úkraínu. Hann tók þó jafn- an fram að sú mikla aðgerð væri alls ekki merki um yfirvofandi árás. Það fer þó ekki á milli mála að ákvörðunin ein og und- irbúningur liðsflutninganna var stórvirki sem hlaut að hafa mik- inn kostnað í för með sér. Það sem síðar gerðist sýnir og sann- ar að innrásin var vel undirbúin og á ekki rót í því að forseti Rússlands taldi að samtöl sín við leiðtoga Evrópu uppfylltu ekki ófrávíkjanlegar kröfur varðandi hugsanlega aðild Úkraínu að Nató. Þær kröfur þýða að Rússland eigi lokaorðið um slíka aðild. Mjög er rætt af hálfu Pútíns forseta um meint svik eftirmanna fyrrverandi leiðtoga vesturvelda, sem gáfu, að hans mati, fyrirheit sem Rússar hafi treyst á, sem þýddu að NATÓ myndi ekki þenjast út umfram stækkun sem fylgdi sameiningu Þýskalands. Það sem síðar varð ógnaði öryggi Rússlands, og því meir sem lengra væri gengið. Aðgerðir Pútíns í Georgíu og síðar með beinni og óbeinni landtöku í Úkraínu voru ekki réttlættar með útþenslu Atl- antshafsbandalagsins. Þá var vísað til þess að forystumenn ESB, með beinum og óbeinum stuðningi Obama, þá forseta, hafi í raun staðið fyrir innan- landsbyltingu í Úkraínu gegn lögmætum leiðtog- um landsins. Því verður ekki neitað að þar voru undir- mál og sum heldur ólánleg, svo ekki sé meira sagt. En Pút- ín réttlætti ákvörð- un sína um að færa Krímskaga aftur undir Kreml með því að skaginn hefði aldrei farið. Hann hefði öldum saman heyrt undir Rússland og seinast lengst ver- ið hluti af Sovétríkjunum. Nikíta Krústsjov færði Krím- skagann undir Úkraínu, eins og til hátíðarbrigða, enda sá hann ekki að í því fælist nein breyting á því hverjir hefðu lokaorðið um hann. Eftir þessar aðgerðir var gripið til „mjög umfangsmikilla efnahagsþvingana“ gegn Rúss- um í þeim tilgangi að knýja þá til að „skila Krím“ og öðru því sem þeir sölsuðu til sín í sömu ferð. Því er haldið fram að þær „þungbæru efnahagsþvinga- nir“, sem þá var gripið til, standi enn! En þá gætu menn spurt sig, hvernig það mátti vera að ráðandi ríki ESB, Þýskaland, gat staðið í sívax- andi stórviðskiptum við Rúss- land og nú síðast með því að stofna til risasamnings á milli ríkjanna um gassölu og flutning þess, sem hafði mikla þýðingu fyrir bæði löndin. Margir hafa spurt sig hversu haldgóð tæki efnahagslegar refsiaðgerðir hafi reynst í gegn- um tíðina. Margfalt þungbærari refsiaðgerðir, eins og í dæmum Norður-Kóreu og Íran, hafa reynst hægfara aðgerðir, svo ekki sé meira sagt. Átta ára refsiaðgerðir gagnvart Rússum vegna gripdeildar í Úkraínu hafa engu skilað og virðast að- eins í gildi fyrir „sum“ ríki eftir hentugleikum þeirra og Rússa, og það ríkir löngum mikil sam- staða um túlkun þeirra hentug- leika. Við vitum að Krímskaginn hafði verið í þrjár aldir undir Rússum þar til sovéski aðalrit- arinn hressti upp á gleðskap þar suður frá. Liggur fyrir að „refsiaðgerðirnar miklu“, sem gripið var til, hafa þegar skaðað Ísland svo með nokkrum ólík- indum er, en það land hafði þó ekkert með að gera að skaginn var gefinn og tekinn aftur þegar gleðin rann af Rússum. Við hljótum öll að hafa ríku- lega samúð með Úkraínumönn- um. En látalæti í þeim efnum munu ekki gera þeim neitt gagn. Við sáum öll gagnsemina af því þegar evrópsku leiðtog- anir voru settir niður við lang- borð Pútíns svo þeir gætu kall- ast á yfir það. Það sem við hin fréttum af þeim hrópum virðist hvergi hafa komið nærri því sem síðan hefur gerst í Úkra- ínu, íbúum hennar til ríkulegrar bölvunar og óhamingju sem lengi munu standa. Samúðin með Úkra- ínu er ekki uppgerð, en gagn „aðgerð- anna“ sem fylgja er minna en ekkert} Efnahagsaðgerðaleysi Í fyrrinótt raungerðist það sem við höf- um óttast undanfarnar vikur. Al- þjóðalög hafa verið brotin, öryggi Evrópu er ógnað með innrás Rússa inn í Úkraínu og almennir borgarar liggja í valnum. Með innrásinni hafa rússnesk stjórnvöld einnig brotið Búdapest-samkomu- lagið frá 1994 um að virða landamæri Úkraínu og beita það ríki aldrei hervaldi nema í sjálfs- vörn. Rússar eru líka að brjóta gegn sam- komulagi sem gert var um vopnahlé eftir átökin á Krímskaga. Allt þetta gera rússnesk stjórnvöld án nokkurra röksemda og eðlilega óttast önnur ríki að Rússar líti annað ríkja- samkomulag jafn léttvægum augum. En þessi aðgerð er alls ekki léttvæg heldur kolólögleg og við því þarf að bregðast af fullri hörku enda upplifum við nú mestu ógn við öryggi Evrópu frá seinni heimsstyrjöld. NATÓ- og Evrópusambands- ríkin standa frammi fyrir stærstu áskorun sinni og það sem mun ráða úrslitum er samstaða þessara ríkja, sam- staða fullvalda lýðræðisríkja gegn valdabrölti og árásum Rússlandshers Pútíns. Samstaðan gerir okkur sterkari, minnsta sprunga í þeirri samstöðu veikir okkur og þeim mun meiri verður hættan um allan hinn vestræna heim. Það er afar mikilvægt að íslensk stjórnvöld hafi líkt og önnur Evrópuríki afdráttarlaust fordæmt innrás Rússa og tilkynnt að Ísland muni veita fjármuni til mannúðar- aðstoðar í Úkraínu. Við í Samfylkingunni styðjum þessar fordæmingar og teljum við rétt að Ísland skipi sér ein- dregið í sveit með vestrænum þjóðum sem og að ráða- menn okkar tali hátt og skýrt á alþjóðavett- vangi. Því rödd okkar heyrist þrátt fyrir að við séum lítið ríki og fámennt. Okkar afstaða skiptir máli. Það er því miður ljóst að viðbrögð vest- rænna ríkja þurfa að vera harðari en þegar hefur verið boðað, því það er greinilegt að áhrifin duga ekki gegn stríðsviljugum Rúss- um. Við erum herlaus þjóð, sem betur fer, og því kemur það í okkar hlut að leita annarra leiða til að veita Úkraínu stuðning en að taka þátt í stríðsrekstri. Það er nauðsynlegt að smáríki eins og Ís- land sýni samstöðu og beiti öllum tiltækum ráðum til þess að styðja við úkraínskan al- menning sem nú óttast um líf sitt og framtíð lands síns. Líklegt má teljast að saklausir borgarar komi til með að streyma yfir landa- mæri Úkraínu enda eru þau ekki örugg þar í landi. Því er það einnig ánægjulegt að stjórnvöld hafi brugðist við kalli okkar í Samfylkingunni í gærmorgun um að taka Úkraínu þegar í stað af lista hinna svokölluðu öruggu ríkja. Við getum hvort tveggja veitt stuðning með sam- stöðu okkar sem og með því að veita úkraínskum al- menningi skjól hér á landi á meðan á innrás stendur. Það er okkar skylda sem þjóð í samfélagi þjóða. Við eigum að opna faðminn og veita hér þann stuðning sem við getum, mannúð og skjól. Helga Vala Helgadóttir Pistill Herlaus þjóð býður aðstoð Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingar. helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is O fbeldisbrotum þar sem um líkamsárásir er að ræða virðist hafa fjölgað veru- lega á umliðnum árum og voru 1.808 slík brot skráð í kerfi lög- reglunnar á seinasta ári samanborið við 1.655 brot á árinu á undan. Til samanburðar voru brotin 1.102 á árinu 2012 og voru því skráð ofbeld- isbrot 64% fleiri í fyrra en fyrir ára- tug. Sérstaka at- hygli vekur að skráðum ofbeld- isbrotum þar sem grunaðir voru yngri en 18 ára hefur fjölgað enn örar á sein- ustu árum. Þessar upp- lýsingar má lesa í skriflegu svari dómsmálaráð- herra á Alþingi við fyrirspurn frá Evu Sjöfn Helgadóttur, varaþing- manni Pírata, sem óskaði upplýs- inga um hversu mörg mál hafa verið skráð í málaskrá lögreglu á seinustu tíu árum þar sem grunur var um brot gegn 217. og 218. greinum al- mennra hegningarlaga. Umrædd ákvæði í refsilöggjöfinni eru stund- um nefnd líkamsárásarákvæði lag- anna. 170 skráð brot einstaklinga yngri en 18 ára í fyrra Af yfirliti yfir fjölda brota þar sem um yngri einstaklinga en 18 ára er að ræða sem varða við 217. og 218. grein hegningarlaganna má sjá að á árinu 2012 var skráð 71 brot, þau voru 98 á árinu 2016, 141 á árinu 2020 og fóru upp í 170 brot á sein- asta ári eða 139% fleiri en fyrir ára- tug. Meirihluti skráðra ofbeldis- brota sem börn eða ungmenni voru grunuð um í fyrra eða alls 126 brot vörðuðu við 217. grein hegning- arlaganna, sem kveður á um refs- ingar þegar um minni háttar líkams- árásir er að ræða en 44 brot voru talin á 218. grein hegningarlaganna, sem getur varðað allt að 16 ára fang- elsi ef um stórfelldar líkamsmeið- ingar er að ræða. 85,5% fjölgun á fimm árum Í svarinu er einnig birt yfirlit yfir fjölda þeirra einstaklinga yngri en 18 ára sem grunaðir eru um of- beldisbrot og kemur fram að þeim hefur fjölgað stórlega á umliðnum áratug. Á árinu 2012 voru alls skráð- ir 78 einstaklingar yngri en 18 ára sem grunaðir voru um ofbeldisbrot gegn umræddum greinum hegning- arlaganna. Þeir voru 137 árið 2017, 200 á árinu 2020 og hafði svo fjölgað í 219 í fyrra. Er fjölgunin 85,5% á undanförnum fimm árum. Tekið er fram í svari ráðuneyt- isin sem byggt er á upplýsingum embættis ríkislögreglustjóra, að fjölgunina megi líklega að hluta til skýra af breytingum á verklagi þeg- ar um er að ræða skráningu mála sem varða heimilisofbeldi. Eva Sjöfn segir þessar upplýs- ingar mjög athyglisverðar. „Ástæð- an fyrir því að ég spurði að þessu var sú að ég vinn í barnaverndarkerfinu og mér finnst eins og það sé að aukast að einstaklingar séu beittir alvarlegu ofbeldi og að börn eigi þar í hlut,“ segir hún og bendir á að börn séu í auknum mæli farin að ganga með hnífa á sér og einnig sé mikið um að þau taki upp slagsmál og setji á samfélagsmiðla. „Það er greinilegt að ofbeldi er bara að aukast en ekki minnka og það er grafalvarlegt mál,“ segir hún. Lyfta þarf grettistaki Eva Sjöfn segir hræðilegt að sjá að ofbeldisbrotum í heildina fer einnig fjölgandi. ,,Það er greinilega mjög þarft að við íhugum hvernig samfélagi við viljum búa í og hvernig við getum aðstoðað fólk sem beitir ofbeldi,“ segir hún. „Ég vil að við hugum betur að þeim sem beita of- beldi og virkilega hjálpum þeim með því að beita aðferðum sem eru gagn- reyndar. Við viljum ekki búa í sam- félagi þar sem unga fólkið okkar tel- ur sig þurfa að ganga með vopn á sér til að vera örugg. Nú þarf greinilega að lyfta grettistaki í þessum mála- flokki,“ segir hún. Eva Sjöfn kveðst einnig hafa miklar áhyggjur af börnum sem beita alvarlegu ofbeldi og fara mögulega á sakaskrá vegna þess og upplifa þá að möguleikar þeirra í líf- inu séu skertir. Mikil fjölgun ofbeld- isbrota ungmenna Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lögregla Skv. afbrotatölum 2021 voru tilkynningar um ofbeldisbrot 9% fleiri en síðustu þrjú ár á undan. Eva Sjöfn Helgadóttir Skráð ofbeldisbrot í málaskrá lögreglu* Brot yngri en 18 ára 2012-2021Fjöldi skráðra brota alls 2,0 1,5 1,0 0,5 0 250 200 150 100 50 0 Fjöldi brota yngri en 18 ára Fjöldi einstaklinga yngri en 18 ára á skrá lögreglu v. ofbeldisbrota Heimild: Svar dómsmálaráðherra/ upplýsingar ríkislögreglustjóra *Brot gegn 217. og 218. gr. alm. hegningarlaga '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 1,1 1,2 1,2 1,6 1,5 1,6 1,7 1,6 1,7 1,8 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 '21 2012-2021, þúsundir 2012-2021 219 71 78 157 106 93 122 170

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.