Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 25.02.2022, Page 20

Morgunblaðið - 25.02.2022, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022 ✝ Sigurjón Björn Pálma- son fæddist á Sauðárkróki 25. maí 1958. Hann lést á líknardeild LSH 11. febrúar 2022. Foreldrar hans voru hjónin Pálmi Anton Runólfsson, f. 24.7. 1920, d. 29.1. 2012, og Anna Steinunn Eiríksdóttir, f. 18.3. 1934, d. 6.10. 2015. Syst- ur Sigurjóns Björns eru Fróðný Guðfinna, d. 2017, María Guðbjörg, Heiður og Sigríður Guðrún. Uppeld- issystir þeirra er Ester Gunn- arsdóttir. Sigurjón kvæntist Hjördísi Gísladóttur 1987, þau slitu síð- ar samvistir. Synir þeirra eru tveir drengir, andvana fæddir 30.10. 1986, Ágúst, f. 17.1. 1988, og Pálmi, f. 17.12. 1988. Sigurjón giftist Kolbrúnu Reinholdsdóttur 5.10. 2019. Börn hennar eru Hjörtur, f. skap, einkum mjólkurfram- leiðslu, en einnig var þar um tíma rekið loðdýrabú. Eins var þar stunduð hrossarækt, eins og siður er í því héraði. Sig- urjón slasaðist við bústörf í maí 1997, og upp úr því lagð- ist búskapur í Hjarðarhaga smám saman af, utan hrossa- halds. Eftir að hafa náð bata sótti hann störf utan heimilis, við smíðar, brúarsmíði, ganga- gerð og verkstjórn; m.a. hjá Arnarfelli ehf., en síðar hjá Kráki ehf., Ístaki hf. og loks BMO í Noregi. Hann flutti í Mosfellsbæ árið 2010 og bjuggu þau Kolbrún í Klapp- arhlíð 26. Noregsvinnan var vaktavinna og nýtti hann sér góð frí í að byggja hús fyrir þau Kolbrúnu í Leirvogstungu 4, en þau fluttu þangað í ágúst 2017. Sigurjón hafði gaman af söng og söng hann með karla- kórnum Heimi í mörg ár er hann bjó í Hjarðarhaga, einn- ig greip hann í bridge þegar tækifæri gafst. Útför Sig- urjóns fer fram frá Graf- arvogskirkju í dag, 25. febr- úar 2022, klukkan 13 og verður henni streymt á https://streyma.is/ Vikran hlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat/ 23.2. 1991, Harpa, f. 2.10. 1993, og Bengta Kristín, f. 17.3. 2003. Dóttir Hjartar með Odd- nýju Blöndal Ragnarsdóttur er Helga Dís, f. 30.8. 2014, þau slitu samvistir, sam- býliskona hans er Bylgja Sif Jóns- dóttir. Sambýlis- maður Hörpu er Dúi Grímur Sigurðsson og dóttir þeirra er Áslaug Hilma, f. 23.2. 2021, dætur Dúa af fyrra sambandi eru Aðalheiður Karen og Jó- hanna Kristín. Sigurjón ólst upp í Hjarð- arhaga í Blönduhlíð í Skaga- firði. Hann nam búfræði við Hólaskóla og lauk þaðan námi árið 1977. Hann og Hjördís hófu búskap í Hjarðarhaga 1986. Í fyrstu deildu þau búi með Pálma og Önnu en voru að fullu tekin við fljótlega upp úr 1990. Í Hjarðarhaga var lögð stund á hefðbundinn bú- Ef ég þekki Sigurjón Björn rétt þá hefði hann ekki viljað að ég færi of fögrum orðum um sig. Hann var nefnilega alltaf á því að maður ætti ekki að sleikja fólk of mikið upp og sérstaklega ekki fólk sem ætti það ekki skilið. Fólk þyrfti að vinna fyrir hrósinu. Ég held að hann hafi ekki áttað sig á því að það gerði hann svo sann- arlega. Hann vann sér inn fyrir öllum fögrum orðum sem hafa farið um hann og meira en það. Sigurjón var nefnilega einstakur maður. Hann var með gífurlega stórt hjarta og bar umhyggju fyr- ir öllu, hvort sem það voru menn, dýr eða plöntur. Ótrúlegt hvernig honum tókst að gæða steindauðu plönturnar hennar mömmu lífi. Einmitt vegna þessa var hann ekki lengi að ná mér á sitt band. Það gerði hann á mjög einfaldan máta. Hann skar ristaða brauðið mitt niður í teninga, kenndi mér að tefla og á lífið í sveitinni. Hann var mikill hugsuður og las óhemjumikið. Leitaði ég vegna þessa alltaf til hans til þess að fá uppbyggilega gagnrýni á öllum mínum verkum. Verður því ein- staklega erfitt að skila þessu inn án þess að hafa fengið hann til þess að prófarkalesa. Hann hafði nefnilega sterkar skoðanir á öllu og vildi allt gera fyrir litla mann- inn. Lét stjórnmálamenn sko al- veg heyra það jafnvel þó að þeir væru hans bestu vinir og gagn- rýndi borgarbúana endalaust fyr- ir að flokka ekki ruslið sitt nógu mikið. Ekki misskilja mig samt, Sigurjón var mjög skemmtilegur maður. Alltaf mikið hlegið í kringum hann enda lítið annað hægt í kringum jafn orðheppinn snilling og hann. Hann var líka einstaklega uppátækjasamur og lenti maður í hinum ýmsu ævin- týrum með honum sem öðrum hefði hreinlega aldrei dottið í hug. Það var alltaf partí í kring- um hann enda kenndi hann mér að það hefur ekkert upp á sig að vera í fýlu. Hann kenndi mér líka að þótt það sé erfitt þá verður maður að læra að sleppa takinu og lifa smá. Ég verð heiminum óendanlega þakklát fyrir að hafa fært mér Sjonna minn og fyrir að hafa fengið að hafa hann í lífi mínu í 13 ár þótt ég hefði viljað að sá tími væri lengri. Hann náði þó að kenna mér ófáar lexíurnar sem munu fylgja mér áfram í lífinu. Elsku Sjonni minn, þótt ég sé kannski ekki blóðskyld þér verð ég samt alltaf dóttir þín. Bengta Kristín. Kæri bróðir, þú varst á svo margan hátt einstakur maður. Hafðir harða skel en stutt í mýkt- ina, hlýjuna og gamansemina, varst harður að utan en mjúkur að innan. Í æsku ólst þú upp með okkur fimm systrum þínum og varst prinsinn á heimilinu og fékkst ýmis forréttindi út á það, t.d. að skreppa með pabba á ná- grannabæina í kaffispjall og svo slappst þú við fjósverkin en þeim urðum við systur að sinna með mömmu. Þú varst hrókur alls fagnaðar, hafðir gaman af sög- um, kveðskap og söng og söngst með karlakórnum Heimi í nokk- ur ár meðan þú varst bóndi í Hjarðarhaga. Við þig var hægt að ræða um heima og geima og hafðir þú ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og varst ekkert að liggja á þeim. Þú varst sá sem kom og hjálpaði ef eitt- hvað var að og gast lagað allt, alið upp synina og verið þeim félagi og vinur, leikið við barnabörnin og passað upp á að vera þar afi númer eitt. Þú varst gleðinnar maður og áttir marga trausta og góða vini og kunningja um allt land, stóran frændgarð sem þú ræktaðir og frábæra fjölskyldu sem stóð með þér í blíðu og stríðu. Sigurjón Björn lést eftir erfið veikindi en nánast allt til enda var lífskrafturinn ótrúlegur. Hann vildi njóta þess að vera með sínum nánustu eins lengi og unnt var en enginn veit sína æv- ina fyrr en öll er. Lífsins vegur er oft skrýtinn og óútreiknanlegur en minninguna um einstakan bróður, vin og félaga eigum við um ókomin ár. Að endingu vil ég kveðja þig með söngkveðju Jóa í Stapa. Við sungum um sólskin og yndi um söngfugl, er kvakaði í mó um fannhvíta fljúgandi svani um friðinn í heiðanna ró. Um lindina blikandi bjarta um blóm, er í moldinni grær. Það færði okkur fögnuð í hjarta það flutti okkur sumrinu nær. (Jói í stapa) Til lífs og til gleði. Þín systir, María Guðbjörg. Elsku Sigurjón stóri frændi minn er lagður í sína hinstu för eftir erfið veikindi. Er ég rita þessi orð koma margar minningar fram í hugann, þá sér í lagi frá heimsóknum í Hjarðarhaga þegar ég var barn og fram á unglingsár. Skýr er minning mín af stóra frænda sitj- andi við endann á eldhúsborðinu, skóflandi 2-3 skeiðum af sykri í kaffið svo það yrði drykkjarhæft. Hin síðari ár er eftirminnileg heimsókn frænda og Kollu hans á Þjóðhátíð 2015. Þá helgi var gert vel við sig í mat og drykk hvert kvöld áður en skundað var í Herj- ólfsdal. Í september síðastliðnum var svo sérstaklega ánægjulegt að Sigurjón og Kolla voru við- stödd brúðkaup okkar Rannveig- ar í blíðskaparveðri í Vestmanna- eyjum. Þó svo að samverustundirnar væru ekki alltaf margar ár hvert og oft hafi liðið langt á milli var alltaf jafn yndislegt að hitta frænda og ræða við hann um menn og málefni. Nú höfum við tekið okkar síðasta spjall í bili en þið pabbi getið tekið upp þráðinn hinum megin. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku Kolla, Ágúst, Pálmi, Hjörtur, Harpa, Bengta og fjöl- skyldur. Guð gefi ykkur góðan styrk. Góður drengur er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Minn- ing hans lifir í hjörtum okkar. Pálmi Harðarson. Sigurjón Björn Pálmason, fyrrverandi mágur minn, er fall- inn frá, langt fyrir aldur fram. Ég vil minnast þessa sérstaka manns og þakka einstaklega ánægjuleg- an félagsskap og árangursríkt samstarf við viðhaldsverkefni og brúarbyggingar í Kerlingarfjöll- um. Sigurjón var mikill verkmaður og gekk í öll verk, auðveld sem erfið. Á mínum vettvangi voru þau mörg og fjölbreytt verkefnin sem við leystum saman. Það breytti ekki öllu hvert verkefnið var, verkkunnátta Sig- urjóns, ósérhlífni og dugnaður einfaldaði og stytti verktímann. Í hans huga var lítið um flækjustig. Eitt sinn að vori þurftum við að gera við bilaða rafmagnsloftlínu, einn vírinn hafði losnað af fest- ingu og var komin tenging til jarðar. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem ég var á leið upp í staur í þessari línu, en þegar að staurnum var komið leit Sigur- jón, sem alltaf hafði gaman af æv- intýrum, upp og sagði: „Nú skal ég.“ Hann spennti á sig skóna og klifraði upp, viðgerðin gekk brös- uglega og í miðju kafi varð honum á að færa annan fótinn þannig að skórinn losnaði og datt niður. Það breytti ekki miklu, verkið var klárað á einni og svo las hann sig niður með handafli, enda maður- inn rammur að afli og með stærstu hendur sem ég hef á æv- inni séð. Sumarið 2019 ákváðum við Kerlingarfjallateymið að byggja brú yfir Blákvísl, síðasta óbrúaða vatnsfallið á leiðinni þangað. Þar hafði reyndar verið bráðabirgða- ræsi sumrin á undan, en þar sem þau voru tekin upp að vetri, þá voru vetrarferðirnar jafn erfiðar og áin oft mikill farartálmi. Við gengum í verkið af bjartsýni. Þegar við höfðum hafið verkið og náð að meta umfangið var hringt í vin og ég held að það sé ekki of- sagt að Sigurjón hafi dregið okk- ur að landi í þessu stóra verki. Ég gleðst yfir mörgum minn- ingum frá samveru við Sigurjón, bæði í starfi og ekki síður ómet- anlegum samverustundum nú á síðustu misserum og mánuðum, við smelltum okkur gjarnan í bakaríið, keyptum sneið og tók- um tal saman. Sigurjón tók örlögum sínum af æðruleysi, hann horfði fram á veginn til síðasta dags. Megi minningin um góðan dreng lifa, við Fríða vottum að- standendum og vinum hans okk- ar samúð. Páll Gíslason. Sigurjón Björn Pálmason Magnús Einar Sigurðsson, fyrsti formaður Félags bókagerðarmanna lést 1. febrúar sl. í Svíþjóð. Þetta er mikil harmafregn í okk- ar hópi og okkur finnst við hafa misst kæran vin og félaga, allt of fljótt. Magnús var mikill félags- málamaður strax frá unga aldri og byrjaði sína verkalýðsbaráttu í iðnnemahreyfingunni og varð síðan fljótlega formaður í sínu félagi og síðar formaður INSÍ. Magnús varð fljótt áhrifamaður innan verkalýðshreyfingarinnar eða um það leyti sem hann út- skrifast sem prentsveinn 1972. Hann var þá strax kosinn í stjórn síns stéttarfélags og það mun hafa verið á þessum árum, sem vegir okkar Magnúsar fóru að skarast. Hann tók fljótlega forystu í Prentarafélaginu eftir að stjórnin hafði þríklofnað vegna ágreinings um baráttuað- ferðir. Magnús var alltaf mikill sameiningarmaður innan stétt- arinnar og það var ekki langt undan að það gerðist eða árið 1980 að Félag bókagerðarmanna var stofnað þar sem hann var kosinn formaður og ég ritari. Magnús Einar Sigurðsson ✝ Magnús Einar Sigurðsson fæddist 24. apríl 1949. Hann lést 1. febrúar 2022. Útför hans fór fram 24. febrúar 2022. Eftir það urðum við samstarfsmenn á skrifstofu félagsins í tæpan áratug. Það er margs að minn- ast frá þessum ár- um. Við áttum mjög gott með samstarf og skoðanir okkar voru svipaðar í mörgum málum. Hann var alltaf svo ljúfur í lund, hann Maggi, að manni leið vel í návist hans. Honum gekk líka vel að halda hópnum saman þótt iðn- greinarnar væru fleiri en ein. Helstu áhugamál hans voru mörg en þar bar hæst kjara- málin, að jafna launin en kven- frelsismálin voru honum líka of- arlega í huga og hann skrifaði greinar í málgagn okkar um hvernig konur væru beittar of- beldi úti um allan heim. Í fræðslumálunum lét hann líka til sín taka og beitti sér fyrir rétt- indanámskeiðum í bókbandi og setningu og að þessu unnum við mikið saman. Þetta var nýjung í menntunarmálum og skilyrði var að hafa unnið sex ár í iðn- inni, sem aðstoðarmaður. Þessi námskeið voru í anda laga um fullorðinsfræðslu og líka jafn- réttislaga, þar eð hér áttu í hlut nær eingöngu konur. Þá starfaði hann mikið að vinnuverndarmál- um í okkar greinum og unnum við þar líka saman í fyrstu ör- yggisnefnd sem stofnuð var samkvæmt nýju Vinnuverndar- lögunum frá maí 1980. Þetta varð m.a. til þess að teknar voru upp nýjar heilsusamlegri aðferð- ir í prentun, en norræn sam- vinna átti hér mikinn hlut að máli. En það sem átti hug hans allan var málgagnið okkar Prentarinn. Hann var ritstjóri hans allan tímann sem hann vann hjá Félagi bókagerðar- manna 1981-1988 og lagði mik- inn metnað í að hafa hann sem fjölbreyttastan og best útlítandi. Á þessum tíma var tæknin þann- ig að hann gat unnið við um- brotið á skrifstofunni og það var ótrúleg elja sem hann sýndi í að framkvæma það starf ásamt allri annari vinnu sem þurfti að sinna. En þetta var skemmti- legt, það sá maður á honum. Magnús Einar Sigurðsson var menningarlega sinnaður maður, hafði gaman að ljóðum og orti sjálfur. Það sást líka á blaðinu okkar Prentaranum. Þar birti hann oft myndir á kápu blaðsins eftir vin sinn Sigurð Þóri list- málara og þeir gáfu saman út ljóðabók 1971. Um leið og við Ragna sendum Kicki Borhamm- ar konu hans og allri fjölskyld- unni innilegar samúðarkveðjur vil ég birta ljóð úr bókinni hans sem heitir: Barátta Áfram, áfram verkamaður stígðu skref, þangað og hingað. Ætlirðu að frelsa þá skaltu vita að ef til vill deyrð þú eða barnið þitt eða allir, en það gildir einu því eina lífsvon þín er að berjast. Meira á www.mbl.is/andlat Svanur Jóhannesson. Mikil var gæfa mín að tengjast Lárentsínusarfjöl- skyldunni fyrir tæpum 40 ár- um þegar við Sævar Geir ákváðum að rugla saman reyt- um. Ég áttaði mig fljótt á því að þau systkinin frá Berghóli væru alveg einstök, samheldin, hlý og skemmtileg. Töntu tengdumst við samt alveg sér- stökum böndum, milli okkar var alla tíð mikill kærleikur og vinátta. Eftir að leiðir okkar Sævars skildi þá lagði hún sér- staka áherslu á að við héldum okkar sambandi. Hún var sannkölluð ættmóðir sem lifði fyrir fólkið sitt og fylgdist stolt með fréttum af öllum af- komendum foreldra sinna, hjónanna Sigríðar og Lárents- ínusar sem bjuggu á Austur- götu 5 í Stykkishólmi. Það var einstakur tími á ættarmóti síð- asta sumar þegar Tanta ásamt systkinum og afleggjurum hittust í Hólminum, tóku myndir og nutu góðra stunda. Maður kom ekki að tómum kofunum hjá henni þegar við hringdumst á. Hún flutti frétt- Jóhanna Lárentsínusdóttir ✝ Jóhanna Lár- entsínusdóttir fæddist 16. sept- ember 1926. Hún lést 4. febrúar 2022. Jóhanna var jarðsungin 23. febr- úar 2022. ir af fæðingum, skírnum og öllu sem var í gangi hjá stórfjölskyld- unni. Alltaf var hún jafn áhuga- söm um okkur öll, fótboltann, lífið hjá Birki Má í út- löndum eða námið hjá Aroni Elí. En hún vildi helst að hann færi í lækn- isfræði þar sem það vantaði fleiri lækna í fjölskylduna. Fáir voru eins vel að sér í hvað var að gerast á íþrótta- sviðinu. Oftar en ekki var kveikt á íþróttastöðvum í sjónvarpinu. Nú fæ ég ekki fleiri símtöl þar sem ég á að skila til Birkis að hlaupa nú upp kantinn og senda boltann fyrir markið. Já, hún hafði sterkar skoðanir á flestum málum og var óhrædd að viðra þær. En dýrmætastar eru minn- ingarnar um heimsóknir í Of- anleitið á Þorláksmessu eða kaffisopinn og spjallið í eld- húskróknum á Skagfirðinga- brautinni. Alltaf þegar maður átti er- indi á Krókinn var hægt að líta inn, fá hughreystandi og góð ráð. Að ekki sé talað um morgunverðarhlaðborðið sem beið þegar við gistum þar. Þá var hún búin að fara í sund- laugina eins og hún gerði alla daga meðan heilsan leyfði. Þegar elsku amma Guja féll frá þá lofaði Tanta að gera sitt besta til að fylla í þau fótspor og að Aron Elí gæti kallað hana ömmu. Fyrsta markmið skyldi vera að upplifa ferm- inguna en svo varð ljóst að hægt var að bjóða Töntu í út- skrift úr menntaskóla og loks háskóla. Alltaf gerði það hann jafn ánægðan og stoltan að segja Töntu sinni frá stórum áföngum í lífinu enda var hún einstaklega góð í að samgleðj- ast öðrum. Níutíu og fimm ár er hár aldur og hún bar hann einstak- lega vel, alltaf jafn stórglæsileg til fara, teinrétt og flott. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endurgjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson) Guð geymi minningu elsku Töntu okkar. Helga Birkisdóttir Aron Elí Sævarsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.