Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.02.2022, Blaðsíða 27
Morgunblaðið/Árni Sæberg ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2022 _ Haraldur Franklín Magnús lék fyrsta hringinn á móti í Áskor- endamótaröð Evrópu í golfi í Durban í Suður-Afríku á fjórum höggum undir pari, 68 höggum. Hann er í 19.-26. sæti af 216 keppendum eftir fyrsta dag mótsins. _ Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ missir af ársþingi KSÍ á morgun þar sem hún berst við Sævar Pét- ursson í formannskjöri. Vanda skýrði frá því í gær að hún hefði greinst með kórónuveiruna. „Auðvitað held ég mínu striki í baráttunni um formanns- sætið, þó aðeins með breyttu sniði,“ skrifaði Vanda m.a. á Facebook. _ Magni Fannberg hefur verið ráðinn íþróttastjóri norska knattspyrnu- félagsins Start til næstu fjögurra ára. Hann kemur þangað frá AIK í Stokk- hólmi þar sem hann starfaði í hálft þriðja ár sem þróunarstjóri leikmanna 17-21 árs hjá félaginu. Magni gegndi áður sama starfi hjá Brann í Noregi. _ Erlingur Birgir Richardsson hefur verið orðaður við þjálfarastöðuna hjá norska karlalandsliðinu. Það er TV2 í Noregi sem greinir frá þessu en Erling- ur, sem er 49 ára gamall, stýrir í dag hollenska karlalandsliðinu. Samningur hans í Hollandi rennur út í sumar en Norðmenn leita nú að þjálfara eftir að tilkynnt var að Christian Berge myndi láta af störfum í vor. Glenn Solberg, Jonas Wille, Kristian Kjelling og Börge Lund hafa einnig verið nefndir sem hugsanlegir arftakar Berge. Eitt ogannað Olísdeild karla KA – ÍBV............................................... 32:32 Staðan: FH 15 11 2 2 427:376 24 Haukar 15 11 2 2 451:409 24 Valur 15 10 2 3 433:381 22 ÍBV 15 9 2 4 447:444 20 Stjarnan 15 8 2 5 440:427 18 Selfoss 15 7 1 7 400:397 15 KA 15 7 1 7 424:431 15 Afturelding 14 5 4 5 403:396 14 Fram 15 5 2 8 416:430 12 Grótta 14 4 1 9 371:380 9 HK 15 1 1 13 395:444 3 Víkingur 15 1 0 14 338:430 2 Olísdeild kvenna Valur – Fram ........................................ 25:24 Staðan: Fram 15 11 1 3 405:356 23 Valur 16 11 0 5 433:362 22 KA/Þór 14 9 1 4 385:362 19 Haukar 16 8 1 7 440:419 17 ÍBV 12 7 0 5 332:306 14 Stjarnan 15 7 0 8 385:388 14 HK 15 4 1 10 343:388 9 Afturelding 15 0 0 15 337:479 0 Coca Cola-bikar kvenna 8-liða úrslit: ÍBV – Stjarnan ..................................... 27:26 Grill 66-deild kvenna Víkingur – Valur U............................... 26:20 Staða efstu liða: FH 16 12 2 2 428:348 26 Selfoss 13 11 1 1 384:314 23 ÍR 13 10 1 2 347:277 21 Grótta 14 8 1 5 359:321 17 Meistaradeild karla París SG – Flensburg.......................... 33:30 - Teitur Örn Einarsson skoraði ekki fyrir Flensburg. Þýskaland Melsungen – Leipzig ........................... 22:22 - Elvar Örn Jónsson skoraði tvö mörk fyr- ir Melsungen en Arnar Freyr Arnarsson og Alexander Petersson skoruðu ekki. Svíþjóð Kristianstad – Skövde......................... 28:32 - Andrea Jacobsen skoraði fjögur mörk fyrir Kristianstad. .$0-!)49, Erlingur Agnarsson átti frábæran leik fyrir Íslandsmeistara Víkings úr Reykjavík þegar liðið heimsótti Val á Hlíðarenda í deildabikar karla í knattspyrnu, Lengjubik- arnum, í gær. Leiknum lauk með 3:1-sigri Víkinga en Erlingur skor- aði tvívegis fyrir Víkinga í leiknum. Þá var Kyle McLagan einnig á skotskónum fyrir Víkinga en Aron Jóhannsson skoraði eina mark Valsmanna í undir lok síðari hálf- leiks í stöðunni 0:3. Víkingar eru með 9 stig eða fullt hús stiga í efsta sæti 1. riðils eftir þrjá leiki. Meistararnir unnu á Hlíðarenda Morgunblaðið/Árni Sæberg Barátta Sebastian Hedlund og Birn- ir Snær Ingason eigast við í gær. Marija Jovanovic reyndist hetja ÍBV þegar liðið vann 27:26-sigur gegn Stjörnunni í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handknatt- leik, Coca-Cola-bikarnum, í Vest- mannaeyjum í gær. Marija tryggði ÍBV sigur með marki úr vítakasti á lokasekúndum leiksins en hún skor- aði alls 11 mörk í leiknum. ÍBV er því komið áfram í undanúrslitin líkt og Valur, KA/Þór og Fram en und- anúrslitin fara fram 9. mars að Ás- völlum og úrslitaleikurinn hinn 12 mars, einnig að Ásvöllum í Hafn- arfirði. Dramatískur sigur ÍBV Ljósmynd/Sigfús Gunnar 11 Marija Jovanovic átti stórleik fyrir ÍBV gegn Stjörnunni. Ólafssalur, Ásvöllum, undankeppni HM karla 2023, 24. febrúar 2022. Gangur leiksins: 7:11, 15:18, 21:18, 27:20, 40:28, 44:33, 51:37, 57:49, 57:62, 64:56, 65:59, 78:67, 80:76, 85:81, 85:85, 89:89, 94:94, 96:97, 101:97, 101:100, 106:102, 107:105. Ísland: Tryggvi Snær Hlinason 34/21 frákast, Elvar Már Friðriksson 25/7 stoðsendingar, Martin Hermannsson 23/7 stoðsendingar, Jón Axel Guð- ÍSLAND – ÍTALÍA 107:105 mundsson 11, Pavel Ermolinskij 6, Ægir Þór Steinarsson 6, Kári Jóns- son 2. Ítalía: Nico Mannion 23, Michele Vi- tali 22, Stefano Tonut 18, Alessandro Pajola 9, Amadeo Della valle 9, Paul Biligha 9, David Alviti 4, Nicola Akele 4, Matteo Imbro 2, Amedeo Tessitori 2, Matteo Spagnolo 2, Raphael Gaspardo 1. Áhorfendur: Um 800, uppselt. vera orkumeiri en þeir í framleng- ingunni. Við tókum nokkur fráköst og fengum auðveldar körfur á rétt- um tíma þannig að orkan færði okk- ur þennan sigur í lokin. Ef við hefðum misst þetta niður í tap er hætt við því að maður hefði lítið sofið í nótt. Það var mjög ánægjulegt að vinna þetta og nú verður annar hörkuleikur á móti þeim í Bologna á sunnudaginn. Það er engin ástæða til annars en að fara fullir sjálfstrausts í þann leik. Þeir verða eflaust dýrvitlausir en við komum enn dýrvitlausari til leiks. Elvar taldi að engar líkur væru á að Ítalir hefðu vanmetið íslenska lið- ið. „Nei, það hefði verið skrýtið, þeir sáu að við spiluðum vel á móti Hol- lendingum og þeir unnu Holland með einu stigi. En þeir vissu greini- lega að það yrði litið á það sem skandal að tapa á móti Íslandi og ef- laust voru þeir pirraðir þess vegna. Við vorum baráttuglaðari, vildum þetta meira, og það færði okkur sig- urinn,“ sagði Elvar Már Frið- riksson. Stórkostlegt á heimavelli - Tryggvi var skrímsli, segir Elvar Á ÁSVÖLLUM Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Þetta var stórkostlegt og gaman að geta klárað þetta fyrir framan okkar fólk á heimavelli,“ sagði bakvörð- urinn Elvar Már Friðriksson við Morgunblaðið eftir ótrúlegan sigur íslenska liðsins á Ítölum í und- ankeppni HM í körfubolta á Ásvöll- um í gærkvöld. „Við áttum toppdag og Tryggvi Hlinason var algjört skrímsli í kvöld. Ég held að þetta sé einn besti leikur sem hann hefur spilað fyrir íslenska landsliðið. Hann var svaka- legur, dró svo mikið að sér og gerði hlutina auðveldari fyrir bakverðina þannig að hann var stórkostlegur fyrir okkur í kvöld,“ sagði Elvar sem sjálfur átti frábæran leik, skor- aði 25 stig og átti 7 stoðsendingar. Elvar, Tryggvi og Martin Her- mannsson voru í lykilhlutverkum hjá íslenska liðinu og ljóst að þeir verða stöðugt betri leikmenn, enda atvinnumenn í góðum liðum í Evr- ópu. „Já, reynslan sem við höfum feng- ið þar er mikilvæg og það venst að spila í þessum gæðaflokki. Þar lærir maður mikið, leikurinn er auðveld- ari fyrir manni og það er frábært að geta spilað á sama grundvelli og þessir ítölsku leikmenn. Elvar kvaðst aldrei hafa orðið virkilega smeykur um að íslenska liðið væri að missa góða stöðu niður í tap. „Nei, ég hélt aldrei að við værum að missa þetta frá okkur en leik- urinn var orðinn 50/50 eftir að við vorum búnir að vera með und- irtökin. Svo féll þetta í hendurnar á okkur á réttum tíma. Mér fannst við Morgunblaðið/Árni Sæberg Sókn Elvar Már Friðriksson sækir að Ítölum í Hafnarfirðinum í gær. ÍBV stöðvaði sigurgöngu KA þegar liðin mættust í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í KA heimilinu á Akureyri í 14. umferð deildarinnar í gær. Leiknum lauk með 32:32-jafntefli en Sigtryggur Daði Rúnarsson var markahæstur Eyjamanna með 8 mörk. Akureyringar voru sterkari í fyrri hálfleik og leiddu 20:15 að honum loknum. ÍBV tókst hins veg- ar að jafna metin þegar fimm mín- útur voru til leiksloka í 30:30. Patrekur Stefánsson og Allan Nordberg skoruðu 8 mörk hvor fyr- ir KA og Rúnar Kárason skoraði 5 mörk fyrir ÍBV. KA hafði unnið fjóra leiki í röð fyrir leik gærdags- ins en liðið er í sjöunda sæti deild- arinnar með 15 stig og hefur eins stigs forskot á Afureldingu en bæði lið eru í harðri baráttu um sæti í úr- slitakeppninni. ÍBV er áfram í fjórða sætinu með 20 stig. ÍBV stöðvaði sigur- göngu Akureyringa Ljósmynd/Þórir Tryggvason Vörn Rúnar Kárason verst Allani Nordberg á Akureyri í gær. Sara Sif Helgadóttir átti stórleik í marki Vals þegar liðið vann drama- tískan 25:24-sigur gegn Fram í úr- valsdeild kvenna í handknattleik, Olísdeildinni, í Origo-höllinni á Hlíðarenda í 13. umferð deild- arinnar í gær. Sara Sif varði 19 skot í leiknum en Thea Imani Sturludóttir skoraði sigurmark leiksins þegar mínúta var til leiks- loka. Staðan var jöfn í hálfleik, 13:13, en mikið jafnræði var með liðunum allan leikinn. Lovísa Thompson var markahæst hjá Val með 7 mörk en Perla Ruth Albertsdóttir og Emma Olsen skor- uðu 5 mörk hvor fyrir Fram. Framarar eru sem fyrr í efsta sæti deildarinnar með 23 stig en Valur kemur þar á eftir með 22 stig. Fram á leik til góða á Val og það stefnir því í harða baráttu um deildarmeistaratitilinn milli Reykjavíkurliðanna. Valur vann stórleikinn gegn Fram í Safamýri Morgunblaðið/Óttar Geirsson 5 Thea Imani Sturludóttir skoraði sigurmark Vals gegn Fram.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.