Morgunblaðið - 19.03.2022, Page 24

Morgunblaðið - 19.03.2022, Page 24
lerki, sem mun líklega hverfa hér af markaði um eitthvert skeið.“ Árni segir að mikill skjálfti sé á mörkuðum út af stríðinu. Hann seg- ir að Húsasmiðjan kaupi nánast ekkert timbur beint frá Rússlandi en keppinauturinn Byko starfræki tvær timburverksmiðjur í landinu. „Bygma-samstæðan, móðurfélag Húsasmiðjunnar, er ekki með neina starfsemi í Rússlandi og heldur ekki í Hvíta-Rússlandi, sem einnig er BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Árni Stefánsson forstjóri Húsa- smiðjunnar segir að fyrirtækið sjái ekki fram á tilfinnanlegan skort á timbri á þessu ári, þrátt fyrir stríðsátök sem nú eru í Úkra- ínu. Í Viðskipta- blaðinu í vikunni kom fram í máli forstjóra Byko, Sigurðar Brynj- ars Pálssonar, að 40% timburs í Byko væru rússnesk. Í samtalinu bætti hann því við að auðséð væri að framboð á timbri myndi dragast saman og verð hækka vegna átak- anna. Timbur frá Norðurlöndunum Árni segir að aðeins um kannski tíu prósent af timbri sem selt er í Húsasmiðjunni hafi átt uppruna sinn í Rússlandi. „Stærstur hluti af okkar timbri kemur frá Norður- löndunum og Eystrasaltslöndunum. Þó eru einstaka vörur, s.s. síberíu- beitt viðskiptaþvingunum vegna ná- inna tengsla við Rússa. Það er jafn- framt ágætt þar sem við vitum að margir viðskiptavinir okkar og Bygma hafa síður áhuga á því að kaupa rússneskar vörur þessa dag- ana, eigi þeir annað val,“ segir Árni. Timburverð var á niðurleið þegar stríðsátökin hófust að sögn Árna. „Við vorum búin að festa einhverja samninga fram í tímann, en það er búist við töluverðum verðhækk- unum á næstunni. Óvissan er samt mikil. Mestu áhrifin verða þegar viðskiptabannið tekur gildi. Nú mega framleiðendur enn efna þá samninga sem gerðir höfðu verið fyrir innrás Rússlands í Úkraínu. Síðan fer ákveðið magn timburs út af markaðnum og fleiri aðilar munu slást um minna framboð, sem leiðir líklega til verðhækkana.“ Óvissa meiri á stálmarkaði Óvissa er enn meiri á stálmark- aði en timburmarkaði. „Olíuverð hefur rokið upp og mikið af stáli á Evrópumarkaði kemur frá Rúss- landi, Hvíta-Rússlandi og Úkraínu. Svo virðist sem stórir framleið- endur bíði nú átekta eftir því að verðið hækki verulega áður en þeir bjóða nýja samninga. Hækkandi orkuverð hvetur einnig til áfram- haldandi hráefnishækkana.“ Bygma tilkynnti í vikunni að það ætli að gefa andvirði fimm milljóna danskra króna, tæplega 100 millj- óna íslenskra króna, til neyðar- aðstoðar og hjálparstarfs í Úkra- ínu „Þessum styrk verður deilt út í Danmörku, á Íslandi og í Svíþjóð. Upphæðinni verður skipt jafnt á milli Rauða krossins í þessum löndum og hjálparsamtakanna Dan Church Aid,“ segir Árni að lokum. Ekki tilfinnanlegur skortur Morgunblaðið/Eggert Hús Í gær opnaði Húsasmiðjan nýja verslun sína á Akureyri og segir Árni að mikið fjölmenni hafi mætt á staðinn til að kynna sér hina nýju aðstöðu. - Tíu prósent af timbri Húsasmiðjunnar frá Rússlandi - 40% timburs Byko rússnesk - Síberíulerki hverfur - Bygma gaf 100 milljónir til fórnarlamba Árni Stefánsson 24 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Forstjóri bandaríska flugfélagsins Delta, Ed Bastian, segir í samtali við BBC í Bretlandi að hækkandi olíu- verð í heiminum vegna stríðsins í Úkraínu gæti leitt til 10% hækkunar á flugfargjöldum. Delta er eitt stærsta flugfélag heims en fyrir faraldurinn, árið 2019, flutti félagið 200 milljónir farþega. Það þýðir að félagið var á þeim tíma annað stærsta flugfélag í heimi þeg- ar horft er til fjölda farþega. Ekki hærra í 14 ár Verð á olíu hefur ekki verið hærra í fjórtán ár. Segir Bastian að endan- leg niðurstaða ráðist af því hvernig lendingin verður með olíuverðið. Birgir Jónsson, forstjóri flug- félagsins Play, sagði í samtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni að félag- ið hygðist bregðast við ástandinu með því að leggja á sérstakt olíu- gjald líkt og margir stærstu keppi- nautar félagsins hefðu innleitt. Eldsneytiskostnaður Play nam á síðasta ári um sex milljónum dala. Á meðal flugfélaga sem sett hafa sérstakt olíugjald á flugmiða sína eru Emirates, Japan Airlines og Air- Asia. Endurspegla aðföng Í skriflegu svari frá Icelandair segir að almennt sé ljóst að fargjöld muni til lengri tíma þurfa að end- urspegla aðföng, þ.m.t. eldsneytis- verð. „Icelandair hefur enn sem komið er ekki tekið ákvörðun um sérstaka hækkun fargjalda en ekki er ólíklegt að til þess muni koma á næstunni ef eldsneytisverð helst hátt,“ segir í svarinu. Bastian segir í samtalinu við BBC að flugmiðahækkunin í innanlands- flugi í Bandaríkjunum gæti orðið um 25 dalir á hvern miða, sem jafngildir rúmum þrjú þúsund íslenskum krón- um. Hann segir að það þýði á milli 5- 10% hækkun á farmiðaverði og bætir við að gjaldið fyrir alþjóðlegt flug gæti orðið lítið eitt hærra. Alþjóðaflug Delta er um 35% af starfseminni. Í grein BBC er einnig vitnað til forstjóra stærsta flugfélags Evrópu, Ryanair, Michaels O’Learys, en hann sagði nýlega að hækkun olíu- verðs myndi leiða til „merkjanlega hærri“ fargjalda næsta sumar. Mörg flugfélög reyna að verja sig gegn flökti í olíuverði með því að kaupa olíu fyrir fram. Easyjet og British Airway sögðu nýlega, eins og segir í frétt BBC, að þau hefðu gert það fyrir 60% af olíuþörf sinni á þessu ári. Flökt á verði Mikið flökt hefur verið á olíuverði á árinu. Í byrjun janúar var verð á tunnunni af Brent-hráolíu undir 80 bandaríkjadölum. Nýlega hækkaði það upp í um 130 dali á tunnu, þegar Bandaríkjamenn og Bretar sögðust ætla að hætta að kaupa olíu frá Rússlandi. Verðið er nú um 107 dalir á tunnu. Gæti hækkað um 10% - Icelandair hefur ekki tekið ákvörðun um hækkun fargjalda - Play og fleiri flug- félög leggja á sérstakt olíugjald - Gæti hækkað um 25 dali í Bandaríkjunum Óvissutímar » Delta flutti 200 milljónir far- þega árið 2019 » Play keypti olíu fyrir sex milljónir dala í fyrra » Mörg flugfélög kaupa olíu fyrir fram » Emirates, Japan Airlines og AirAsia líka með olíugjald » Verð á Brent-hráolíutunnu er nú um 107 bandaríkjadalir Ferðir Alþjóðaflug Delta er um 35% af starfseminni. Verð gæti hækkað meira þar en innanlands. 19. mars 2022 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.77 Sterlingspund 168.77 Kanadadalur 101.66 Dönsk króna 19.116 Norsk króna 14.55 Sænsk króna 13.617 Svissn. franki 137.02 Japanskt jen 1.084 SDR 178.07 Evra 142.3 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.1932 « Rússneska ríkið hefur innt af hendi greiðslu til JPMorgan að fjárhæð 117 milljónir dollara. Á hún að standa undir afborgun af vöxtum af skuldabréfum sem ríkið gaf út en um helgina lét fjár- málaráðherra Rússlands í veðri vaka að ríkissjóður landsins myndi inna greiðsl- una af hendi í rúblum en ekki dollurum eins og lánaskilmálar kveða á um. Byggðist hótunin á því að stærstu hag- kerfi heims hefðu gert Rússlandi ómögulegt að inna greiðsluna af hendi í dollurum vegna þeirra frystinga sem gjaldeyrisforði og aðrar eignir rúss- neska ríkisins sæta víða um heim. Sam- kvæmt heimildum Financial Times fékk JPMorgan heimild frá bandaríska fjár- málaráðuneytinu til að flytja fjármunina sem um ræðir af reikningum í eigu Rússlands yfir á reikninga bankans utan Rússlands.Vildi bankinn ganga úr skugga um að fjármagnsflutningarnir brytu ekki í bága við þær hömlur sem lagðar hafa verið á viðskipti Rússa í kjölfar innrásar þeirra í Úkraínu. Rússar reyna að koma sér undan greiðslufalli Ljósmynd/AFP Greiðsla Flest bendir til að Rússar hafi ekki greitt skuldina í rúblum eftir allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.