Morgunblaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! M.BENZ EQC 400 4MATIC POWER 2021 Nýskráður 12/2020, ekinn aðeins 10 Þ.km, rafmagn (408 km drægni), sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Alveg hlaðinn aukabúnaði s.s. AMG-line bæði innan og utan. Sjónlínuskjár, 20“ álfelgur, rafdrifin framsæti, skynvæddur hraðastillir, 360° bakkmyndavél. BURMESTER hljómkerfi o.fl. Raðnúmer 253703 VERÐ11.790.000 Hildur Björnsdóttir sækist nú eftir odd- vitasæti Sjálfstæðis- flokksins í Reykjavík í prófkjöri sem fram fer um helgina. Af því tilefni rennur mér blóðið til skyld- unnar að mæla með Hildi við Reykvíkinga en við vorum sam- starfsmenn um nokk- urra ára skeið á ís- lenskri lögmannsstofu í London. Eins og borgarbúar eru farnir að þekkja er Hildur rökföst en hún kemur sínum sjónarmiðum hins vegar ekki að með öfgum og há- vaða, heldur lagni og kurteisi. Þetta nýttist henni vel við lögmannsstörf, og mun gera það sömuleiðis í störf- um hennar fyrir Reykvíkinga. Stjórnmál rétt eins og lögfræðin snúast nefnilega oft og tíðum um að ná fram hagstæðri niðurstöðu í sæmilegri sátt við viðsemjandann. Sjálfstæðisflokkurinn kemst ekki til áhrifa nema í samstarfi við aðra, og í ljósi reynslunnar treysti ég Hildi vel til þess verkefnis. Það er ekki vænlegt til árangurs í stjórnmálum að elta dægurflugur og freista þess í sífellu að vera sammála síð- asta ræðumanni. Stjórnmálamenn sem festast í því fari eru ekki heppilegir til samstarfs. Hildur hef- ur sem betur fer forð- ast að detta í þessa gryfju. Skynsemi og hófsemd í málflutningi er nefnilega farsælli til lengri tíma litið. Ég treysti Hildi til að binda enda á eyði- merkurgöngu Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík, og hvet kjósendur í Reykjavík til að fylkja sér að baki þessari öflugu konu. Veljum öflugan mál- svara í Reykjavík Eftir Gunnar Thor Thorarinsson » Sjálfstæðisflokkur- inn kemst ekki til áhrifa nema í samstarfi við aðra, og í ljósi reynslunnar treysti ég Hildi vel til þess verk- efnis. Gunnar Thor Thorarinsson Höfundur er meðal eigenda BBA// Fjeldco lögmannsstofu og fer fyrir starfsemi stofunnar í London. Fram undan eru borgarstjórnar- kosningar í vor þar sem verkefni okkar sjálfstæðisfólks verð- ur að mynda nýjan meirihluta undir styrkri forystu. Með Hildi Björns- dóttur hafa komið ferskir vindar inn í borgarmálin í Reykja- vík. Hildur hefur veitt meirihlut- anum virkt aðhald og komið fram með skynsamlegar og góðar hug- myndir um hvernig bæta megi þjónustu við borgarbúa, sama í hvaða hverfi þeir búa. Byggja upp höfuðborg þar sem íbúar hafa val- frelsi í samgöngum og geta nálgast alla grunnþjónustu í sínum hverf- um. Hildur hefur sett fram metn- aðarfull markmið um að koma grunnskólum borgar- innar í fremstu röð innan OECD og leggur ríka áherslu á að leysa vanda foreldra þegar kemur að leikskóla- málum. Það þarf að setja málefni fjölskyldna í forgrunn í Reykjavík, ungt fólk með börn hefur unnvörpum flutt í nágrannasveitar- félögin þar sem Reykjavík hefur ekki verið valkostur undanfarin ár, hvort sem litið er til húsnæðis eða skólamála. Þessi mál brenna á borgarbúum ásamt mörgum fleirum. Það er ljóst að ekki verður ráðist í þessi mál með núverandi meirihluta. Hildur er framsýn, metnaðarfull og öflugur málsvari Sjálfstæðis- flokksins sem ég trúi að geti leitt samstilltan hóp til sigurs í borgar- stjórnarkosningunum í vor. Við þurfum manneskju sem getur miðl- að málum þvert á flokka og iðkað jafnvægislistina sem samstarf á sviði stjórnmálanna óhjákvæmilega er. Ég styð Hildi Björnsdóttur í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem fram fer um helgina. Ég treysti henni til þess að leiða okkur til sigurs í vor og mynda nýjan meirihluta í Reykjavík. Framsýna forystu í Reykjavík Eftir Erlu Ósk Ásgeirsdóttur Erla Ósk Ásgeirsdóttir »Hildur er framsýn, metnaðarfull og öfl- ugur málsvari Sjálf- stæðisflokksins sem ég trúi að geti leitt sam- stilltan hóp til sigurs í vor. Höfundur er forstöðumaður. Reykjavík hefur alla burði til að vera leiðandi sveitarfélag á landinu. Vegalengdir eru stuttar en samt er landslagið fjöl- breytt. Auðvelt er að koma sér á stað til að njóta útsýnis yfir sjó og fjöll. Að mestu leyti er stutt í alla þjónustu. Mikilvæg- ustu opinberu stofnanirnar eru í miðbæ Reykjavíkur. Innanlands- flugvöllur er þar steinsnar frá, landsbyggðinni til heilla. Sem born- um og barnfæddum Reykvíkingi finnst mér almenningslaugarnar standa upp úr í borgarlífinu, þar er hægt að huga að líkamsrækt sem og þjálfa hugann með samtölum við aðra góða og gegna pottverja. Í grunninn er borgin frábær. Skipulagsstefna Reykjavík- urborgar hefur um langt skeið ver- ið reist á þeirri for- sendu að þétta þurfi byggð og þrengja þurfi að einkabílnum. Þessi nálgun sem og aðferð- in við að úthluta lóðum er til þess fallin að styðja við hækkandi fasteignaverð. Stefnan leiðir óhjákvæmilega til lóðaskorts. Nægt er þó byggingarlandið. Skortur á fjárfest- ingum í samgöngu- mannvirkjum hægir á umferð og leiðir til aukins kostn- aðar fyrir almenning. Þessu þarf að breyta. Það er hægt að stækka borgina til austurs samhliða því sem greitt er fyrir umferð allra. Aukið lóðaframboð í nýjum hverf- um styður við það markmið að jafnvægi náist á fasteignamarkaði. Auðveldara verður þá fyrir ungt fólk að festa kaup á sinni fyrstu íbúð. Borgarstjórnarkosningarnar í vor geta orðið sögulegar. Koma þarf núverandi meirihluta borg- arstjórnar frá völdum. Til þess þarf Sjálfstæðisflokkurinn að standa saman og ná góðri kosn- ingu. Styrkjum stoðir Sjálfstæð- isflokksins í dag með því að taka þátt í prófkjörinu og tryggjum að listi flokksins verði sigurstrangleg- ur. Með viljann að vopni gerum við Reykjavík að borg tækifæranna. Með viljann að vopni Eftir Helga Áss Grétarsson Helgi Áss Grétarsson »Með viljann að vopni gerum við Reykjavík að borg tækifæranna, svo sem með því að auka lóðaframboð og auð- velda ungu fólki að fá þak yfir höfuðið. Höfundur óskar eftir stuðningi í 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. helgigretarsson@gmail.com Sjálfstæðisflokk- urinn í Reykjavík mun tefla fram konu í odd- vitasætinu í sveitar- stjórnarkosningunum fram undan. Það er orðið ljóst því þrjár öflugar konur koma til greina í prófkjörinu um næstu helgi, þótt ein þeirra hafi af lítil- læti gefið kost á sér í annað sæti, vitandi samt vel að fjöldi fólks vildi hana í fyrsta sætið – reynda og víðsýna. Virðing- arverða. Fyrst gaf kost á sér kona sem vill láta borgina „virka“ en var samt sú eina í hópi fulltrúa Sjálfstæðis- flokksins sem studdi tillögu meiri- hlutans um að gera Laugaveg að göngugötu allt árið af því að það er svo „skemmtilegt“ að sögn eins píratans. Svo kom fram afar efnileg og metnaðarfull þingmannsdóttir, varaborgarfulltrúi sem veit áreið- anlega hvað stefnir í – en gleymdi að lýsa yfir stuðningi við Reykjavík- urflugvöll í annars ágætri grein á þessum vettvangi um daginn, þótt hún styðji hann að sjálfsögðu. Stuðningur við flugvöllinn og algjör andstaða gegn „þungu“ borgarlín- unni verður að vera skýr afstaða allra frambjóðenda flokksins, auk ýmiss annars auðvitað. Þriðja konan sem kemur til álita í þetta mikilvæga sæti er reyndur borgarfulltrúi – kemur úr mennta- samfélaginu með stjórnunarreynslu og svo víðsýn að hún kom fram með stefnumarkandi tillögu um sveigjan- lega aldursbyrjun í grunnskóla. Frá sex ára niður í fimm skilst mér, e.t.v. af þeirri einföldu meginástæðu að „sum börn eru eldklár en önnur óttalegir sauðir“, eins og einhver orðaði það um árið. Algjörlega á skjön við átrúnað kommúnista um „skóla án aðgreiningar“. Svo má bæta við tillögu hennar um afnám fasteignaskatta eldri borgara í mjög góðri grein sl. laugardag í Morgun- blaðinu. Síðan verður að velja einhvern í annað sætið. Karlmann formsins vegna finnst mér þótt femínisti telj- ist. Þá kemur Þorkell Sigurlaugsson sterkur inn þótt fatlaður sé. Einn duglegasti maður sem ég hef hitt á lífs- leiðinni, skarpgáfaður og reyndur á mörgum sviðum. Kjartan Magn- ússon kemur vitaskuld upp í hugann en hann hefur sýnt sig í því að verða mik- ilvægur alþingismaður og ætti ekki að þurfa að þreyta sig á borgarmál- unum. Nær væri t.d. að tryggja Ólafi Guðmundssyni umferðarsér- fræðingi öruggan stuðning, sam- göngumálin eru jú einna brýnust. Og hvað með Helga Áss Grétarsson eða Viðar Guðjohnsen gæti einhver spurt. Ritað báðir mjög góðar greinar í Morgunblaðið nýlega. Eða Björn Gíslason sem gefur kost á sér í þriðja sætið, langreyndur í borg- armálunum. Fjöldi annarra frambærilegra karla og kvenna er í framboði og magnað að venjulegum kjósendum flokksins sé gert kleift að hafa áhrif á röð hans – sem á endanum mun ráða úrslitum á kjördag. Við sem ætlum að taka þátt í prófkjörinu verðum að vera örugg um að val- kosturinn okkar verði í algjörri and- stöðu við núverandi meirihluta í Reykjavík. Valkosturinn verði skýr Eftir Pál Pálmar Daníelsson » Þrjár öflugar konur koma til greina í prófkjörinu þótt ein þeirra hafi af lítillæti gefið kost á sér í annað sæti, vitandi samt vel að fjöldi fólks vildi hana í fyrsta sæti – reynda og víðsýna. Virðingar- verða. Páll Pálmar Daníelsson Höfundur er leigubílstjóri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.