Morgunblaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 54
54 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Tri di oro með tónleika til heiðurs Chet Baker á Björtuloft-
um
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Tríó Marína Ósk, Andrés Þór og Þorgrímur Jónsson skipa tríóið Tri di oro sem kom fram á tónleikunum.
Ánægja Tónleikagestir voru ánægðir með það sem bar fyrir augu og eyru í Hörpu.
Glöð Eóghain Mitchison og Friederike
Borngräber voru kát á tónleikunum.
»
Tríóið Tri di
oro kom fram
á tónleikum á
Björtuloftum
Hörpu í vikunni
og flutti dagskrá
til heiðurs Chet
Baker. Tónleik-
arnir voru hluti af
vordagskrá Jazz-
klúbbsins Múlans.
Tríóið skipa söng-
konan Marína
Ósk, gítarleik-
arinn Andrés Þór
og bassaleikarinn
Þorgrímur Jóns-
son.
Fín Tónleikar tríósins Tri di oro mælt-
ust vel fyrir hjá tónleikagestum.
„Alveg eins og ekkert hlé hafi verið
dettur mér í hug að hafa sýningu á
verkum unninn síðustu tvö ár. Ég
kalla sýninguna „afsakið ekkert hlé“
og leyfi ég mér að gægjast út úr helli
mínum og deila því sem á daga mína
hefur drifið.“
Þannig kynnti Einar Örn Bene-
diktsson, listamaðurin fjölhæfi, sýn-
inguna á um 60 nýjum myndverkum
sem hann opnar í Gallerí Listamönn-
um á Skúlagötu 32 í dag, laugardag.
Hann hefur haldið ótrauður áfram
að vinna í myndum sínum, eins og
faraldur hafi aldrei brostið á.
„Ég hef unnið að þessum myndum
síðan 2019,“ segir Einar. Upphafið
liggur í samstarfi við Damon Albarn
og Íslandstónverkið sem hann flutti í
Hörpu á dögunum en þar kom Einar
einnig fram og vann með mynd-
rænan þátt verksins. Viðfangsefnið
þar var veður og „whether people“,
eða hvort-er fólk.
„Ég hélt svo áfram með þær
myndir. Það var ekkert hlé hjá mér
þótt við dyttum inn í kóvíd. Ég
kemst stundum að þeirri niðurstöðu
að við séum komin inn í hellinn og ég
er nútímafrummaður sem geri þess-
ar hellaristur hér. Það er eins og ég
sé könnuður og hér eru einhverjar
ókennilegar myndir sem reyna að
segja sögur. Það eru titlar á þeim
öllum myndunum, þær hafa allar
sögur í sér. Ég er alltaf að segja sög-
ur og þar sem ég er sögumaðurinn
þá eru þetta sjálfsmyndir.“
Einar Örn nam á sínum tíma fjöl-
miðlafræði og hefur starfað í tónlist
ártugum saman. Eftir að hafa verið
farinn að vinna í myndlist og sýna
reglulega þá skellti hann sér í
meistaranám í myndlist. Hverju
breytti það?
„Núna er ég í sjónlist frekar en
tónlist eða tónlitun. Námið gerði
mér kleift að staldra við og hugsa
um sjálfan mig og hvað ég væri að
gera. Ég var þá að gera teikningar
og fékk í byrjun þá krítík að ég væri
of öruggur, of „safe“, og þá fór ég að
taka teikningarnar sundur og
byggja þær upp aftur. Samt hafa
þær áfram þann grunnþátt að ég er
alltaf að segja sögu.“
Myndsköpunin er alltaf viss axjón
hjá Einari. „Ég byrja að teikna en
kem svo aftur að myndunum seinna
og þá koma frekari smáatriði inn í
þær. Eins og þessi,“ – hann bendir á
eina myndina: „Hún gæti verið ein-
föld línuteikning en svo er ég búinn
að bæta inn smáatriðum eins og
hjarta á hvolfi. En myndin heitir
„Tindilfættur trítla ég“.
Það er alltaf leikur í þessum
myndum, og axjón, þótt mér finnst
líka vera ákveðin kyrrð í þeim. Það
færist yfir mig kyrrð þegar ég hef
klárað myndirnar.
Einu sinni kom kona á sýningu hjá
mér og sagði um mynd: Þetta er eins
og hjúkrunarkona.
En myndin heitir úti að hjóla,
sagði ég.
Þá er þetta hjúkrnarkona úti að
hjóla, svaraði hún þá. Það getur allt
gerst hér.“ efi@mbl.is
Það getur allt gerst hér
Morgunblaðið/Einar Falur
Einar Örn „Þar sem ég er sögumaðurinn þá eru þetta sjálfsmyndir.“
- Einar Örn Bene-
diktsson sýnir í Gall-
erí Listamönnum
Sýningin Immune, eða Ónæm, verð-
ur opnuð í Nýlistasafninu í dag,
laugardag, kl. 16-19. Sýningin er
afrakstur tveggja ára rannsóknar-
og samstarfsverkefnis ellefu al-
þjóðlegra listamanna, hönnuða,
fræðimanna og sýningarstjóra og
er útgangspunktur þess Ferðabók
Eggerts Ólafssonar og Bjarna Páls-
sonar. Fjallað verður um afný-
lenduvæðingu, hinsegin vistkerfi,
vinnsluauðvald og þjóðarímynd-
unarsköpun.
Listamennirnir sem standa að
sýningunni eru Annarosa Krøyer
Holm, kollektívið hands.on.matter
(Sandra Nicoline Nielsen & Tim van
der Loo), kollektívið Herring, Iron,
Gunpowder, Humans & Sugar
(Olando Whyte & Rut Karin Zetter-
gren), Páll Haukur Björnsson,
Sheida Soleimani, kollektívið The
Many Headed Hydra (Aziz Sohail,
Bryndís Björnsdóttir, Emma Wolf
Haugh & Suza Husse), Pia Arke og
Zahra Malkani.
Ýmsir viðburðir munu fara fram
samhliða sýningunni, svo sem
vinnustofur, gjörningar og opnar
samræður. Á morgun, sunnudag,
verður listamannaspjall kl. 14. Þá
verða Steinunn Gunnlaugsdóttir og
Bryndís Björnsdóttir með verk og
gjörð hluta af sýningartímanum
fyrir framan Marshallhúsið. Sýn-
ingin stendur til 1. maí 2022.
Morgunblaðið/Einar Falur
Samstarf Páll Haukur Björnsson er meðal þeirra listamanna sem taka þátt í sýningunni.
Afnýlenduvæðing og hinsegin vistkerfi
Mannréttindi eru þema Þýskra
kvikmyndadaga sem nú standa yfir
í Bíó Paradís. Þýska sendiráðið á
Íslandi býður áhugasömum á sýn-
ingar á tveimur kvikmyndum nú
um helgina. Í dag, laugardag, kl. 17
á myndina The Ants and the Grass-
hopper og á morgun, sunnudag, kl.
17 á Dear Future Children. Á eftir
þeirri sýningu mun sendiherra
Þýskalands, Dietrich Becker,
stjórna samtali og taka við spurn-
ingum sem beint verður til leik-
stjóra myndarinnar, Franz Böhm.
Léttar veitingar verða í boði að
sýningu lokinni.
Áhugasamir eru beðnir að taka
frá miða á sýningarnar á vef Bíós
Paradísar.
Allar myndir á Þýskum kvik-
myndadögum eru sýndar á þýsku
með enskum texta.
Þýska sendiráðið býður í bíó um helgina
Framtíð Stilla úr kvikmyndinni Dear Future
Children sem fjallar um unga aktívista.
Hljómsveitin Sycamore Tree kemur
fram á tónleikum í húsnæði Máls &
menningar við Laugaveg í kvöld, laug-
ardagskvöld, klukkan 21.
Í tilkynningu segir að hljómveitin
snúi aftur á sviðið í Máli & menningu
eftir nokkra vel heppnaða tónleika þar
á síðasta ári þar sem leikið var fyrir
troðfullu húsi. Dúettinn hefur notið vin-
sælda og lög með honum, „Western
Sessions“ og „Winter Songs“, hafa setið
á vinsældalistum, eins og eldri lög
þeirra. Með þeim stofnfélögum Syca-
more Tree, Ágústu Evu og Gunna Hilm-
ars, kemur fram gítarleikarinn snjalli
Ómar Guðjónsson. Þau munu flytja lög
af fyrri plötum ásamt efni af næstu
breiðskífu sem kemur út á næstunni.
Sycamore Tree með tónleika í kvöld
Dúettinn Sycamore Tree.
Velkomin í land ástar er yfirskrift
einkasýningar Katrínar Ingu Jóns-
dóttur Hjördísardóttur sem hefur
verið opnuð í Listvali – Granda á
Hólmaslóð 6. Sýningarstjóri er
Kerly Ritval.
Katrín Inga vinnur að listsköpun
sinni í ýmsa miðla og ef fyrirliggj-
andi miðlar henta ekki verkinu þá,
eins og segir í tilkynningu, skapar
hún sína eigin, svo list hennar kom-
ist fullkomlega til skila. Kerfisleg
fyrirbæri eru sögð vera Katrínu
Ingu „hugleikin og skipta sköpum í
sjónrænni heimspeki hennar. Hún
leggur áherslu á hugarfars-
breytingu á gildismati ástar- og kyn-
vitundar og að gagnrýnin hugsun
tilheyri hversdagsleikanum. Til-
gangur listar og ástar verður í hönd-
um Katrínar Ingu að viðspyrnu mót
hinni endalausu hringrás pólitískra
og menningarlegra árekstra í heim-
inum.“
45 prósent andvirðis seldra verka
á sýningunni renna til stuðnings
Úkraínu.
Sýningin í Listvali er opin nú um
helgina frá kl. 14 til 17 báða dagana.
Boðið í land ástar á sýningu Katrínar
Hugarfarsbreyting Eitt verkanna á einka-
sýningu Katrínar Ingu í Listvali – Granda.