Morgunblaðið - 19.03.2022, Blaðsíða 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
86%
EMPIRE
TOTAL F ILM
VARIET Y
“ONE OF THE BEST SUPERHERO MOVIES EVER MADE”
“A masterpiece.”
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
G
rísalappalísa, Oyama og
Sudden Weather Change
eru á meðal þeirra sveita
sem Bergur var í og lék
jafnan á bassagígju. Undanfarin ár
hefur hann hins vegar starfað að
hljóð-, tón- og myndlist í Rotter-
dam og eru umsvifin ærin. Virknin
hófst fyrir alvöru eftir að Bergur
lauk MA-prófi við listaskólann í
Haag og á opinberri vefsíðu hans
má sjá ansi bústna ferilskrá. Hann
hefur sýnt í Reykjavík, Seyðisfirði,
Amsterdam og Rotterdam og einn-
ig tekið þátt í fjölda samsýninga.
Frá 2019 hefur hann lagt til fjölda
hljóðverka sem hafa birst í útvarpi,
á kassettum og í bókum og sama
má segja um tónleika og gjörninga.
Pistilritari setti sig í samband við
Berg og spurði hann nokkurra
spurninga. Meðal annars hvernig
það hefði verið að færa sig yfir úr
poppi/rokki yfir í myndlist/hljóð-
list? Var það meðvituð ákvörðun
eða stóð það alltaf til?
„Mér hefur lengi fundist áhuga-
vert að blanda þessum tveimur
miðlum saman,“ svarar hann. „Ég
var í myndlistarnámi á þeim tíma
sem ég var að spila mest með Sudd-
en Weather Change, o.fl. hljóm-
sveitum. Þegar ég flutti til Hol-
lands byrjaði ég að semja fyrir
sjálfan mig, aðallega tónlist fyrir
gjörningaverk. Ég held að ég hafi
byrjað að blanda þessu almennilega
saman vegna þess að ég var ekki
lengur með hljómsveitir til að spila
með, eitthver grunnþörf í mér …
alls ekki með-
vituð ákvörð-
un, mér finnst
jafnvel nauð-
synlegt að
vinna í mynd-
list og tónlist
að jafnaði –
hvort um sig
hefur áhrif á og upplýsir hitt mætti
segja.“
Og ferillinn er á góðu róli. „Þetta
hefur rúllað nokkuð vel síðastliðin
ár,“ upplýsir Bergur. „Að fóta sig
erlendis er auðvitað svolítið flókið
og ákveðin áskorun, en ég hef fund-
ið fyrir miklum stuðningi í lista-
senunni hérna og skapað rými fyrir
mína sérþekkingu. Ég hef verið að
semja, taka upp og pródúsera mikið
af tónlist fyrir bæði sviðsverk og
útgáfur í samstarfi við myndlistar-
menn sem sækjast eftir að verk
þeirra innihaldi hljóð-/tónlist. Fyrir
mér eru þetta skemmtilegir staðir
til þess að vinna innan um. Að vera
stöðugt í þessu rými á milli mynd-
listar og tónlistar og hugsa það
lengra hvernig listaverk geta verið
skrásett, hvernig t.d. gjörninga-
verk miðlast á vínilplötu og hvert
eftirlíf listaverka er.“
Árið 2019 stofnaði Bergur ásamt
fleirum Söngklúbb Rotterdam
(Singing Club of Rotterdam) sem
færir okkur að einu verkefni sem
mig langar að gera að sérstöku um-
tali. Í fyrra, á vegum Futura Resi-
stenza-útgáfunnar, sem staðsett er
í Brussel og Rotterdam, kom út
platan Night Time Transmissions
sem er eignuð Bergi. Á henni er
tónlist, þekkilegasta indípopp get-
um við sagt, en þó í bland við
ákveðna hljóðlist. Tónlistin minnir
smá á listafólk eins og Sufjan Stev-
ens og Polyphonic Spree en hún er
líka afskaplega evrópsk. Og kórinn
góði kemur reglubundið við sögu.
Platan var tekin upp í Litháen, Ís-
landi og Hollandi á tveggja vetra
tímabili. Platan er eins lags saga,
með karakterum; Bergur er t.d.
kynntur sem „trúbadúrinn“, Gunn-
ar Gunnsteinsson samverkamaður
hans sem „húsvörðurinn“, Vera
Mennens er „arkitektinn“, Sigrún
Gyða Sveinsdóttir „sólistinn“ og
„næturlíknarinn“ og „leigjend-
urnir“ og miðnæturkórinn Flock er
skipaður Katrinu Niebergal, Clöru
J:son Borg, Mylan Hoezen, Veru
Mennens, Linus Bonduelle, Manon
Verkooyen og Marloes de Vries. Al-
bert Finnbogason hljóðblandaði
plötuna og hljómjafnaði.
„Í apríl mun ég fara í rann-
sóknarferð til Grikklands ásamt
kærustunni minni og listakonunni
Katrinu Niebergal,“ upplýsir Berg-
ur að lokum. „Ég er að semja tón-
list, taka upp hljóð og er hennar
aðalaðstoðarmanneskja í langtíma
rannsóknar- og vinnuferli sem
verður að kvikmynd/vídeóinnsetn-
ingu í náinni framtíð. Í byrjun
þessa árs byrjaði ég líka að semja
lög fyrir sólóplötu númer tvö – sem
ég stefni á að taka upp í sumar.“
Á milli tveggja heima
Bergur Anderson lék
lykilhlutverk í mörgum
íslenskum popp/rokk-
sveitum en elur nú
manninn í Rotterdam
hvar hann leggur stund á
tón-, hljóð- og myndlist.
Nettur Bergur Anderson leggur einbeittur við hlustir með hljóðnema í hönd við ónefnda strönd.
»
Fyrir mér eru þetta
skemmtilegir staðir
til þess að vinna innan
um. Að vera stöðugt í
þessu rými á milli
myndlistar og tónlistar
og hugsa það lengra
hvernig listaverk geta
verið skrásett.
Um helgina lýk-
ur í Hafnarfirði
tónlistarhátíð
með yfirskrift-
ina WindWorks
með þrennum
tónleikum.
Í dag, laugar-
dag, verða
tvennir þar sem
klarinett- og
flaututónar eiga að fylla Pakk-
húsið. Klukkan 14 leika Hafdís Vig-
fúsdóttir á flautu og Grímur Helga-
son á klarinett fjölbreytta tónlist
eftir Martial Nardeau, Elínu Gunn-
laugsdóttur og Jean Rivier. Seinni
tónleikarnir verða klukkan 15. Þar
kemur fram Aulos Flute Ensemble
með tónlist Hildigunnar Rúnars-
dóttur, K. Fukushima, Sunnu Frið-
jónsdóttur og loks verður frumflutt
verk fyrir flautu eftir Fabio Men-
gozzi sem samið er sérstaklega fyr-
ir Pamelu De Sensi.
Á morgun, sunnudag, verða tón-
leikar kl. 14 í Bookless Bungalow
og mun Aulos Flute Ensemble með-
al annars frumflytja verk eftir Rob-
in Lilja, tónskáld frá Svíþjóð.
Þrennir Wind-
Works-tónleikar
Pamela di Sensi
Kór Fella- og Hólakirkju heldur
kaffihúsatónleika á vorjafndægri á
morgun, sunnudag, klukkan 14.30.
Boðið verður upp á fjölbreytilega
og vorlega efnisskrá sem kórinn
hefur æft og verða einsöngvarar úr
röðum kórfélaga. Stjórnandi kórs-
ins er Arnhildur Valgarðsdóttir
organisti og með á fiðlu leikur
Matthías Stefánsson.
Aðgangseyrir er kr. 2.500 og
verður auk vorlegrar tónlistar-
innar boðið upp á kaffi og kökur.
Leika Matthías Stefánsson fiðluleikari og
organistinn Arnhildur Valgarðsdóttir.
Vorleg tónlist í
Fella- & Hólakirkju