Morgunblaðið - 19.03.2022, Síða 53

Morgunblaðið - 19.03.2022, Síða 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 86% EMPIRE TOTAL F ILM VARIET Y “ONE OF THE BEST SUPERHERO MOVIES EVER MADE” “A masterpiece.” TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is G rísalappalísa, Oyama og Sudden Weather Change eru á meðal þeirra sveita sem Bergur var í og lék jafnan á bassagígju. Undanfarin ár hefur hann hins vegar starfað að hljóð-, tón- og myndlist í Rotter- dam og eru umsvifin ærin. Virknin hófst fyrir alvöru eftir að Bergur lauk MA-prófi við listaskólann í Haag og á opinberri vefsíðu hans má sjá ansi bústna ferilskrá. Hann hefur sýnt í Reykjavík, Seyðisfirði, Amsterdam og Rotterdam og einn- ig tekið þátt í fjölda samsýninga. Frá 2019 hefur hann lagt til fjölda hljóðverka sem hafa birst í útvarpi, á kassettum og í bókum og sama má segja um tónleika og gjörninga. Pistilritari setti sig í samband við Berg og spurði hann nokkurra spurninga. Meðal annars hvernig það hefði verið að færa sig yfir úr poppi/rokki yfir í myndlist/hljóð- list? Var það meðvituð ákvörðun eða stóð það alltaf til? „Mér hefur lengi fundist áhuga- vert að blanda þessum tveimur miðlum saman,“ svarar hann. „Ég var í myndlistarnámi á þeim tíma sem ég var að spila mest með Sudd- en Weather Change, o.fl. hljóm- sveitum. Þegar ég flutti til Hol- lands byrjaði ég að semja fyrir sjálfan mig, aðallega tónlist fyrir gjörningaverk. Ég held að ég hafi byrjað að blanda þessu almennilega saman vegna þess að ég var ekki lengur með hljómsveitir til að spila með, eitthver grunnþörf í mér … alls ekki með- vituð ákvörð- un, mér finnst jafnvel nauð- synlegt að vinna í mynd- list og tónlist að jafnaði – hvort um sig hefur áhrif á og upplýsir hitt mætti segja.“ Og ferillinn er á góðu róli. „Þetta hefur rúllað nokkuð vel síðastliðin ár,“ upplýsir Bergur. „Að fóta sig erlendis er auðvitað svolítið flókið og ákveðin áskorun, en ég hef fund- ið fyrir miklum stuðningi í lista- senunni hérna og skapað rými fyrir mína sérþekkingu. Ég hef verið að semja, taka upp og pródúsera mikið af tónlist fyrir bæði sviðsverk og útgáfur í samstarfi við myndlistar- menn sem sækjast eftir að verk þeirra innihaldi hljóð-/tónlist. Fyrir mér eru þetta skemmtilegir staðir til þess að vinna innan um. Að vera stöðugt í þessu rými á milli mynd- listar og tónlistar og hugsa það lengra hvernig listaverk geta verið skrásett, hvernig t.d. gjörninga- verk miðlast á vínilplötu og hvert eftirlíf listaverka er.“ Árið 2019 stofnaði Bergur ásamt fleirum Söngklúbb Rotterdam (Singing Club of Rotterdam) sem færir okkur að einu verkefni sem mig langar að gera að sérstöku um- tali. Í fyrra, á vegum Futura Resi- stenza-útgáfunnar, sem staðsett er í Brussel og Rotterdam, kom út platan Night Time Transmissions sem er eignuð Bergi. Á henni er tónlist, þekkilegasta indípopp get- um við sagt, en þó í bland við ákveðna hljóðlist. Tónlistin minnir smá á listafólk eins og Sufjan Stev- ens og Polyphonic Spree en hún er líka afskaplega evrópsk. Og kórinn góði kemur reglubundið við sögu. Platan var tekin upp í Litháen, Ís- landi og Hollandi á tveggja vetra tímabili. Platan er eins lags saga, með karakterum; Bergur er t.d. kynntur sem „trúbadúrinn“, Gunn- ar Gunnsteinsson samverkamaður hans sem „húsvörðurinn“, Vera Mennens er „arkitektinn“, Sigrún Gyða Sveinsdóttir „sólistinn“ og „næturlíknarinn“ og „leigjend- urnir“ og miðnæturkórinn Flock er skipaður Katrinu Niebergal, Clöru J:son Borg, Mylan Hoezen, Veru Mennens, Linus Bonduelle, Manon Verkooyen og Marloes de Vries. Al- bert Finnbogason hljóðblandaði plötuna og hljómjafnaði. „Í apríl mun ég fara í rann- sóknarferð til Grikklands ásamt kærustunni minni og listakonunni Katrinu Niebergal,“ upplýsir Berg- ur að lokum. „Ég er að semja tón- list, taka upp hljóð og er hennar aðalaðstoðarmanneskja í langtíma rannsóknar- og vinnuferli sem verður að kvikmynd/vídeóinnsetn- ingu í náinni framtíð. Í byrjun þessa árs byrjaði ég líka að semja lög fyrir sólóplötu númer tvö – sem ég stefni á að taka upp í sumar.“ Á milli tveggja heima Bergur Anderson lék lykilhlutverk í mörgum íslenskum popp/rokk- sveitum en elur nú manninn í Rotterdam hvar hann leggur stund á tón-, hljóð- og myndlist. Nettur Bergur Anderson leggur einbeittur við hlustir með hljóðnema í hönd við ónefnda strönd. » Fyrir mér eru þetta skemmtilegir staðir til þess að vinna innan um. Að vera stöðugt í þessu rými á milli myndlistar og tónlistar og hugsa það lengra hvernig listaverk geta verið skrásett. Um helgina lýk- ur í Hafnarfirði tónlistarhátíð með yfirskrift- ina WindWorks með þrennum tónleikum. Í dag, laugar- dag, verða tvennir þar sem klarinett- og flaututónar eiga að fylla Pakk- húsið. Klukkan 14 leika Hafdís Vig- fúsdóttir á flautu og Grímur Helga- son á klarinett fjölbreytta tónlist eftir Martial Nardeau, Elínu Gunn- laugsdóttur og Jean Rivier. Seinni tónleikarnir verða klukkan 15. Þar kemur fram Aulos Flute Ensemble með tónlist Hildigunnar Rúnars- dóttur, K. Fukushima, Sunnu Frið- jónsdóttur og loks verður frumflutt verk fyrir flautu eftir Fabio Men- gozzi sem samið er sérstaklega fyr- ir Pamelu De Sensi. Á morgun, sunnudag, verða tón- leikar kl. 14 í Bookless Bungalow og mun Aulos Flute Ensemble með- al annars frumflytja verk eftir Rob- in Lilja, tónskáld frá Svíþjóð. Þrennir Wind- Works-tónleikar Pamela di Sensi Kór Fella- og Hólakirkju heldur kaffihúsatónleika á vorjafndægri á morgun, sunnudag, klukkan 14.30. Boðið verður upp á fjölbreytilega og vorlega efnisskrá sem kórinn hefur æft og verða einsöngvarar úr röðum kórfélaga. Stjórnandi kórs- ins er Arnhildur Valgarðsdóttir organisti og með á fiðlu leikur Matthías Stefánsson. Aðgangseyrir er kr. 2.500 og verður auk vorlegrar tónlistar- innar boðið upp á kaffi og kökur. Leika Matthías Stefánsson fiðluleikari og organistinn Arnhildur Valgarðsdóttir. Vorleg tónlist í Fella- & Hólakirkju

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.