Morgunblaðið - 19.03.2022, Side 49
DÆGRADVÖL 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. MARS 2022
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Leður – Stærðir XS-XL
Verð frá 399.000,-
HÆGINDASTÓLL
NJÓTTU
ÞESS AÐ SLAKA Á
Akureyri. Ég á mörg áhugamál,
finnst gaman að skrifa og er alæta
á bækur. Rek saumastofu í eld-
húsinu fyrir barnabörnin og þykir
gaman að elda mat. Við Yngvar
göngum mikið og njótum þess að
kynnast nýjum stöðum á tveimur
jafnfljótum. Við höfum t.d. gengið
yfir England, farið í lengri bak-
pokaferðir á Ítalíu, í Noregi og
Austurríki og erum enn að þökk
sé góðri heilsu.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Sigrúnar er
Norðmaðurinn Yngvar Bjørshol, f.
17.10. 1950. Þau eru búsett í
Aðalstræti á Akureyri.
Sigrún á tvo syni með Birni
Þórleifssyni, f. 2.12. 1947, d. 17.1.
2003: 1) Þórleifur Stefán, f. 3.10.
1970, framkvæmdastjóri T Plús.
Eiginkona hans er Rósa Mjöll
Heimisdóttir sérkennari, f. 1.6.
1972. Börn þeirra eru Aron Örn, f.
9.8. 1992, Katla Þöll, f. 11.12. 1998,
Þórey Edda, f. 23.8. 2000, og
Björn Orri, f. 7.6. 2005. Aron Örn
er kvæntur Brynju Reynisdóttur,
f. 1.9. 1994, og barn þeirra er
Bjarmi, f. 3.4. 2020; 2) Héðinn
Svarfdal, f. 15.12. 1974, félags-
sálfræðingur hjá Starfsendurhæf-
ingu Norðurlands. Eiginkona hans
er Elva Sturludóttir, f. 16.7. 1973,
félagsráðgjafi. Synir þeirra eru
Goði Svarfdal, f. 3.3. 2009, og Vík-
ingur Svarfdal, f. 2.3. 2013. Stjúp-
dóttir Héðins er Sóldögg, f. 11.12.
1994. Börn Yngvars eru 1) Line
Eliassen-Bjørshol, f. 21. 11. 1972,
viðskiptafræðingur. Synir hennar
með Jørgen Eliassen eru Alfred, f.
6.12. 1999, og Oliver; f. 21.5. 2002;
2) Espen Bjørshol, f. 11.3. 1976,
tæknifræðingur. Sambýliskona
hans er Monika Håkerud.
Systkini Sigrúnar eru 1) Þór-
arinn, f. 11.10. 1945, d. 19.5. 2010,
stýrimaður; 2) Gunnhildur, f. 4.4.
1952, sjúkraliði; 3) Árni, f. 10.10.
1953, íþróttakennari; 4) Páll, f.
25.3. 1960, rafvirki; 5) Ólöf, f. 20.5.
1965, lyfjafræðingur.
Foreldrar Sigrúnar voru hjónin
Petrína Soffía Þórarinsdóttir Eld-
járn húsfreyja, f. 17.2. 1922, d. 9.7.
2003, og Stefán Svarfdal Árnason,
fjármálafulltrúi RARIK, f. 14.4.
1920, d. 4.10. 2009.
Sigrún
Stefánsdóttir
Soffía Jónsdóttir
húsfreyja á Urðum
Sigurhjörtur Jóhannesson
bóndi á Urðum í Svarfaðardal
Sigrún Sigurhjartardóttir
húsfreyja á Tjörn í Svarfaðardal
Þórarinn Kr. Eldjárn
bóndi á Tjörn í Svarfaðardal
Petrína Soffía
Þórarinsdóttir Eldjárn
húsfreyja á Akureyri
Petrína Soffía Hjörleifsdóttir
húsfreyja á Tjörn
Kristján Eldjárn Þórarinsson
prestur á Tjörn í Svarfaðardal
Guðrún Björnsdóttir
húsfreyja á Grund í Þorvaldsdal
Friðfinnur Sveinn Jónsson
bóndi á Grund í Þorvaldsdal, Eyjaf.
Jónína Gunnhildur Friðfinnsdóttir
húsfreyja á Akureyri
Árni Stefánsson
húsasmíðameistari á Akureyri
Guðný Guðmundsdóttir
húsfreyja á Gestsstöðum
Stefán Guðmundsson
bóndi á Gestsstöðum í Fáskrúðsfirði
Ætt Sigrúnar Stefánsdóttur
Stefán Svarfdal Árnason
fjármálafulltrúi á Akureyri
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Karlmannslimur leynist hér,
Lykkja af honum geðjast mér.
Landsins forni fjandi er.
Fákur þetta heiti ber.
Guðrún B. leysir gátuna svona:
Göndull nefndur gráni er.
Gráni hákarlslykkja.
Gráni kallast hafís hér.
Hrossið Gráni bikkja.
Þessi er lausn Helga R. Ein-
arssonar:
Sem limur gráni leynist hér,
líka gráni hákarl er.
Gráni er heiti hafís á.
Í haganum má Grána sjá.
Sjálfur skýrir Guðmundur gát-
una þannig:
Gráni er limur getnaðar.
Gránar eru hákarlar.
Grána heiti hafís ber.
Hestur nefndur Gráni er.
Þá er limra:
Gráni var gæðinga bestur,
gráðugur át sá hestur
guðsorðabækur
og gerðist þá sprækur,
því hann var biblíuhestur.
Síðan er ný gáta eftir Guðmund:
Hríðin ekki linnir látum,
lítið skánar tíðin hér,
og síst er lát á góðum gátum
að glíma við, sem betur fer:
Götuheiti hér mun vera.
Hiklaust fer ég veginn þann.
Afglöp mörg, sem aular gera.
Einnig hrekkur vera kann.
Í Vísnasafni Jóhanns frá Flögu
segir að vísu þessa orti Magnús Sig-
urðsson frá Heiði í Gönguskörðum,
að hann hafi kveðið hana rétt áður
en hann fórst ásamt allri skipshöfn
(1862):
Þó ég sökkvi í saltan mar
sú er eina (eða: meina) vörnin:
Ekki grætur ekkjan par
eða kveina (eða: veina) börnin.
Hermann Jóhannesson orti:
Í ellinni ennþá ég megna
svo ákaft að furðu má gegna
á kvenfólkið væna
að mæna og mæna
– en ég man ekki lengur hvers vegna.
Örlygur Benediktsson kvað:
Til fjandans það fari og veri
allt fásinnið á þessu skeri!
Ég mæli því mót
að mæla því bót
að mótmælum mótmæla beri.
Gömul vísa í lokin:
Gaman er að sigla um sjó,
söðla ljóni ríða.
Indælast af öllu er þó
ungrar meyjar blíða.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Grána er víða að finna