Fréttablaðið - 07.04.2022, Síða 1

Fréttablaðið - 07.04.2022, Síða 1
6 8 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F I M M T U D A G U R 7 . A P R Í L 2 0 2 2 Flott samstarf í Nýlistasafninu Heilluðust af sleðahundum Menning ➤ 36 Lífið ➤ 38 Skoðaðu blaðið á netto.is Páskablað Nettó Frábært úrval af páskamat, góð tilboð, viðtöl og uppskriftir Ódýrt Mmm ... Allt í brönsinn! Einn fjórmenninganna sem sátu yfir 100 daga í gæsluvarð- haldi í Guðmundar- og Geir- finnsmálunum gagnrýnir harðlega aðkomu stjórnmála- manna að bótum til þeirra sem komu þeim í fangelsi með röngum sakargiftum. DÓMSMÁL Magnús Leópoldsson, einn fjórmenninganna sem upp- runalegir dómþolar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu beittu röngum sakargiftum með þeim afleiðingum að þeir sátu að ósekju í gæsluvarð- haldi í yfir 100 daga árið 1976, segir það þungbært fyrir þá að horfa upp á að fólkið sem dregið hafi þá saklausa inn í málið fái nú „greiddar himin- háar bætur, án þess að fyrir liggi niðurstaða Hæstaréttar um hvort og hvað þá hvaða áhrif sök þeirra eigi að hafa á bótagreiðslur.“ Hann hafi það á tilfinningunni að verið sé að greiða bætur fyrir að bera á þá rangar sakir. Magnús segir „afskipti stjórn- málamanna af þessu máli, fyrr og síðar, vera algerlega óþolandi og hafa valdið miklum skaða.“ Og Magnús segir þar ekkert lát á. „Það er vægast sagt einkennilegt að sumir stjórnmálamenn skuli hafa frumkvæði að því að greiða þessu fólki bætur án þess að fyrir liggi dómur eða endanlegt samkomu- lag um uppgjör málsins. Stjórn- málamenn eiga ekki að blanda sér í úrlausn dómsmála eða reyna að hafa áhrif á niðurstöðuna.“ Þá sé það undarleg hagsmuna- gæsla fyrir hönd ríkissjóðs að ákveða að áfrýja ekki nýlegum héraðsdómi í máli Erlu Bolladóttur. „Í mínum huga er ekki hægt að kveða þetta mál úr íslensku samfélagi hvað bætur varð- ar án endanlegs dóms Hæstaréttar,“ segir Magnús Leópoldsson. Hann er ómyrkur í máli gagnvart upprunalegu dómþolunum. Þeir beri fulla ábyrgð á því að afvega- leiða rannsóknina á sínum tíma, en í dómnum yfir þeim frá 1980 viður- kenni þeir að það hafi verið saman- tekin ráð að bendla Magnús, Einar Bollason, Valdimar Olsen og Sigur- björn heitinn Eiríksson við málið til að torvelda rannsókn þess, færi svo að upprunalegu dómþolarnir yrðu bendlaðir við það. Hugmyndin hafi verið að þá myndi rannsóknin bein- ast frá þeim. „Þetta fólk gerði af einhverjum ástæðum fyrir fram ráð fyrir að það yrði spurt út í Geirfinnsmálið og sammæltist um það að draga okkur saklausa inn í þetta mál, væntanlega til þess að dylja eigin glæpi,“ segir Magnús. Himinháar bótagreiðslur í þessu ljósi séu eftirlifandi fjórmenningum mjög þungbærar. SJÁ SÍÐU 10 Segir afskipti stjórnmálamanna af Geirfinnsmálinu algerlega óþolandi Magnús Leópoldsson. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR ÚKRAÍNA „Við höfum verið að skoða þessi mál og fylgst með en ekki tekið neina ákvörðun,“ segir Einar Einars- son, rekstrarstjóri Íseyjar hjá MS, spurður um hvort til standi að rifta samningum við Rússa. Kaupfélag Skagfirðinga, MS og KS, hafa ekki rift samningum við rúss- neska aðila um framleiðslu, sölu og dreifingu á Ísey skyri í Rússlandi. Forstöðumaður kjötafurðastöðvar KS, Ólafur Ágúst Andrésson, sem er kjörræðismaður Rússlands á Íslandi hefur ekki sagt sig frá þeirri stöðu. „Ég hef nú ekki einu sinni hugleitt það,“ segir Ólafur Ágúst. SJÁ SÍÐU 2 Ekki einu sinni hugleitt afsögn Ólafur Ágúst Andrésson Mikið var drukkið af vönduðum veigum í Gamla Bíó í gær. Þar fór fram Íslandsmeistaramót barþjóna sem er hluti af hátíðinni Reykjavík Cocktail Weekend sem Barþjónaklúbbur Ísland heldur ár hvert. Keppt var í tveimur greinum og var mótið vel sótt, að sögn Elnu Maríu Tómasdóttur, sem situr í stjórn Barþjónaklúbbsins. Hátíðin stendur til 10. apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.