Fréttablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 2
Hlusti á kveinstafi miðbæjarbúa Samningum MS og KS við rússneska aðila um fram- leiðslu og sölu á Ísey skyri í Rússlandi hefur ekki verið rift. Kjörræðismaður Rúss- lands á Íslandi hefur heldur ekki sagt af sér tigninni. kristinnhaukur@frettabladid.is ÚKRAÍNA Mjólkursamsalan og Kaupfélag Skagfirðinga, MS og KS, hafa ekki rift samningum við rúss- neska aðila um framleiðslu, sölu og dreifingu á Ísey skyri í Rússlandi. Forstöðumaður kjötafurðastöðvar KS sem er kjörræðismaður Rúss- lands á Íslandi hefur ekki sagt af sér þeirri stöðu. „Við höfum verið að skoða þessi mál og fylgst með en ekki tekið neina ákvörðun,“ segir Einar Einars- son, rekstrarstjóri Íseyjar hjá MS, spurður um hvort til standi að rifta samningum við Rússa. MS er með samning við rúss- neska félagið IcePro, sem er í eigu KS og rússneskra fjárfesta, frá árinu 2018. IcePro er svo með samning við mjólkurframleiðandann Lactika sem sér um að framleiða og dreifa Ísey skyri í Rússlandi. Einkum í höfuðborginni Moskvu og Sankti Pétursborg. Samkvæmt heimasíðu MS var heildarfjárfestingin 500 milljónir króna og markmiðið að ná 5.000 tonna ársframleiðslu fyrir Rússlandsmarkað á þremur árum. „Það eru engin riftunarákvæði sem hægt er að grípa til vegna þess ástands sem er,“ segir Einar en vildi þó ekki tjá sig um það hvort fyrir- tækið teldi sig bundið af samningn- um. Vildi Einar heldur ekki tjá sig um hvers vegna ekki væri búið að slíta þessu samstarfi í ljósi stríðsins og þeirra voðaverka sem séu að koma í ljós. En fjöldi fyrirtækja, stórra sem smárra, hefur hætt allri starfsemi í Rússlandi. Til að mynda skyndi- bitakeðjur á borð við McDonald’s og símaframleiðendur á borð við Apple, án þess að vera skikkaðir til þess. Aðspurður hvenær skoðun fyrir- tækisins lyki og ákvörðun yrði tekin sagðist Einar ekki ætla að tjá sig um það. Ólafur Ágúst Andrésson, for- stöðumaður kjötafurðastöðvar KS, varð kjörræðismaður Rússlands á Íslandi árið 2014. Í viðtali við hér- aðsmiðilinn Feyki það ár taldi hann að nafnbótin ætti eftir að nýtast honum vel í viðskiptum sem hann hefði farið fyrir í Rússlandi en hann hafði verið í forsvari fyrir kjöt- og fisksölu þar í landi. Ólafur segist ekki hafa sagt af sér sem kjörræðismaður þrátt fyrir stríðið. „Ég hef nú ekki einu sinni hugleitt það,“ segir hann. „Það er ekki brjálað að gera í þessu. Þetta snýst um að aðstoða almenna borg- ara, miðla menningu og aðstoða fólk í neyð. Til dæmis flóttafólk eða túrista. Eins og staðan er núna eru engir að koma.“ Aðspurður segist hann ekki hafa nein tengsl við stjórnvöld í Kreml. Kjötsölunni hafi verið sjálf hætt eftir innlimun Krímskaga árið 2014, en þá settu Rússar hömlur á matarinnflutning frá Íslandi og f leiri löndum sem beittu þá þving- unum. ■ Rússar geta enn bragðað á Ísey skyri þrátt fyrir stríðið Ísey hefur verið komið í búðir í Moskvu og Sankti Pétursborg. MYND/SKJÁSKOT Sími: 561 1433 mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30 laugardaga 8.00 -16.00 sunnudaga 9.00 -16.00 • Austurströnd 14 • Hringbraut 35 PREN TU N .IS NÝBAKAÐ BRAUÐ ALLA DAGA ....................................... www.bjornsbakari.is bth@frettabladid.is ÚKRAÍNA Engar vonir eru um frið eða vopnahlé að mati þeirra íbúa Úkraínu sem Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari í Kænugarði, hefur rætt við. Þetta kom fram í viðtali við Óskar á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld. Stríðsglæpir, nauðganir, aftökur og annar hryllingur eru daglegt brauð hjá rússneska hernum að sögn Óskars. Hann heimsótti Bútsja í fyrradag og ræddi við heimamenn. Hann segir að íbúar, börn, konur og gamalmenni hafi sjálf þurft að grafa eigin fjöldagrafir áður en fólkið var skotið. Óskar á úkraínsku eiginkonu og segist ekki á leið til Íslands. Þau hjónin veiti hvort öðru styrk sem vonandi dugi þeim til að halda sönsum. ■ Létu íbúana grafa eigin gröf í Bútsja Óskar ljósmyndari í Bútsja, sem líkja má við brunarústir að hans sögn. MYND/AÐSEND benediktboas@frettabladid.is SAMFÉLAG Hjónin Kristín Matthías- dóttir og Kristinn S. Jórmundsson vilja kaupa gömlu kirkjuna í Grinda- vík. Hjónin sátu bæjarráðsfund á þriðjudag og kynntu hugmyndir sínar um aukna starfsemi í gömlu kirkjunni með hugsanleg kaup í huga. Var Fannari Jónassyni bæjar- stjóra falið að vinna málið áfram. Ekki náðist í hann í gær. Kristinn vildi lítið tjá sig um hugsanleg kaup þegar Fréttablaðið sló á þráðinn. „Þetta er svona bara í bígerð. Nú er bara að bíða og sjá,“ segir hann. Nú fær hugmyndin að malla í kerfinu. Gamlan kirkjan var reist árið 1909. Var byggingarefnið að hluta til fengið úr gömlu kirkjunni að Stað sem byggð var 1858. Kirkjan þjónaði Grindvíkingum til 1982 þegar núver- andi kirkja þeirra var tekin í notkun. Frá 1988 var starfrækt barna- heimili í kirkjunni en þar hefur verið félagsstarfsemi undanfarin ár. ■ Hjón vilja kaupa gömlu kirkjuna Gamla kirkjan í Grindavík, reist 1909 og afhelguð 1982. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR VÞetta snýst um að aðstoða almenna borgara, miðla menn- ingu og aðstoða fólk í neyð. Ólafur Ágúst Andrésson kjör- ræðismaður Rússlands á Íslandi á Íbúafundur fyrir miðbæjarbúa var í Ráðhúsi Reykjavíkur í gærkvöld. Hannes Sigurðsson segir í Fréttablaðinu í dag að framganga næturklúbba í miðborginni sé „ekkert annað en hljóðpyndingar, hreint ofbeldi, í boði borgarinnar sem lætur kveinstafi íbúanna sem vind um eyru þjóta.“ SJÁ SÍÐU 18 FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 2 Fréttir 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.