Fréttablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 8
Ásgeir Þór Ásgeirsson,
yfirlögregluþjónn á
höfuðborgarsvæðinu,
segir byrlunarmál
ávallt tekin alvarlega.
Sjáumst á fjöllum
Ferðafélag Íslands • Mörkinni 6 • www.fi.is • 568-2533
SUMARLEYFISFERÐIR FÍ
www.fi.is
Kona sem telur sig hafa orðið
fyrir byrlun í einkasam-
kvæmi á Edition hótelinu
fyrir tveimur vikum segir við-
bragðsaðila hafa brugðist sér.
Hún segir fórnarlömb byrlana
í ómögulegri stöðu þegar
komi að öflun og varðveislu
sönnunargagna.
ninarichter@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Þrjátíu og sjö ára
gömul kona kveðst hafa orðið
fyrir byrlun þegar hún var úti að
skemmta sér með vinum aðfaranótt
27. mars. Hún hafi drukkið lítið um
kvöldið en fengið sér bjór í f lösku
nálægt miðnætti, í einkasamkvæmi
á lokuðum næturklúbbi á Edition
hótelinu, þar sem fyrir lá gestalisti.
Konan segist skyndilega hafa
fundið fyrir lömun í líkamanum,
eftir tvo sopa af bjórnum.
Konan fór heim í leigubíl og
segist hafa átt fullt í fangi með að
komast inn í íbúðina sína. Þegar
hún vaknaði morguninn eftir hafi
hún fundið fyrir sjóntruflunum og
áttað sig á því að ekki væri allt með
felldu. Hún hafi tekið bjórflöskuna
með sér heim fyrir rælni, og því haft
hana heima hjá sér á þeim tíma.
Eiturlyfjapróf greindi benzo-lyf
Hún hafi næst afráðið að hafa sam-
band við Læknavaktina, en fengið
þar ábendingar um að ekkert væri
gert í slíkum málum og þar væru
blóðsýni ekki tekin. „Læknarnir
standa ekki í því,“ hefur konan eftir
vakthafandi hjúkrunarfræðingi við
símaráðgjöf. Hjúkrunarfræðingur-
inn hafi ráðlagt henni að kaupa
eiturlyfjapróf til að ganga úr skugga
um byrlun. Konan gerði það og segir
eiturlyfjaprófið hafa sýnt merki um
benzo-lyf í þvagi.
Konan segist hafa hringt í lög-
regluna í framhaldinu, en fengið
þau svör að lítið yrði við þessu gert,
ekki yrðu tekin sýni af flöskunni og
það borgaði sig ekki fyrir hana að
gefa skýrslu. Slíkt væri eingöngu
tímasóun.
Lögregla tekur ekki skýrslu
Konan segist hafa mætt til lögregl-
unnar í annað sinn fjórum dögum
seinna, eftir að mesta áfallið var
liðið hjá. „Ég er sett þarna fram á
gang þar sem allir labba fram hjá. Ég
segi henni að ég sé ekki tilbúin að
opna mig um svona viðkvæmt mál á
einhverjum gangi.“ Hún kveðst hafa
fengið þau svör að kanna þyrfti mik-
ilvægi málsins áður en hægt væri að
bóka rými fyrir viðtalið. „Ég spyr:
Mikilvægi? Mér var byrlað, er það
ekki mikilvægt?“
Konan segir að ekkert hafi verið
skrifað niður á þeim tímapunkti.
„Ég spyr hvort ekki sé einhver vit-
undarvakning í gangi með öryggi á
djamminu og þá er svarið: Nei, það
vorum við aldrei að gera. Heldur þú
að við höfum fjármagnið og mann-
aflann í það?“
Konan segir að fulltrúi lögregl-
unnar hafi ekki tekið skýrslu vegna
málsins. „Henni fannst þetta ekki
nógu mikilvægt. Við töluðum í
klukkutíma. Mér blöskraði hversu
lítið var gert úr þessu.“
Ekki leyfi til að skoða myndbönd
Fulltrúi hafi spurt hana hvort blóð-
sýni hafi verið tekið. Konan segist
hafa reynt það en ekki fengið það
í gegn. „Ég fór ekki á neyðarmót-
tökuna af því að ég vissi ekki að ég
ætti að fara þangað,“ segir hún.
„Kannski var Læknavaktarinnar
að benda mér á að fara á neyðar-
móttökuna en ekki láta mig keyra
um allan bæ í alvarlegu ástandi að
leita að eiturlyfjaprófi, sönnunar-
gagni sem enginn vill sjá. Það vill
enginn eiturlyfjaprófið eða f lösk-
una sem varð eftir, til að rannsaka
þetta. Þannig að ekkert er skjalfest,“
segir konan.
Hún segir fulltrúa Edition hafa
verið samvinnuþýða og allt viljað
fyrir hana gera, en hins vegar komi
persónuverndarlög í veg fyrir að
hægt sé að skoða myndbandsupp-
tökur úr veislunni, til þess þurfi
dómsúrskurð. Þaðan hefur hún
einnig upplýsingar um að fleiri en
þeir sem voru á gestalista hafi fengið
aðgang, með samþykki aðstand-
enda viðburðarins, sem gefið var á
staðnum umrætt kvöld.
Konan segist hafa beðið lög-
regluna um að skoða myndböndin
en uppskorið háð. Hún hafi verið
spurð hvort hún héldi virkilega að
lögreglan skoðaði slík myndbönd.
Mikil auglýsingaherferð í gangi
Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögreglu-
þjónn hjá Lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, segir að mikil aug-
lýsingaherferð sé í gangi um þessar
mundir þar sem fólk er hvatt til að
líta til með fólki í kringum sig.
„Það er samstarfsverkefni lög-
reglunnar, Neyðarlínu og f leiri
aðila,“ segir Ásgeir.
Fyrr í vikunni sagði Ásgeir í
samtali við blaðið, ótengt þessu
máli, að í tilfellum þar sem grunur
leikur á um byrlun séu slík mál
alltaf tekin alvarlega og tekin séu
sýni, auk blóðsýna og læknisrann-
sóknar.
Elfa Björk Ragnarsdóttir, yfir-
hjúkrunarfræðingur á Lækna-
vaktinni, segir að tilfellum sem
þessu sé ætíð vísað á bráðamóttöku
og svörin sem konan hafi fengið í
þessu tilfelli séu ekki stöðluð svör
samkvæmt þeirra verklagi. Lækna-
vaktin taki heldur ekki blóðprufur
og hafi aldrei gert. n
Telur viðbragðsaðila hafa brugðist eftir byrlun
Yfirlögreglu-
stjóri segir
hefðbundna
verkferla aðra
en þá sem
konan lýsir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
georg@frettabladid.is
ÚKRAÍNA Yfirvöld í Bandaríkjunum
kynntu fyrir skömmu nýjar og hert-
ar refsiaðgerðir gegn rússneskum
fyrirtækjum og einstaklingum sem
tengjast stjórn Pútíns Rússlands-
forseta. Harðar þvinganir verða
settar á starfsemi tveggja stærstu
fjármálafyrirtækja Rússlands, Alfa
Bank og Sberbank.
Þá verða tvær uppkomnar dætur
Pútíns, María Vorontsova og
Katerína Tíkhonova, beittar við-
skiptaþvingunum af bandarískum
stjórnvöldum sem telja að stór hluti
af eignasafni Pútíns sé falinn meðal
fjölskyldumeðlima og vina hans.
Þess vegna hafi þeir beint spjótum
sínum að dætrum hans.
Aðrir fjölskyldumeðlimir hátt-
settra embættismanna verða sömu-
leiðis beittir þvingunum. Til að
mynda eiginkona og dóttir utanrík-
isráðherra Rússlands Sergeis Lavrov
og fjölskylda forsætisráðherrans
Míkhaíls Míshústín.
Þessar efnahagsþvinganir og
hrina af þvingunum frá öðrum
ríkjum víðs vegar um heim koma í
kjölfar fregna af voðaverkum sem
rússneski herinn er talinn hafa
framið gegn óbreyttum borgurum
á svæðum í nágrenni við Kænugarð.
Svæði sem rússneski herinn hefur
nýlega hörfað frá. Þar ber helst að
nefna fjöldamorðið í bænum Bútsja.
Ljósmyndir af fjötruðum líkum
óbreyttra borgara á götum bæjar-
ins hafa vakið mikla athygli og óhug
innan alþjóðasamfélagsins.
Deilt hefur verið um áhrif efna-
hagsþvingana á stríðsrekstur Pútíns
en víst er að þær eru farnar að hafa
áhrif á líf almennra borgara í land-
inu.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir
því að landsframleiðsla í Rússlandi
muni dragast saman um meira en 10
prósent og efnahagslegar framfarir
síðustu ára þurrkist þannig út. n
Dætur Pútíns beittar þvingunum
María Vorontsova og Katerína Tíkhonova með föður sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
8 Fréttir 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ