Fréttablaðið - 07.04.2022, Side 12

Fréttablaðið - 07.04.2022, Side 12
Þegar taprekstur A-hluta er farinn að teygja sig yfir nokkurra ára tímabil, eins og við sjáum í dag, þá höfum við af því áhyggjur. Sigurður Ármann Snævarr, sviðs- stjóri hag- og upplýsinga- sviðs Sam- bands íslenskra sveitarfélaga Fríar forskoðanir fyrir laseraðgerðir út apríl Tímapantanir 414 7000 /Augljos Útlit er fyrir verulegt tap á rekstri A-hluta sveitarfélaga þriðja árið í röð. Horfur yfirstandandi árs benda til tapreksturs sem nemur allt að tveimur prósentum af tekjum. Halli síðasta árs var enn meiri, eða þrjú prósent af tekjum. Þetta er talsvert verri niðurstaða en blasti við í kjöl- far efnahagshrunsins. ggunnars@frettabladid.is Í ljósi stöðunnar segir Sigurður Snævarr, sviðsstjóri hag- og upp- lýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga, ástæðu til að hafa verulegar áhyggjur. Hann telur ljóst að mörg sveitarfélög muni eiga erfitt með að halda úti lögbundinni þjónustu í óbreyttri mynd án þess að grípa til róttækra aðgerða. „Ef við berum stöðuna í dag saman við árin eftir hrun þá blasir við okkur þessi dökka mynd. Því miður. Rekstrarstaða sveitarfélaga á árunum eftir hrun var, þrátt fyrir allt, jákvæð. Á móti kemur reyndar að skuldastaðan er öllu skárri í dag. Þannig að það er ekki allt svart í þessu. En þegar taprekstur A-hluta er farinn að teygja sig yfir nokkurra ára tímabil, eins og við sjáum í dag, þá höfum við af því áhyggjur. Það er stóra myndin í þessu.“ Sigurður segir launakostnaðinn meginástæðu taprekstursins. „Þessi þróun varðandi launin er einfald- lega tifandi tímasprengja því þau eru talsvert lægri en á almennum markaði, þrátt fyrir hækkanir síð- ustu ára. Liðlega 58 prósent af tekj- unum fara í laun eins og staðan er í dag, fyrir utan lífeyrisskuldbind- ingar,“ segir Sigurður. Helsta skýringin að baki aukn- um launakostnaði liggur í auknum skuldbindingum sveitarfélaga í tengslum við lögbundna þjónustu. Auknar kröfur samhliða lagabreyt- ingum hafa leitt af sér stóraukinn launakostnað og fjölgun stöðu- gilda. Ef rýnt er í einstaka málaflokka er staðan einna verst í þjónustu við fatlað fólk. Þar hefur hallinn aukist ár frá ári. Munurinn á framlögum ríkisins og raunkostnaði þjónust- unnar nemur nú um 10 milljörðum á ári. Sigurður bendir á að þetta bil þurfi sveitarfélögin svo að brúa með öðrum tekjustofnum. Það gefi augaleið. Það sem eykur enn á áhyggjurn- ar, að mati Sigurðar, er að ekkert lát virðist vera á neikvæðri þróun næstu árin. Útlit sé fyrir að þjón- ustan muni aukast enn frekar með tilheyrandi kostnaði og áframhald- andi hallarekstri. Heilt yfir vill Sigurður þó meina að sveitarfélögin hafi staðið sig vel. Þeim hafi, þrátt fyrir allt, tekist að sigla þokkalega í gegnum heims- faraldurinn. Hugmy ndin með yfirfærslu tiltekinna málaf lokka frá ríki til sveitarfélaga hafi verið að bæta þjónustuna og færa hana nær íbúunum. Það hafi í meginat- riðum tekist. Ef markmið um lægri skuldir sveitarfélaga eiga að nást, líkt og talað hefur verið um, þá verður það ekki gert öðruvísi en með niður- skurði eða stórauknum tekjum, að mati Sigurðar. „Sveitarfélögin eru misjafnlega í stakk búin til að vinda ofan af stöð- unni. Svigrúm til nýframkvæmda er lítið sem ekkert við þessar aðstæður. Það skapar svo ákveðinn vanda sem við veltum á undan okkur inn í fram- tíðina,“ að sögn Sigurðar. Hann segir að dregið hafi verulega úr fjárfesting- um sveitarfélaga. Útlit sé fyrir að þær þrengingar muni halda áfram næstu árin. Bág rekstrarstaða sveitarfélaga skapi alltaf ákveðinn vanda, sérstak- lega í aðdraganda kosninga. „Ef við tökum sem dæmi hugmyndir um gjaldfrjálsa leikskóla þá er nokkuð ljóst hvaðan fjármagnið þarf að koma svo það geti orðið að veruleika. Núverandi rekstrarstaða gefur ein- faldlega engin tilefni til hástemmdra loforða. Tala nú ekki um ef þau hafa í för með sér mikinn tekjusamdrátt.“ Sigurður telur að sveitarfélögin standi í raun frammi fyrir tveimur kostum í stöðunni. Annar sé að þau leggi allt sitt traust á að hag- vöxtur taki hratt við sér á næstu árum og auknar tekjur geri þeim þannig kleift að snúa við blaðinu án þess skerða þjónustu. Hin leiðin sé hreinn og beinn niðurskurður. Staðan sem blasir við sveitar- félögum í dag kalli í öllu falli á aðhald næstu árin ef ekki eigi illa að fara. ■ Staða sveitarfélaganna mun alvarlegri í dag en í kjölfar hrunsins Horfur í rekstri sveitarfélaga eru dökkar. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK ggunnars@frettabladid.is Ferðaþjónustan á Íslandi er í erfiðri stöðu í kjölfar heimsfaraldursins. Erlendir ferðamenn streyma nú aftur til landsins og horfur fyrir sumarið eru góðar. Stóri vandi greinarinnar um þessar mundir, að mati Ásbergs Jónssonar fram- kvæmdastjóra Travel Connect, er hins vegar mikil skuldsetning. Mörg fyrirtæki eru löskuð og það er þreyta í greininni. Eðlilega eru þau mjög misjafnlega í stakk búin til að stækka hratt og bregðast við aukn- um fyrirsjáanlegum umsvifum. „Þessi staða skapar mikið ójafn- vægi. Það er skortur á starfsfólki, rútum og bílaleigubílum. Þar fyrir utan glímum við áfram við kunnug- lega óvissu. Krónan er að styrkjast og laun að hækka. Allt gerir þetta það að verkum að fyrirtæki þurfa, sem fyrr, að vera mjög sveigjanleg og sýna þá ótrúlegu seiglu sem þau sýndu í gegnum faraldurinn, segir Ásberg. Ásberg bendir á að það sé í raun ótrúlegt hversu mörg fyrirtæki eru enn starfandi eftir öll þau áföll sem á þeim hafa dunið. ■ Ferðaþjónustan þarf seiglu og sveigjanleika magdalena@frettabladid.is Baldur Thorlacius, framkvæmda- stjóri sölu og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland, segir að mikilvægt sé að auka erlent eignarhald í inn- lendum félögum en það sé eitthvað sem gerist ekki af sjálfu sér. Þetta sagði hann í sjónvarpsþættinum Markaðinum sem sýndur var á sjón- varpsstöðinni Hringbraut í gær. „Þetta eru mjög góð og öf lug tímamót til að bæta þessa stöðu en það er ekki eitthvað sem gerist af sjálfu sér,“ segir Baldur og bætir við að mikilvægt sé að halda umbóta- starfi áfram. „Ef við höldum áfram umbóta- starfi sem við höfum verið að vinna í með markaðsaðilum, löggjafanum, Seðlabankanum og öðrum og sjáum til þess að markaðsumgjörðin upp- fylli alla helstu gæðastaðla þá mun það leiða til frekari áhuga erlendra aðila á innlenda markaðnum. En markaðurinn þarf líka að halda áfram að stækka með nýskráning- um og ef hann gerir það og ef við höldum áfram að klífa þennan stiga hjá MSCI þá er ég sannfærður um að við getum aukið erlent eignarhald í innlendum félögum.“ ■ Mikilvægt að auka erlent eignarhald olafur@frettabladid.is Samkvæmt nýju verðmati er Brim 138 milljarða virði. Samkvæmt því ætti gengi hlutabréfa í Brim að vera 72 en lokagengi á markaði í gær var 101. Þetta kemur fram í verðmati frá Jakobsson Capital sem Markaðurinn hefur undir höndum. Horfur félagsins eru sagðar góðar. Árið 2022 mun hins vegar hafa áhrif að úthlutað aflamark í þorski verður nokkuð lægra en árið á undan. Staða aflaheimilda í þorski var tæplega 29 prósentum lægri í lok síðasta árs en í lok 2020. Staða aflaheimilda í botn- fiski í heild var um 21 prósenti lægri í árslok 2021 en í lok árs 2020. Á móti kemur að verðvísitala botnf iskafurða hefur hæk kað um 18 prósent. Áhrif átakanna í Úkraínu eru ekki farin að koma í ljós en allt bendir samt til að verð sjávarafurða hækki samfara hærra matvælaverði. Jakobsson Capital gerir ráð fyrir að tekjur af botnfiski aukist um 5 prósent þrátt fyrir lægri aflaheim- ildir. Framlegð af uppsjávarveiðum var 48 prósent árið 2021 samanborið við 38,2 prósenta framlegð árið 2020. Meðalframlegðarhlutfall síðustu 10 ára hefur verið 36,5 prósent. Fiskverð hefur hækkað samfellt undanfarin ár. Stríðið í Úkraínu veldur verðhækkunum sem koma Brimi og öðrum íslenskum útgerðar- fyrirtækjum vel. Miklar verðhækkanir á olíu vega upp á móti hækkunum á verði sjáv- arafurða og gerir Jakobsson Capital ráð fyrir óbreyttu framlegðarhlut- falli milli áranna 2021 og 2022. Á næsta ári er gert ráð fyrir lægra fram- legðarhlutfalli. ■ Brim metið 30 prósent undir markaðsgengi Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims 12 Fréttir 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 7. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.