Fréttablaðið - 07.04.2022, Síða 22
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
9.
ap
ríl
Há
tíð
a rd
a g
sk
rá
Sý
n in
ga
r
R a
tl e
ik i
r
Allra veðra von!
á Náttúrufræðistofu Kópavogs
Heimur á ævintýranna
á Bókasafni Kópavogs
12:00 Leikhópurinn Lotta Bókasafn Kópavogs
11:00 Páskaföndur Lindasafn
13:00 Barnakór Smáraskóla Bókasafn Kópavogs
13:15 Skólakór Hörðuvallaskóla Salurinn
13:45 Marimbasveit Smáraskóla Salurinn
14:30 Danspartý Salurinn
15:30 Rokksveitin Hvassviðri Salurinn
16:00 Nordjysk pigekor Kópavogskirkja
og Skólakór Kársness
15:00 Örsögusamkeppni Bóksafn Kópavogs
Vatnsdropans
13:30 Skólakór Kársness Gerðarsafn
12:30 Allra veðra von! Náttúrufræðistofa
Veður- og loftslagsspjall með Sævari Helga.
13:00 Sjóndeildarhringurinn Gerðarsafn
Grafíksmiðja fyrir fjölskyldur.
12:40 Hér á ég heima Salurinn
Kórar úr Hörðuvallaskóla, Kársnesskóla og Smáraskóla.
13:30 Allra veðra von! Náttúrufræðistofa
Veður- og loftslagsspjall með Sævari Helga.
14:00 Búkolla Salurinn
Tónlistarævintýri eftir Gunnar Andreas Kristinsson.
5.- 9. apríl
5. - 25. apríl Söguhetjur ævintýranna
Sýning í barnadeild Bókasafns Kópavogs
á verkum 120 leikskólabarna í Kópavogi.
9. - 10. apríl Sólarprent
Sýning í Gerðarsafni á verkum nemenda
í 1. bekk í Kársnesskóla og Smáraskóla.
5. - 25. apríl Smásögur Vatnsdropans
Sýning í Bókasafni Kópavogs á smásögum
eftir börn úr 5. bekk í grunnskólum Kópavogs.
5. - 9. apríl Leggjum línurnar
Sýning á Náttúrufræðistofu á verkum 400 nemenda
í 10. bekk í Kópavogi sem tóku þátt í samnefndu
loftslagsverkefni Náttúrufræðistofunnar.
MEKO.IS
Júlíus pónýhesta-einhyrningur,
Dans-stelpa, Doppa, Hugsunar-
vélmenni og Rauðpanda dvelja nú
á Bókasafni Kópavogs yfir Barna-
menningarhátíðina. Þau hafa hvert
um sig mismunandi ofurkrafta og
nota þá alltaf þegar kallað er eftir
þeirra hjálp. Þessar ofurhetjur eru
hluti af sýningunni „Söguhetjur
ævintýranna“ sem 120 leikskóla-
börn í Kópavogi unnu í samstarfi
við Bókasafn Kópavogs. Um er að
ræða litríka sýningu sem hverfist
um ímyndunaraflið og ævintýrið.
Og hvað gera slíkar söguhetjur
alla daga? Jú, þær fljúga, berjast við
bófa, skjóta á vondu drekana, töfra
fram blóm, hjálpa þeim sem eru í
vanda og eru með græna, gula og
bláa krafta.
Á meðan söguhetjurnar fremja
hetjudáðir eru þær Friðrika Eik Z.
Ragnars og Inga Bríet Valberg að
skapa sína list í Vatnsdropanum,
alþjóðlegu barnamenningarverk-
efni sem Kópavogur gengst fyrir
í samvinnu við H.C. Andersen-
safnið í Óðinsvéum, Múmínsafnið
í Tampere og Undraheim Ilon Wik-
lands í Haapsalu í Eistlandi. Vatns-
dropinn hverfist um norrænar
barnabókmenntir, í tengslum
við Heimsmarkmið Sameinuðu
þjóðanna og umhverfismál.
Spenntar fyrir dagskránni
Friðrika Eik og Inga Bríet taka þátt
í Barnamenningarhátíð og eru
mjög spenntar fyrir fjölbreyttri
dagskrá hátíðarinnar á laugar-
daginn. Þær ætla báðar að taka þátt
í Örsögusamkeppninni sem snýst
um að skrifa sögu á hálftíma. „Mér
finnst svo gaman að skrifa og ég
hef skrifað margar sögur,“ segir
Friðrika. „Ég fer líka á útgáfuhófið
þegar smásögur eftir 5. bekkinga
verða gefnar út því ég á eina sögu
þar.“
Ingu finnst Örsögusamkeppnin
líka mjög spennandi. „Svo finnst
mér gaman að hlusta á tónlist
og Leikhópurinn Lotta er alltaf
skemmtilegur.“
Fræðslufjör og danspartí
„Hei, Marimbasveitin er spenn-
andi,“ heyrist í Ingu. „Hvað er
það?“ spyr Friðrika um leið. „Það
veit ég ekki en nafnið er bara
spennandi. Ég ætla að vera allan
daginn í Menningarhúsunum því
þar verða svo margir skemmtilegir
viðburðir,“ segir Inga ákveðin.
„Ég ætla líka á Fræðslufjörið með
Sævari Helga því alltaf þegar ég
horfi á þátt með Sævari Helga, eins
og þegar hann kom á ráðstefnu
Vatnsdropans, þá er svo gaman að
hlusta á hann og fræðast. Ég læri
alltaf svo mikið hjá honum.“ Frið-
rika ætlar líka á Fræðslufjörið með
Sævari Helga. „Svo elska ég ratleiki
og ætla að fara í þá sem verða á
laugardaginn,“ bætir hún við.
Þær eru sammála um að dans-
partíið með Friðriki Agna og
Önnu Claessen verði skemmtilegt.
„Mér finnst svo gaman að dansa,“
segir Inga og stekkur upp úr
sófanum. „Sérstaklega í partíum
því þá dansar maður svo mikið. Ég
dansaði meira að segja í Krónunni
um daginn,“ segir hún og skelli-
hlær. „Ég dansaði einu sinni alltaf
heima,“ bætir Friðrika við. „En
núna dansa ég bara úti um allt. Ég
dansaði einu sinni úti á götu.“
Kúl að vera í Vatnsdropanum
Þessar hressu og skapandi stelpur
eru ánægðar með þátttöku sína í
Vatnsdropanum. „Það er æðislegt,
það er kúl að vera í Vatnsdrop-
anum,“ segir Inga og Friðrika bætir
við: „Við fáum að gera verkefni sem
enginn krakki fær annars að gera.
Mamma segir að við séum mjög
heppin, setjum upp sýningar og
hátíðir og hittum sérfræðinga. Mér
finnst það líka og þetta er æðislega
gaman.“
En hvað skyldi þeim finnast
eftirminnilegast hingað til í Vatns-
dropanum?
Friðrika er ekki lengi að svara:
„Þegar við fórum til Baltasars
að læra hvernig við getum gert
vídeó á spjaldtölvurnar okkar,“ og
Inga bætir við: „Já, það var æðis-
legt. Þar fékk ég hugmyndina að
ljósmyndaverkefninu mínu. Það
var mjög gaman að heimsækja
Baltasar.“
Það er ekki komið að tómum
kofanum hjá þessum einstaklega
skapandi stelpum svo við gátum
ekki stillt okkur um að spyrja
um framtíðina. „Ég ætla að verða
leikari eða sjónvarpskona,“ segir
Inga ákveðin. Friðrika hugsar sig
aðeins um og segir svo: „Ég ætla
að verða kokkur eða leikskóla-
kennari því mér finnst svo gaman
að vera í kringum lítil börn, teikna
með þeim og hjálpa þeim að nota
ímyndunaraflið.“ ■
Sögurhetjur
ævintýranna
hverfast um
ímyndunaraflið
og á laugardag
er fjölbreytt
Barnamenn-
ingardagskrá í
Menningarhús-
um Kópavogs.
MYND/
GUNNAR BJARKI
2 kynningarblað A L LT 7. apríl 2022 FIMMTUDAGUR