Fréttablaðið - 07.04.2022, Page 24

Fréttablaðið - 07.04.2022, Page 24
Maríanna Pálsdóttir, snyrti- og förðunarfræðingur, leggur áherslu á að fagfólk ráðleggi við val á húð- og snyrtivörum. „Mér finnst þörf umræðan um að fólk láti ekki selja sér hvað sem er. Ég segi það, því ég hef ofnæmi fyrir söluræðum. Á einum stærsta mark­ aði heims, sem er snyrtivörubrans­ inn, reyna flestir að selja sem mest og þá gleymist oft að huga að per­ sónulegum þörfum hvers og eins. Þá er eins og fagmennskan dvíni samhliða því að ná árangri í sölu og virðist þá engu skipta hver selur. Við bætast svo áhrifavaldar sem fá gefins ýmiss konar snyrtivörur og fá jafnvel greitt fyrir að mæla með þeim og segja að þær séu „bestu vörur sem þeir hafa prófað“ og allir rjúka til að kaupa, burtséð frá því hvort varan hentar þeim eða ekki. Og vegna þess að stóri snyrtivöru­ risinn fékk fræga leikkonu til að vera andlit vörunnar hlaupa að­ dáendur leikkonunnar á eftir því. Þetta er auðvitað varhugavert og því segi ég enn og aftur: Ekki láta selja þér hvað sem er, og ekki láta blekkjast.“ Þetta segir Maríanna Pálsdóttir, snyrti­ og förðunarfræðingur. Maríanna er eigandi MP Studio og starfar á sjónvarpsstöðinni Hring­ braut, ásamt því að farða fyrir Fréttablaðið. Hún hlaut sérstök verðlaun úr hendi forseta Íslands fyrir framúrskarandi árangur í námi þegar hún útskrifaðist með sveinspróf í snyrtifræði. Ekki láta selja þér hvað sem er Maríanna Pálsdóttir er snyrtifræðingur á sjónvarps- stöðinni Hring- braut. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg @frettabladid.is Gott fyrir húðina og budduna Maríanna er í startholunum með vikulega pistla um heilsu og fegurð í Fréttablaðinu. Hún leggur áherslu á að fólk leiti til fagfólks eftir ráðleggingum um val á snyrti­ og förðunarvörum, og þar standi snyrtifræðingar upp úr. „Margir sækja í að kaupa snyrti­ vörur á afsláttardögum. Þá er gott að hafa hugfast að kannski er ekki alls staðar fagfólk til aðstoðar heldur sölumenn sem fá prósentur fyrir. Vissulega eru margir frábærir snyrtifræðingar innan um, en engu að síður er mikilvægt að vera viss um að það sé einmitt snyrtifræð­ ingur þar sem ófaglært starfsfólk hefur ekki sömu sérfræðiþekkingu til að ráðleggja viðskiptavinum sem best. Í námi snyrtifræðinga er til dæmis farið djúpt í lífefnafræði, lífeðlisfræði, efnafræði og húð­ sjúkdómafræði til að greina húð, ráðleggja fólki, vísa því áfram til lækna ef þarf, og mögulega koma í veg fyrir stórskaða. Því skyldi alltaf spyrja hvort viðkomandi sé snyrtifræðingur, og ef svo er, hvort hann geti gefið sér smá tíma til að aðstoða þig við að velja réttar vörur fyrir þína húðgerð,“ segir Maríanna. „Að velja réttar snyrtivörur er líka mikilvægt fyrir budduna því í dag geta snyrtivörur kostað óheyrilega mikið. Hversu mikil vonbrigði eru að kaupa sér krem á fleiri tugi þúsunda sem svo virkar ekki eins og væntingar standa til, þig jafnvel svíður af eða líður illa með? Á sama tíma leyfir samviskan ekki annað en að þú klárir vöruna sem kostaði sitt enda ekkert grín að fara út í búð og kaupa sér hreinsivörur, djúp­ hreinsa, serum, dagkrem, nætur­ krem og augnkrem, fyrir utan allar förðunarvörurnar, svo sem farða, púður, maskara, varalit og augn­ blýant. Fæstir hafa efni á því öllu og ef þeir á annað borð leyfa sér slíkan munað er eins gott að það sé valið út frá réttri húðgerð,“ segir Maríanna og bætir við: „Einnig myndi ég alltaf hugsa mig tvisvar um ef ég gæti ekki fengið krem­ prufur, til að sjá hvernig húðin bregst við og mér líkar, því ef mér líkar vel við kremið kem ég hvort eð er aftur til að kaupa það.“ Engin krem gera kraftaverk Lykil að því að kaupa réttar húð­ vörur segir Maríanna vera að fara í húðgreiningu hjá snyrtifræðingi. „Þá leggstu á bekk snyrti­ fræðings sem hreinsar húð þína, tekur við þig almennt spjall um hvernig þú hugsar um þig, hvort þú drekkir nóg vatn, hreyfir þig, borðir hollan mat, eða oft sterkan mat, notir áfengi eða reykir, því svo margt hefur áhrif á útlit húðar, líka streita, mengun og óhófleg sóldýrkun. Ef við viljum fyrir alvöru huga að góðu heilbrigði húðarinnar og vita hvaða krem virka fyrir okkur þurfum við að leita til fagaðila, en ekki fara af stað í verslun í blindu trausti og kaupa krem í góðri trú um að það geri okkur gott. Við þurfum að vita hvernig húðgerð okkar er svo komist sé hjá því að nota til dæmis grófan kornamaska á mjög viðkvæma húð, sem getur verið jafn slæmt og að setja sandpappír á barnshúð,“ greinir Maríanna frá. Hún segir engin krem gera kraftaverk, sama hverju sé lofað. „Ef til mín kemur kona sem hefur reykt alla tíð eða er kannski með áfengisvanda, borðar ekki heilnæmt fæði og hugsar lítt um sig, en segir: „Æ, mig vantar gott krem til að laga þetta andlit,“ þá er ekki til það krem sem lagar andlit yfir nótt. Sama kona þyrfti heldur ekki að útlista fyrir mér lífsstílinn; ég sé hvernig hann er því allt sem maður setur ofan í sig kemur fram í húðinni og þótt það hjálpi til að hreinsa húðina kvölds og morgna, og djúphreinsa með kornamaska tvisvar í viku, þá gerast engin kraftaverk á einni nóttu. Ef við erum bólgin undir augum þurfum við að íhuga hvort eitthvað sé í ólagi í nýrum eða lifur, því húðin endurspeglar það sem kemur innan frá. Við verðum því að leggja inn fyrir því að líta vel út og að húð okkar sé glóandi fín og falleg.“ Maríanna bendir á annað mikilvægt atriði þegar keyptar eru húðvörur. „Það er að mæta án farða og með hreina húð í snyrtivöruverslanir. Annars getur snyrtifræðingur illa metið húð þína.“ List að draga fram fegurð fólks Í starfi sínu á Hringbraut fær Marí­ anna fjölda karla til sín í stólinn. „Ég finn að karlar eru farnir að hugsa meira um húð sína en áður, en þeir eru enn svolítið feimnir. Öll erum við með húð, hvort sem við fæðumst sem kona eða karl, og ekki síður gott fyrir karlmenn að næra húð sína með góðu kremi. Þeir taka vel í ráðleggingar mínar og ég byrja alltaf á að velja krem fyrir hvern og einn. Margir eru með þurra og skorpna húð eftir harðan vetur og þykir þægilegt að fá krem og andlitsnudd. Við mannfólkið erum vön því að heilsast með handabandi en að sama skapi óvön því að einhver nuddi á okkur andlitið og næri húð okkar. Því tala margir um að þeir geti vart beðið eftir því að komast aftur í stólinn til mín,“ segir Maríanna og hlær. „Húðin er stærsta líffærið og við þurfum að skoða hana í stærra samhengi. Mitt besta ráð varðandi líkamann allan og umhirðu er að kaupa þurrbursta og bursta húðina annan hvern dag. Við það losna gamlar húðfrumur, húðin getur andað á ný og endurnýjað sig. Síðan að skola húðina og bera á hana góða, hreina olíu. Það er eins og að vera blóm sem er vökvað. Sjálfri líður mér aldrei betur en á eftir, ég finn húðina lifna við, örvun í öllu sogæðakerfinu og mikla vellíðan. Allt er þetta hluti af sjálfsást. Við þurfum að muna að það er heildrænt að hugsa um sjálfan sig og enginn galdur með kremi eða serumi á mettíma,“ segir Maríanna. Snyrtifræðingar eru einnig menntaðir í að sjá það sem hugsan­ lega þarf að skoða betur, svo sem roða, litabletti og vessa í húð. „Ef vandamálið er utan okkar sviðs bendum við alltaf á húð­ lækna. Líka ef unglingabólur eru með bólgum, sýkingum eða tilheyrandi skemmdum í húð, eða ef kona yfir fertugt fer allt í einu að fá bólur eða hárvöxt í andlit, þá veit maður að hormónarnir eru komnir í ójafnvægi. Þá má alls ekki fara í bakkgírinn, grípa til örþrifa­ ráða og raka á sér andlitið, því til eru lausnir,“ segir Maríanna. Hún er í draumastarfinu. „Mér finnst gaman að geta dregið fram það fallegasta í fólki. Það er list. Ég er skapandi einstaklingur og var alltaf í uppáhaldi hjá mynd­ listar­, textíl­ og smíðakennur­ unum. Það skiptir máli að vera góður mannþekkjari í þessu starfi og að kunna að lesa í andlitin og aðstæður því stundum er fólk mjög stressað fyrir viðtöl. Þá er hlutverk mitt að róa viðmælendur og koma þeim í toppmál áður en farið er í viðtölin, um leið og þeir líta sem allra best út.“ n Það eru ekki til kraftaverkakrem sem laga andlit yfir nótt. Við verðum að leggja inn fyrir því að líta vel út og að húð okkar sé glóandi fín og falleg. Mér finnst gaman að geta dregið fram það fallegasta í fólki. Það er list. S Í G I L D K Á P U B Ú Ð Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is Laxdal er í leiðinniFylgið okkur á FB SKOÐIÐ LAXDAL .IS Litríkir vorjakkar. 4 kynningarblað A L LT 7. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.