Fréttablaðið - 07.04.2022, Síða 30
Það eina
sem Óskar
vantar í
starfinu er
að vinna
titil.
Viktor
þarf að
halda sama
dampi
ætli Blikar
sér sigur í
deildinni.
n Lykilmaðurinn
n Vörn
n Miðja
n Fylgstu með ▲ Komnir/farnir ▼
n Albert segir
n Sókn
n Þjálfari
Breiðablik hafnar í 4. sæti
n Spá Fréttablaðsins
1. sæti ?
2. sæti ?
3. sæti ?
4. sæti Breiðablik
5. sæti KR
6. sæti Stjarnan
7. sæti ÍA
8. sæti Leiknir R
9. sæti KA
10. sæti ÍBV
11. sæti Keflavík
12. sæti Fram
Það verður hart barist um efstu
sæti deildarinnar í ár og sam-
kvæmt spá Fréttablaðsins mun
Breiðablik enda í því fjórða. Það
væru sár vonbrigði fyrir Blika
að enda í fjórða sæti eftir að
hafa barist um titilinn í fyrra.
Liðið hefur hins vegar misst
lykilmenn og óvíst er hversu
öflug styrkingin er sem Óskar
Hrafn Þorvaldsson hefur sótt
í vetur.
Viktor Karl
Einarsson
Viktor Karl Einarsson skrifaði
undir nýjan fjögurra ára samning
við Breiðablik á dögunum sem
eru gleðitíðindi fyrir Blika. Viktor
Karl var frábær á síðustu leiktíð
og sannaði þá fyrir öllum hversu
góður leikmaður hann er. Viktor
býr yfir mikilli hlaupagetu en er
einnig tæknilega sterkur. Hann
er bæði góður sóknarmaður en
einnig öflugur varnarmaður.
Viktor er 25 ára gamall og á sér
þann draum að komast aftur út í
atvinnumennsku. Hann fór ungur
að árum til Hollands og reyndi
svo fyrir sér í Svíþjóð áður en
hann hélt aftur heim. Hann þarf
að halda sama dampi frá síðasta
sumri og þá munu félög koma
með stóru seðlana í Kópavoginn
og sækja Viktor. Eigi Blikum að
takast að berjast um þá titla sem
í boði eru í sumar, þarf Viktor að
vera í sínu besta formi.
Albert Brynjar
Ingason
Gengi síðustu sex tímabil
2016 6. sæti | 2017 6. sæti | 2018 2. sæti | 2019 2. sæti | 2020 4. sæti | 2021 2. sæti
n Íslandsmeistarar 2010 n Bikarmeistarar 2009
▲ Dagur Dan Þórhallsson
▲ Adam Örn Arnarson
▲ Ísak Snær Þorvaldsson
▲ Juan Camilo Perez
▲ Mikkel Qvist
▲ Omar Sowe (lán)
▲ Pétur Theodór Árnason
▼ Thomas Mikkelsen
▼ Árni Vilhjálmsson
▼ Alexander Helgi Sigurðarson
▼ Davíð Örn Atlason
Omar Sowe er framherji frá
Bandaríkjunum sem Breiðablik
fékk að láni frá New York Red
Bulls út þessa leiktíð. Sowe hefur
að mestu leikið með varaliði Red
Bulls en Blikum sárvantaði fram-
herja eftir að Árni Vilhjálmsson
og Thomas Mikkelsen yfirgáfu
herbúðir félagsins. Omar er 21 árs
gamall en hann flutti til Bandaríkj-
anna frá Gambíu þegar hann var
9 ára gamall. Hefur mikinn hraða
og er líkamlega sterkur, gæti verið
nýtt vopn í leik Blika að vera með
sóknarmann sem vinnur inn fyrir
línur andstæðinganna. Byrjunin
hefur verið erfið fyrir Omar sem
kom veikur til landsins, hann sýndi
hins vegar vopn sín í æfingaleik
gegn Val á dögunum.
Óskar Hrafn Þorvaldsson er á
leið inn í sitt þriðja tímabil með
Blika. Óskar hefur gjörbreytt
spilamennskunni og hefur
liðið spilað mjög skemmtilegan
fótbolta. Það er hins vegar að
koma að þeim tímapunkti að
spilamennska Blika þarf að skila
titlum. Liðið var hænu skrefi frá
því á síðasta ári en rann á rass-
inn þegar allt var undir. Óskari
þarf að takast að búa til lið sem
vinnur titil. Óskar er kröfuharð-
ur á sig og leikmennina, hann
æfir meira en flest lið og hefur
haft leikmennina á sínu bandi
í þessari vegferð. Leikmanna-
kaup Óskars í vetur hafa vakið
athygli en óvíst er hversu öflug
styrkingin er.
Mikil breidd er í varnarlínu
Breiðabliks en Óskar Hrafn
hefur úr fjórum miðvörðum
að velja. Breiðablik er með þá
Damir Muminovic og Viktor Örn
Margeirsson sem ná vel saman.
Elfar Freyr Helgason hefur
jafnað sig af erfiðum meiðslum
og að auki bætti liðið Mikkel
Qvist við hópinn. Danski varnar-
maðurinn er stæðilegur með
góðan vinstri fót. Höskuldur
Gunnlaugsson var svo frábær
sem hægri bakvörður á síðustu
leiktíð en á dögunum kom
Adam Örn Arnarson heim úr
atvinnumennsku, þar er mikil
samkeppni. Vinstra megin er
svo Davíð Ingvarsson sem er
einn besti bakvörður deildar-
innar og erlend lið hafa mikinn
áhuga á honum.
Það er ótrúleg breidd á mið-
svæði Breiðabliks en óvíst er
hvernig Óskar muni stilla henni
upp. Ljóst má vera að Gísli Eyj-
ólfsson og Viktor Karl Einarsson
verði áfram í lykilhlutverki sem
tveir fremri miðjumenn félags-
ins. Alexander Helgi Sigurðar-
son yfirgaf hins vegar herbúðir
félagsins í vetur og er það
blóðtaka, Alexander var frábær
á síðata tímabili. Ísak Snær Þor-
valdsson getur leyst stöðuna
en hann hefur ekki fundið
taktinn í vetur. Oliver Sigurjóns-
son og Andri Rafn Yeoman eru
svo enn til taks og þeir þekkja
hlutverk djúpa miðjumannsins
vel. Hinn ungi Anton Logi Lúð-
víksson hefur svo verið öflugur
í vetur. Þá bættu Blikar við Degi
Dan Þórhallssyni.
Kristinn Steindórsson hefur
leitt framlínu Breiðabliks af
stakri snilld í vetur og mun fá
traustið til þess í upphafi móts
að leiða framlínu félagsins.
Kristinn er lunkinn framherji
sem er alltaf meðvitaður um
hvar markið er staðsett. Hefur
á síðustu tveimur árum gengið
í endurnýjun lífdaganna í
Kópavogi. Omar Sowe er svo
mættur til leiks og gefur Blikum
öðruvísi spil til að spila á. Jason
Daði Svanþórsson kom frábær
inn í liðið í fyrra og eru miklar
væntingar gerðar til hans í
sumar, hann ógnar með hraða
sínum en hefur einnig mikla
tæknilega getu. Blikar hafa
misst Árna Vilhjálmsson og
Thomas Mikkelsen frá síðustu
leiktíð en Óskar Hrafn þarf að
finna nýjar leiðir til þess að láta
sóknarleikinn blómstra.
Ef maður skoðar undirbúnings-
tímabilið þá litu þeir virkilega vel
út á Atlantic-bikarnum. Eftir það
mót skilur maður að Lengjubikar-
inn hafi ekki gengið sem best. Þeir
byrjuðu undirbúningstímabilið fyrr
en aðrir og æfðu á fullri keyrslu. Ég
horfi því meira í mjög góða frammi-
stöðu þeirra í æfingamótinu úti
þar sem þeir mátuðu sig við sterka
andstæðinga. Heilt yfir hefur þetta
verið gott og góðu kaflarnir í Atlan-
tic-mótinu voru mjög sterkir.
Blikar ætla sér miklu meira en
að enda í fjórða sæti, ég var mjög
ánægður með að sjá Óskar Hrafn
tala þannig að þeir ætli sér að berj-
ast um titilinn. Það á að vera krafan
og kannski er það svekkelsi að vera
spáð fjórða sætinu þegar þeir voru
nálægt þessu í fyrra.
Þeir skoruðu langmest í fyrra og
voru með sextán skoruðum mörkum
fleiri en næsta lið. Blikar hafa oft
verið þekktir fyrir að koðna niður og
missa taktinn þegar þeir eru nálægt
þessu. Svo finna þeir oft taktinn
þegar þetta er ekki lengur möguleiki.
Í fyrra var það byrjunin sem
var slök og liðið vann bara einn af
fyrstu fjórum leikjunum. Þeir eru
best spilandi liðið á landinu og
með skemmtilega hugmyndafræði.
Ef þeir byrja mótið vel eru þeir lík-
legir til þess að landa sigri.
Þekktir fyrir að koðna niður þegar þeir eru nálægt titli
Óskar Hrafn þarf
að bæta við titli
í safnið til að
fullkomna gott
starf í Kópavogi
að sögn Alberts.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Framherjastaðan gæti verið haus-
verkur, þeir höfðu landað Sævari
Atla Magnússyni sem fór svo í
atvinnumennsku. Pétur Theodór
kom í vetur og sleit krossband, Árni
Vilhjálmsson og Mikkelsen eru svo
farnir. Omar Sowe er mættur og ef
hann kemst í gang þá geta þeir fært
Kristin Steindórsson út á vænginn.
Omar þarf að byrja mótið vel og fá
sjálfstraustið snemma. Ef það tekst
ekki er Gísli Eyjólfsson líklega á
kantinum og þá er miðjan sem var
svo öflug í fyrra stórt spurningar-
merki. Alexander Helgi er farinn og
þeir gætu saknað hans.
Það eina sem Óskar vantar í starf-
inu er að vinna titil, Breiðablik hefur
fengið mikið umtal síðustu ár enda
spilað frábæran fótbolta. Ég held
að f lestir Blikar búist við að þetta
verði árið, þeir ætla sér að taka topp-
sætið. n
22 Íþróttir 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 7. apríl 2022 FIMMTUDAGUR