Fréttablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 07.04.2022, Blaðsíða 44
Sumarið 2021 komu þátttakendur til lands- ins og fóru dýpra inn í rannsóknina. Hljóðverkið fyllir upp í rými skálans, umlykur gestina þegar þeir koma inn. Sýningin Ónæm/Immune í Nýlistasafninu er afrakstur tveggja ára rannsóknar- og samstarfsverkefnis ellefu alþjóðlegra listamanna. Sýningin fjallar meðal annars um nýlenduvæðingu, auðvald og þjóð- arímynd þar sem Ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar er lögð til grundvallar. Sýningarstjóri er Bryndís Björnsdóttir. Spurð af hverju Ferðabók Egg- erts og Bjarna hafi orðið upphafs- punktur sýningarinnar segir Bryn- dís: „Hún kom til tals milli mín og mannsins míns og ég áttaði mig á því í fyrsta sinn hversu mikil nýlenduskráning bókin er. Hún er ekki einungis skráning á líferni og náttúru Íslands heldur líka lýsing á eyju sem er ekki bara einangruð landfræðilega heldur einnig vegna einangrunarstefnu. Mér fannst þetta áhugaverður vettvangur til að bjóða inn í Nýlista- safnið fjölbreyttum hópi sem ég valdi út frá venslum en líka út frá aðferðafræði. Hver og einn las ritið á því tungumáli sem hentaði. Svo hófst ferlið. Við héldum fjarfundi og ræddum bókina og hugmyndir sem kviknuðu út frá lestri á henni. Sumarið 2021 komu þátttakendur til landsins og fóru dýpra inn í rannsóknina. Hver og einn tekur í verkum sínum á viðfangsefni sem snýr að efni ferðabókarinnar.“ Postulín og bananar Annarosa Krøyer Holm er í hópi listamannanna. „Hún hefur í verkum sínum verið gagnrýnin á nýlendu- stefnu Danmerkur. Rannsókn henn- ar fólst í því að fara á Mókollsdal á Ströndum þar sem hægt er að finna kaólín sem er undirstaða í postulíni. Í innsetningu hennar má sjá merki um þessa ferð hennar í Mókollsdal en þar eru líka persónulegar hugleið- ingar um tengingu arfleifðar hennar við nýlendustefnu Danmerkur. Hún komst að því að afi hennar vann um tíma á skipi í Vestur-Indíum en hann varð síðar augnlæknir og rannsakaði litblindu. Hún tengir þessa litblindu við nýlendustefnuna: það að sjá ekki söguna og það sem undir býr. Á sýningunni er postulínsskúlptúr úr kaólíni frá Mókollsdal sem eru tveir hnettir með teikningum frá stjörnu- fræðingi sem var uppi á 19. öld en Nýlenduvæðing og þjóðarímynd Bryndís Björnsdóttir er sýningastjóri. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Sýningin í Ný- listasafninu er afrakstur tveggja ára rannsóknar- og samstarfsverk- efnis. kolbrunb@frettabladid.is Þann 21. apríl næstkomandi fer fram foropnun á íslenska skálanum á Feneyjatvíæringnum, alþjóðlegri myndlistarhátíð sem nú er haldin í fimmtugasta og níunda sinn. Í íslenska skálanum sýnir myndlist- armaðurinn Sigurður Guðjónsson verkið Ævarandi hreyfing, stóran fjölskynjunarskúlptúr. Hljóði og mynd er ofið saman á kraftmikinn hátt og skapast þannig heillandi rými fyrir gesti skálans. Mónica Bello er sýningarstjóri íslenska skál- ans sem er nú staðsettur í Arsen ale, inni á aðalsvæði tvíæringsins, í fyrsta sinn. Ævarandi hreyfing er mynd- bandsinnsetning á tveimur sex metra f lekum. Þar sést svífandi járnryk, stækkað og magnað upp með myndavélarlinsu listamanns- ins. Gestir geta sökkt sér ofan í hreyfingu abstrakt efnisins þegar það skekkist og afmyndast svo að til verða ný form og myndir, líkt og yfirborð á órafjarlægri plánetu. Verkið inniheldur hljóðheim sem Sigurður og tónlistarmaðurinn Val- geir Sigurðsson hafa þróað saman. Hljóðverkið fyllir upp í rými skál- ans, umlykur gestina þegar þeir koma inn og skapar þannig dýpri tengsl gesta við tíðni járnryksins sem hreyfist og titrar á skjánum. Á opnunardegi íslenska skálans í Feneyjum kemur út ný sýningar- skrá um feril og listsköpun Sigurðar Guðjónssonar. Bókin er hönnuð af Arnari Frey Guðmundssyni og Birnu Geirfinnsdóttur hjá Studio studio á Íslandi og gefin út af Dist- anz-útgáfufyrirtækinu í Berlín. Þetta er viðburðaríkt ár hjá Sig- urði Guðjónssyni. Auk sýningar hans á Feneyjatvíæringnum voru verk hans sýnd við hlið verka frumkvöðlanna Steinu og Woody Vasulka, á nýrri sýningu BERG Contemporary gallerísins í Frieze No.9 á Cork Street í London á dög- unum. Sigurður mun sýna verk sitt Enigma, unnið í samvinnu við Önnu Þorvaldsdóttur tónskáld og The Spekt ral Quartet, tónlistarhóp sem hefur hlotið fjölmargar tilnefningar til Grammy-verðlauna, í Chicago í apríl 2022 og sem hluta af Listahá- tíð Reykjavíkur í júní 2022. Í haust verður haldin stór einkasýning með verkum listamannsins í Listasafni Reykjavíkur, á sama tíma og verkið Ævarandi hreyfing verður sett upp í BERG Contemporary. ■ Ævarandi hreyfing í Feneyjum Ævarandi hreyf- ing (kyrrmynd úr myndbandi) 2022. hann taldi sig sjá skurði á Mars sem kom í ljós að var einungis æðakerfið í augum hans þegar hann pírði í sjón- aukann.“ Hands.on. matter samanstendur af tvíeyki frá Berlín, þeim Söndru Nicoline Nielsen og Tim van der Loo. „Þau eru að endurhugsa hvernig síðkapítalismi kemur fram í umhverfi okkar. Í verki sínu unnu þau með íslenska banana, fóru til Hveragerðis og rannsökuðu banana og verk þeirra heitir Bananapapers. Þau töluðu við son bananaræktanda í Borgarnesi en þar reis gróðurhúsið, gert úr timbri, og byrjaði loks að morkna og þessi hleðsla þeirra af bananapappír vísar til þess.“ Saga þrælaviðskipta HIGHS eru Olando Whyte dans- ari frá Jamaíka og hin sænska Rut Karin Zettergren. „Þau vinna með sögu þrælaviðskipta við Atlants- hafið og á þessari sýningu skoða þau íslenska saltfiskinn og afríska ávöxtinn ackee. Þau sýna skúlp- túrísk gróðurhús þar sem þau gera tilraun til að rækta ackee-ávöxtinn.” Páll Haukur Björnsson skoðar margvíslega miðla í verkum sínum. „Hér er hann að rannsaka hvaða merkingu og merkingarleysu við vörpum á náttúruna. Hann vísar til gagnaupplýsinga sem voru hluti af ferðalagi Eggerts og Bjarna, en þeim var skipað að vera heilt ár í Kaup- mannahöfn til að læra vísindanálg- anir áður en þeir komu til Íslands. Páll Haukur sýnir okkur hina nýja gagnaopnun á náttúruna í dag, sem er til dæmis í símanum okkar. Hann sýnir meðal annars skúlptúr sem er ísbein sem bráðnar hægt og rólega í sýningarsalnum.“ Sheida Soleimani er írönsk- bandarísk listakona og hennar áhugasvið eru náttúruauðlindir og orka. „Í innsetningu hennar er áhersla á íslenska móinn og notkun eldsneytis á Íslandi síðustu þrjár aldir. Móinn gróf hún sjálf í sam- starfi við Íslenska bæinn. Hún fór svo að Kárahnjúkum og sýnir stóra ljósmynd þaðan ásamt tveimur ljósmyndum þar sem hún skeytir saman efnisríkum skúlptúr-inn- setningum og ljósmyndun á sinn einstaka hátt.“ Útþensla kapítalismans Hópurinn The Many Headed Hydra eru Aziz Sohail, Bryndís Björns- dóttir, Emma Wolf Haugh og Suza Husse. „Við erum með innsetningu þar sem við stillum saman fyrirhug- aðri byggingu umskipunarhafnar í Finnafirði og aðra fyrirhugaða höfn í Pakistan. Þarna erum við að skoða útþenslu kapítalismans á tímum loftslagshamfara. Við endurskoðum líka 17. aldar landkönnuðinn Rich- ard Burton sem ferðaðist til Íslands og Pakistan og talaði illa um bæði löndin. Tveir aðrir listamenn eru með verk á sýningunni. „Zahra Malkani frá Pakistan er með áhrifaríkt tón- verk sem heitir Oceanic Feelings og samanstendur af alls kyns hljóðum, viðtölum og vettvangsupptökum frá ströndum Pakistan. Það er mikill heiður að hafa verk eftir grænlensk-dönsku listakon- una Piu Arke á þessari sýningu. Við sýnum hér verk eftir hana frá 1996, vídeógjörninginn Arctic Hysteria sem fjallar um fordóma á nýlendu- tímanum gagnvart Inúítakonum.“ Slóð á síðu sýningarinnar er: www.immuneonaem.com. Verkið Farangursheimild eftir Steinunni Gunnlaugsdóttur og Bryndísi Björnsdóttur er staðsett úti, fyrir framan Nýlistasafnið. Næstsíðustu helgina í apríl verður HIGHS-kollektífið með gjörninga út frá sinni rannsókn. ■ Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb @frettabladid.is 36 Menning 7. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 7. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.