Fréttablaðið - 19.04.2022, Page 28
Oddur Ævar Gunnarsson
Fa nt a st ic Bea st s : Sec ret s of
Dumbledore er þriðja myndin í
Fantastic Beasts kvikmyndabálk-
inum. J.K. Rowling skrifar hand-
ritið að þessum forleik Harry Potter
sögunnar og hefur áður gefið út að
líklegast verði myndirnar fimm
talsins, svona allt eftir því hvernig
henni tekst til við skriftir.
Hér fylgjum við eftir Eddie
Redmayne í hlutverki galdradýra-
fræðingsins Newt Scamander enn
og aftur, auk þess sem Jude Law fer
með hlutverk hins betur þekkta
skólameistara Albus Dumbledore.
Nú þurfa þeir að taka á honum
stóra sínum í baráttunni við hinn
illa Grindelwald, sem nú er túlk-
aður af Mads Mikkelsen sem kom
inn af varamannabekknum fyrir
Johnny Depp.
Söguþráður myndarinnar er
ruglingslegur en kannski er það
vegna þess að undirritaður mundi
lítið eftir persónunum sem slíkum
úr fyrri myndunum og þurfti því
að púsla ýmsu saman í upphafi
myndarinnar. Það er þó ekki við
leikarana að sakast en Dan Fogler
gerir sitt allra besta til að skemmta
áhorfendum í hlutverki hins sein-
heppna Jacob Kowalski.
Bestir eru þó þeir Jude Law og
Mads Mikkelsen. Það er óhætt að
fullyrða að þar séu réttir menn á
réttum stað, en þeir ná fullkom-
lega að fanga þá kemistríu sem á að
vera á milli Dumbledore og Grin-
delwald. Slakastur er Ezra Miller í
hlutverki hins dularfulla Credence,
en það er eins og Rowling hafi ekki
vitað almennilega hvað hún átti að
gera við þá persónu. Andleysið, og
ef gengið er lengra: sálarleysi sög-
unnar, er hins vegar algjört og eru
ansi miklar líkur á að hinir hörð-
ustu Harry Potter aðdáendur verði
fyrir vonbrigðum þó að almennir
áhorfendur ættu að skemmta sér
ágætlega. Það lýsir sér best í því að
Hogwarts bregður fyrir og tilfinn-
ingar sem það vekur eru litlar, þvert
á ætlun framleiðenda. n
NIÐURSTAÐA: Sálarlaus og
samhengislítil frásögn úr Harry
Potter heiminum sem geldur fyrir
slappt handrit og slappa persónu-
sköpun. Mads Mikkelsen og Jude
Law gera sitt besta til að bæta
það upp.
Sál óskast
KVIKMYNDIR
Fantastic Beasts: Secrets
of Dumbledor
Leikarar: Eddie Redmayne,
Katherine Waterston, Dan Fogler,
Ezra Miller o.fl.
Litagleði
á strætum
Lundúna
Götutískan í London er einstaklega lit-
rík um þessar mundir. Eftir tveggja ára
inniveru í heimsfaraldri hampa tísku-
vitar öllum regnbogans litum og end-
urspeglast gleðin bæði í klæðnaði og
fylgihlutum en einnig í hártísku.
Grænir og bleikir litir eru áber-
andi og eru þeir gjarnan sterkir
og áberandi. Fleiri en ein flík í
sama lit gengur líka vel upp.
Ljósmyndari heimsótti
tískuvikuna í London og
náði skemmtilegum og lit-
ríkum myndum af tísku-
meðvituðum gestum. n
Græni liturinn klæðir þetta par einstaklega vel. Græna og bleika tvennan er
vinsæl þetta vorið og bláa hárið á herranum setur punktinn yfir i-ið.
Þessi kona ber regnbogalitaða hárið einstaklega vel. Jakki í yfirstærð og bleik peysa mynda fallega tvennu.
Fyrirsætan
Katiucia
klæðist köfl-
óttum trefli
og fagurgræn-
um frakka.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
Víðar gallabuxur undir áhrifum frá
aldamótatískunni eru málið í dag.
Þetta vel dressaða dúó hefði sæmt sér vel í kvik-
mynd frá árinu 2000.
Blár kú-
rekahattur
og rjómalit-
uð dúnúlpa
mynda
óvenju-
lega tvennu
sem gengur
fantavel upp.
Perlur eru með
vinsælustu
fylgihlutum
þessa tímabils.
20 Lífið 19. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 19. apríl 2022 ÞRIÐJUDAGUR