Fréttablaðið - 21.04.2022, Síða 2
Það sem vekur athygli
mína er hve Vestfirðir
virðast ætla að koma
sterkir inn.
Siggi stormur
Niðurrif á Laugavegi
Lítið stendur nú eftir af timbuhúsinu Laugavegi 157 sem verið er að rífa. Íbúðarhúsið var byggt fyrir rúmum eitt hundrað árum og var sagt þarfnast mikilla
endurbóta er það var auglýst til sölu í fyrra. Samkvæmt deiliskipulagi má byggja nær fjórfalt stærra hús á lóðinni, eða allt að 568 fermetra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Margt bendir til að veðrið í
sumar verði endurtekning
á sumrinu í fyrra. Gott fyrir
norðan, rakt fyrir sunnan.
Vestfirðingar gætu staðið
uppi með pálmann í hönd-
unum, að sögn Sigga storms.
bth@frettabladid.is
VEÐUR Nú á fyrsta degi sumars bíða
landsmenn með eftirvæntingu
eftir betri tíð. Siggi stormur veður-
fræðingur hefur rýnt í evrópsk og
amerísk veðurlíkön og hann segir
að samkvæmt fyrirliggjandi gögn-
um horfi ágætlega með sumarið.
„Mér sýnist allt ætla að þróast
þannig samkvæmt spánum að það
geti orðið endurtekning frá síðasta
sumri. Veðrið betra norðanlands en
sunnan. Að líkindum meiri úrkoma
sunnanlands en norðan,“ segir Siggi.
Lægðagangurinn virðist stefna
sunnan við land þannig að viðbúið
er að Bretarnir fái dálitla rigningu
í sumar.
„Það sem vekur athygli mína er
hve Vestfirðir virðast ætla að koma
sterkir inn. Þar gæti orðið hlýtt loft
og þurrt og hiti vel yfir meðalári.
Þetta gæti orðið sumar Vestfirð-
inga,“ segir Siggi stormur.
Pál Bergþórsson, fyrrverandi Veð-
urstofustjóra og heimilisvin lands-
manna frá fornu fari, vantar aðeins
rúmt ár í að verða 100 ára gamall.
Eigi að síður fylgist hann vel með
veðri og veðurhorfum.
„Það hefur orðið sú breyting að
nú er töluvert hlýrra um allan heim
en fyrir nokkrum áratugum. Mér
finnst von til að það verði hlýtt
áfram og fari hlýnandi fram í miðj-
an júlí – þá er yfirleitt hámarkið
hér,“ segir Páll.
Erfiðara er að spá fyrir um magn
úrkomu í sumar, að sögn Páls.
„Hún er duttlungafyllri. En mér
sýnist að það gæti orðið rakt og
hlýtt sumar, einkum miðað við það
sem maður vandist á árum áður,“
segir Páll, sem ungur fékk áhuga á
veðri. Enn sé hann „fastur í þessu“
eins og hann segir. „Það er engin
tilhlökkun að hafa ekkert að gera
þannig að ég reyni að grúska eitt-
hvað.“
Haraldur Ólafsson veðurfræð-
ingur horfir björtum augum fram á
veginn, líkt og Siggi stormur og Páll.
Ekki síst er það sumarbyrjunin sem
gæti orðið fréttnæm, að sögn Har-
aldar.
„Sumarið heilsar með blíðu, ekki
síst norðan heiða,“ segir Haraldur.
Hann segir að svalt verði að
næturlagi eins og gengur og gerist
á þessum árstíma, en horfurnar
séu með allra besta móti. Útlit sé
fyrir mjög útivistarvænt veður um
helgina og eitthvað fram í næstu
viku. Mögulega muni helgin fram
undan skipa sér í f lokk hásumar-
daga, einkum ef miðað er við vond
sumur.
„Helgin fram undan hefði lík-
lega náð langt sumarið 1983 en
það sumar er mörgum enn í fersku
minni vegna ótíðar og kulda,“ segir
Haraldur. n
Sumarið 2022 stefnir í að
verða sumar Vestfirðinga
Páll Bergþórsson segir mikinn mun á tíðarfarinu nú og fyrir nokkrum ára-
tugum. Vel horfir með veðrið í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM
með og án rafmagns lyftibúnaði
Komið og
skoðið úrvalið
Ágreiningsmál fyrir
dómstólum hafa tafið
yfirheyrslur yfir fjórum
blaðamönnum.
adalheidur@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Meint vanhæfi emb-
ættis lögreglunnar á Norðurlandi
eystra til að fara með rannsókn á
meintum lögbrotum fjögurra blaða-
manna í tengslum við símagögn
fyrrverandi skipstjóra hjá Sam-
herja, er til meðferðar hjá Héraðs-
dómi Norðurlands eystra.
Þetta herma heimildir Frétta-
blaðsins.
Fjórum blaðamönnum var til-
kynnt 14. febrúar að þeir hefðu rétt-
arstöðu sakbornings við lögreglu-
rannsókn á brotum gegn ákvæðum
um friðhelgi einkalífs. Voru þeir
boðaðir til skýrslutöku af því tilefni.
Einn þeirra, Aðalsteinn Kjart-
ansson blaðamaður á Stundinni,
krafðist úrskurðar dómara um
hvort heimilt væri að boða hann
til skýrslutöku vegna málsins. Fór
málið gegnum dómstigin þrjú en
því var að lokum vísað frá dómi í
Hæstarétti þann 16. mars síðast-
liðinn. Lögreglunni hefði þá ekkert
verið að vanbúnaði að hefja skýrslu-
tökur hefði ekki verið fyrir nýja
kröfu annars blaðamanns úr hópi
hinna ákærðu, nú vegna meints
vanhæfis ákærandans í málinu og
alls embættis lögreglunnar á Norð-
urlandi eystra.
Samkvæmt heimildum blaðsins
er niðurstöðu héraðsdóms að vænta
eftir helgi. n
Blaðamaður krefst úrskurðar dómara
um vanhæfi lögreglunnar í símamáli
emd@frettabladid.is
SKOTVEIÐI Mikil ásókn var í hrein-
dýraveiðileyfi fyrir næsta sumar.
Bárust nær 3.300 umsóknir til
Umhverfisstofnunar en einungis
þriðjungurinn fékk leyfi.
Veiði er heimiluð á 1.021 hrein-
dýri. Þótt eindagi greiðslu fyrir leyfi
sé liðinn er óljóst hversu margir ætla
ekki nýta sér þau.
„Í gegnum árin hefur um 15 til 20
prósentum af úthlutuðum veiði-
leyfum verið skilað inn á þessum
tíma, en það getur verið mismun-
andi milli svæða og eftir kynjum,“
segir Jóhann G. Gunnarsson, sér-
fræðingur á sviði veiðistjórnunar.
„Ég er með langan biðlista á
öllum svæðum út allt veiðitíma-
bilið, þannig að ég reyni að koma
leyfunum út í næstu viku, eða um
leið og það er ljóst hversu mörg þau
eru,“ segir Jóhann.
Talverður samdráttur hefur verið
í hreindýraveiðikvóta síðustu ár.
Kvóti minnkaði um nær 200 dýr
milli 2021 og 2022. n
Hreindýrakvóti
dregst saman
Fæstir fá hreindýraveiðileyfi.
2 Fréttir 21. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ