Fréttablaðið - 21.04.2022, Qupperneq 4
Langflest málanna
varða brot gegn 6. gr.
Mannréttindasátt-
málans um réttláta
málsmeðferð fyrir óvil-
höllum og óháðum
dómstól.
ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 590 2300
OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
JEEP.IS
PLUG-IN HYBRID
LOKAÐ FÖSTUDAGINN 22. APRÍL
OG LAUGARDAGINN 23. APRÍL
VEGNA ÁRSHÁTÍÐARFERÐAR
STARFSMANNA
Jeep® Wrangler Rubicon 4xe goðsögnin rafmagnaða hefur
svo sannarlega slegið í gegn og sannað gildi sitt við íslenskar
aðstæður. Bjóðum upp á 35”-37” og 40” breytingapakka.
Eigum bíla til afhendingar strax!
benediktboas@frettabladid.is
KOSNINGAR Fangar í fangelsinu á
Hólmsheiði ganga til kosninga á
mánudag. Tímasetningar vegna
atkvæðagreiðslu utan kjörfundar
vegna sveitarstjórnarkosninga 14.
maí 2022 voru tilkynntar í gær og
eru fangarnir fyrstir.
Kosið er utan kjörfundar hjá emb-
ætti Sýslumannsins á höfuðborgar-
svæðinu í Holtagörðum. n
Fangar kjósa eftir
helgi fyrstir allra
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
birnadrofn@frettabladid.is
COVID-19 Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir segir rannsóknir frá
Evrópu og Bandaríkjunum sýna
að fólk, áttatíu ára og eldra, sé sá
hópur sem veikist hvað alvarlegast
af Covid-19, smitist það eftir að hafa
fengið þrjá skammta af bóluefni.
Það sé ástæða þess að eldra fólki
verði boðið að þiggja fjórða skammt
bóluefnis.
„Þessi fjórði skammtur verður
í boði fyrir fólk 80 ára og eldra en
einnig yngra fólk sem býr á hjúkr-
unarheimilum,“ segir Þórólfur.
Lyfjafyrirtækið Moderna hefur
hafið rannsóknir á bóluefni sem sér-
staklega á að veita vörn gegn omí-
kron af brigði kórónuveirunnar og
stefnir að því að geta hafið dreifingu
á því næsta haust. Þórólfur segir
ekki ástæðu til þess að bíða með
frekari bólusetningar vegna þessa.
„Þetta gæti tekið mun lengri tíma,
það eru jafnvel vísbendingar um að
Eldra fólk helst í hættu á að veikjast alvarlega þótt bólusett sé
Þórólfur Guðna-
son, sóttvarna-
læknir
hin bóluefnin veiti betri vernd gegn
öðrum afbrigðum veirunnar,“ segir
Þórólfur og bendir á að enn geti
þróast ný afbrigði.
Á vefsíðunni covid.is segir að 112
einstaklingar hafi látist vegna Covid
á Íslandi. Í omíkron-bylgjunni sem
nú gengur yfir höfðu í gærmorgun
34 einstaklingar með Covid látist á
Landspítalanum. Þórólfur segir að
ef fjöldi allra dauðsfalla á Íslandi
sé skoðaður eftir mánuðum megi
sjá að óvenju mörg andlát hafi átt
sér stað í mars, sérstaklega hjá fólki
70 ára og eldra. Í mars var útbreiðsla
smita í samfélaginu mikil og fór
fjöldi inniliggjandi sjúklinga með
Covid á Landspítalanum hæst í 88
manns dagana 11. og 12. mars.
Þórólfur segir að ekki sé hægt að
tengja dauðsföllin beint við Covid,
tölurnar sýni þó einnig að dauðsföll
hafi verið færri en venjulega í nokkra
mánuði bæði á síðasta ári og árið
2020, þegar harðar samkomutak-
markanir voru í gildi hér á landi. n
Aðeins örfá mál tengd efna-
hagshruninu eru enn til
meðferðar hjá Mannréttinda-
dómstól Evrópu. Þar eru tíu
íslensk mál tengd meðferð
kynferðisbrota og nítján mál
tengd Landsréttarmálinu.
adalheidur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Alls eru 42 íslensk mál til
efnismeðferðar hjá Mannréttinda-
dómstól Evrópu. Þetta kemur fram
í skrif legu svari ríkislögmanns við
fyrirspurn Fréttablaðsins.
Mál þessi hafa öll verið tekin til
efnismeðferðar og eru á mismun-
andi stigi. Beðið er dóms í nokkrum
þeirra eða ákvörðunar dómstólsins
um staðfestingu á sátt eða einhliða
yfirlýsingu. Í öðrum á ríkið eftir
að skila athugasemdum, að því er
fram kemur í svarinu.
Langf lest þessara mála varða
brot á 6. gr. sáttmálans um réttláta
málsmeðferð fyrir óvilhöllum og
óháðum dómstól.
Nærri helmingurinn eða nítján
mál, tengjast Landsréttarmálinu
svokallaða. Um er að ræða mál
sem dómararnir fjórir sem ekki
voru skipaðir við réttinn í sam-
ræmi við lög, tóku þátt í að dæma.
Dómstóllinn bauð ríkinu að gera
sátt við kærendur í málum þessum
með vísan til hins fordæmisgefandi
dóms sem kveðinn var upp í yfir-
deild réttarins. Í f lestum málanna
náðust þó ekki sættir þar sem ríkið
hafnaði bótakröfum kærenda og
krafðist þess í kjölfarið að dóm-
stóllinn felldi málin niður. Ekki
liggur enn fyrir hvort fallist verði á
þá kröfu eða hvort málunum verði
lokið með dómi að lokinni hefð-
bundinni efnismeðferð.
Sex málanna varða vanhæf i
dómara vegna hlutabréfaeignar
þeirra í föllnu bönkunum eða
vegna vensla. Er hér um að ræða
síðustu málin sem tengjast efna-
hagshruninu. Tíu mál varða rann-
sókn lögreglu á kynferðis- og
öðrum of beldisbrotum og sjö mál
varða ýmis önnur brot á sáttmál-
anum.
Þegar dómstóllinn hefur tekið
ákvörðun um að mál fái efnislega
meðferð, fær ríkið tilkynningu um
að það sé til meðferðar og er ríkinu
veittur frestur til að leita sátta við
kærandann. Þá getur ríkið einnig
gefið út einhliða yfirlýsingu um að
það viðurkenni brot. Þegar ljóst er
að sættir verði ekki og yfirlýsing
ekki gefin út, tekur ríkið til varna
og skilar athugasemdum sínum til
dómsins. Kæranda gefst svo kostur
á að senda inn athugasemdir við
málflutning ríkisins.
Þegar sjónarmið beggja aðila
hafa borist dóminum er málið
tekið til dóms en á þessu stigi getur
dómurinn enn ákveðið að vísa mál-
inu frá dómi að hluta eða öllu leyti.
Yfirgnæfandi meirihluta þeirra
mála sem kærð eru til Mannrétt-
indadómstólsins er vísað frá dómi.
Alls bárust dómstólnum 35 mál á
síðasta ári og var 33 þeirra vísað
frá dómi. Málin tvö sem komust í
gegnum síuna eru mál Kára Orra-
sonar og Borys Andrzej Ejryzew
sem hlutu dóm í kjölfar mótmæla
við dómsmálaráðuneytið og kæra
vegna meintra brota gegn ákvæði
Mannréttindasáttmálans um tján-
ingar- og fundafrelsi. n
Á fimmta tug dómsmála gegn íslenska
ríkinu til efnismeðferðar í Strassborg
Nærri helmingur
málanna tengist
Landsréttarmál-
inu svokallaða
en yfirdeild
MDE kvað upp
fordæmisgef-
andi dóm í því
máli í desember
2020.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
kristinnhaukur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Samkvæmt nýrri könn-
un Prósents sem Fréttablaðið birti í
gær er óánægja mun minni í Sjálf-
stæðisflokknum en öðrum flokkum
með söluna í Íslandsbanka. Sjálf-
stæðiskarlar undir 35 ára aldri eru
ánægðastir.
30 prósent Sjálfstæðismanna eru
ánægðir. Þá eru 37 prósent karla
en 20 prósent kvenna í f lokknum
ánægð. Þá eru 41 prósent kjósenda
flokksins undir 25 ára ánægð og 40
prósent 25 og 34 ára, sem er umtals-
vert hærra en í eldri hópum. n
Mesta ánægja hjá
Sjálfstæðiskörlum
4 Fréttir 21. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ