Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 10
Núgildandi reglur bankans heimila starfsmönnum Verð- bréfamiðlunar að leggja fram skuldbind- andi óafturkræft tilboð, að fenginni heimild regluvörslu, við upphaf tilboðs- tímabils. Birna Einarsdóttir Sömu reglur giltu um þátttöku starfsmanna bankans í hlutafjárút- boði bankans síðast- liðið vor, eins og skýr- lega kom fram án þess að gerðar væru athuga- semdir við efni þeirra af hálfu Bankasýslunn- ar eða annarra. Birna Einarsdóttir Dagskrá: Hefðbundin ársfundarstörf samkvæmt samþykktum sjóðsins Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins Önnur mál Við bjóðum sjóðfélaga velkomna á fundinn. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs. Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 28. apríl kl. 17:00 Gildi-lífeyrissjóður Ársfundur 2022 ▪ ▪ ▪ Lífeyrissjóður www.gildi.is magdalena@frettabladid.is Það verður áskorun að fá fólk til starfa í ferðaþjónustunni nú þegar greinin er komin á fullt skrið eftir rúmlega tvö ár af heimsfaraldri. Þetta sagði Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar, í sjónvarpsþætt- inum Markaðinum sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöldi. „Það kann að vera að það verði töluvert erfitt að fá fólk til starfa í greininni,“ segir Jóhannes, en bætir við að staðan nú sé þó betri en í fyrra. „Við erum í betri stöðu varðandi sérþekkinguna, það er að segja sérlærða leiðsögumenn, kokka og þjóna, en staðan er slæm, einkum meðal þeirra starfa sem ekki krefj- ast sérþekkingar. Við munum lík- lega koma til með að þurfa að f lytja inn meira vinnuaf l en við höfum áður gert. Fái menn fólk verður líka áskorun að finna fyrir það húsnæði á mörgum stöðum á landinu.“ Í þættinum var einnig rætt um kjaramál, horfur og hvernig grein- inni hafi gengið í og eftir Covid. n Áskorun verði að fá fólk til starfa í greininni Við munum líklega koma til með að þurfa að flytja inn meira vinnuafl en við höfum áður gert. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar Verðbréfamiðlun Íslands- banka var einn söluaðila hins umdeilda hlutafjárútboðs, þegar 22,5 prósenta hlutur ríkisins var seldur í lokuðu útboði til fag- og stofnanafjár- festa eftir lokun markaðar 22. mars síðastliðinn. olafur@frettabladid.is Mikil eftirspurn var eftir hlutum og þurftu söluaðilar að skerða verulega úthlutun til viðskiptavina sinna. Stórir fjárfestar hafa kvartað undan lítilli úthlutun og lýst því yfir að hægt hefði verið að fá talsvert hærra verð fyrir hlutinn, en hann var seld- ur með rúmlega 4 prósenta afslætti frá lokaverði á deginum, þrátt fyrir mikla umfram eftirspurn. Meðal kaupenda í útboðinu var Ásmundur Tryggvason, fram- kvæmdastjóri fyrirtækja og fjár- festa Íslandsbanka, Ari Daníelsson, stjórnarmaður í bankanum, og Rík- harður Daðason, fjárfestir og eigin- maður samskiptastjóra bankans. Kaup þeirra voru f löggunarskyld til kauphallar, þar sem þeir eru skil- greindir sem innherjar í Íslands- banka. Einnig voru meðal kaupenda tveir starfsmenn Verðbréfamiðlunar Íslandsbanka, sem var einn söluað- ila útboðsins; Ómar Özcan, og Geir Oddur Ólafsson, sem keypti fyrir rúma 1,1 milljón, sem var lægsta fjárhæð viðskipta í útboðinu. Athygli hefur vakið að regluvörð- ur Íslandsbanka skuli hafa heimilað starfsmönnum verðbréfamiðlunar bankans kaup á hlutum í útboðinu og þeir hafi ekki verið skilgreindir sem innherjar. Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslu ríkisins, sagði í viðtali við Stöð 2 í síðustu viku að slíkt fæli í sér hagsmunaárekstur og hann þekkti ekki til þess að slíkt liðist við hlutafjárútboð á erlendum mörkuðum – það geti skaðað orð- spor fjármálafyrirtækjanna. Fjármálaeftirlitið rannsakar nú þátttöku starfsmanna söluaðila útboðsins í sjálfu útboðinu. Í samtali við Fréttablaðið sagði Bir na Einarsdóttir regluvörð Íslandsbanka starfa eftir reglum sem stjórn bankans setur. Aðspurð um það hvort hún teldi reglur bank- ans fullnægjandi í ljósi þeirrar gagn- rýni sem fram hefur komið og þess að fullyrt er að á erlendum mörk- uðum fengju starfsmenn söluaðila ekki að taka þátt í útboðum af þessu tagi, sagði Birna reglur bankans um þátttöku starfsmanna í útboðum verða rýndar í framhaldinu. „Núgildandi reglur bankans heimila starfsmönnum Verðbréfa- miðlunar að leggja fram skuld- bindandi óafturkræft tilboð, að fenginni heimild regluvörslu, við upphaf tilboðstímabils. Mörk eru sett um hámarksáskrift starfs- manna og reglurnar kveða á um 30 daga lágmarkseignarhaldstíma starfsmanna.“ Birna segir starfsmenn sem tóku þátt skilgreinda sem fagfjárfesta og þeir hafi uppfyllt öll þátttökuskil- yrði útboðsins. „Umsjón með tilboðsbók útboðs- ins var ekki hjá Verðbréfamiðlun og Íslandsbanki var einn af átta söluað- ilum útboðsins. Sömu reglur giltu um þátttöku starfsmanna bankans í hlutafjárútboði bankans síðastliðið vor, eins og skýrlega kom fram án þess að gerðar væru athugasemdir við efni þeirra af hálfu Bankasýsl- unnar eða annarra,“ segir Birna. Hún vildi ekki tjá sig um það hvort reglur bankans um viðskipti starfsmanna væru á skjön við það sem þekkist á erlendum mörk- uðum. Sagði hún bankann vera að fara yfir reglurnar og framkvæmd þessa útboðs sérstaklega. Það starf færi meðal annars fram vegna beiðni Fjármálaeftirlitsins um upp- lýsingar. Frestur til að skila svörum til FME er til 25. apríl og fyrir þann tíma mun Íslandsbanki ekki tjá sig frekar efnislega um málið, að sögn Birnu Einarsdóttur, bankastjóra. n Reglurnar heimiluðu þátttöku starfsmanna Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, sem hér sést hringja bjöllu kauphallarinnar á fyrsta degi viðskipta með hlutabréf í bankanum í kauphöllinni í júní í fyrra, segir reglur bankans um viðskipti starfsmanna verða rýndar í kjölfar gagnrýni á framkvæmd útboðs á hlutum ríkisins í síðasta mánuði. MYND/AÐSEND 10 Fréttir 21. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMARKAÐURINN FRÉTTABLAÐIÐ 21. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.