Fréttablaðið - 21.04.2022, Side 18
BIG BANG er glæný tónlistarhá-
tíð í Reykjavík, en það er evrópsk
tónlistarhátíð fyrir unga áheyr-
endur sem fá að upplifa fjölbreytta
og metnaðarfulla efnisskrá sem
samanstendur af tónleikum, inn-
setningum og tónlistartengdum
smiðjum undir handleiðslu
fagfólks. Hátíðin fer fram sumar-
daginn fyrsta, en þann 21. apríl
býðst börnum í grunnskólum
Reykjavíkur að koma og upplifa
nokkra af viðburðum hátíðarinnar
á skólatíma.
„Sumardagurinn fyrsti er fjöl-
skyldudagur á Íslandi og nú eru
margar hverfahátíðirnar hættar og
því fannst okkur tilvalið að halda
hátíð þá,“ segir Harpa Rut Hilmars-
dóttir, verkefnastjóri Barnamenn-
ingar. „Svo er líka sumardagurinn
fyrsti fyrsti dagur mánaðarins
Hörpu samkvæmt norræna tíma-
talinu og okkur fannst það eiga vel
við tónlistarhátíð í Hörpu.“
Tilraunakennd og öðruvísi hátíð
„Þetta er tilraunakennd hátíð sem
snýst um að hressa upp á hefð-
bundin tónleikaform og nýta
allar mögulegar leiðir til að auka
á upplifun barnanna. Það er reynt
að brjóta upp hefðbundna tón-
leikauppstillingu, auka þátttöku
barnanna, nýta ljós, gagnvirkni
og fleira,“ segir Harpa. „Hátíðin
leggur áherslu á gæðaviðburði og
því höfum við fengið til samstarfs
mjög fjölbreytt og flott tónlistar-
fólk.
Hátíðin er skipulögð fyrir börn
á öllum aldri og líka fullorðna sem
hafa verið börn. Yfirleitt njóta þess
nú allir þegar eitthvað er unnið
lengra og gert enn meira spenn-
andi,“ segir Harpa. „Tónlistarfólkið
sem er með okkur á hátíðinni er
valið út frá því að við treystum
því til að gera viðburði sem eru
spennandi fyrir börn að upplifa,
ekki bara með eyrunum heldur eru
þeir hugsaðir út frá heildarupp-
lifuninni. Þess vegna finnst okkur
pínu erfitt að tala bara um að þetta
sé fyrir unga áheyrendur, því við
erum ekki bara að hlusta.“
Vilja auka aðgengi
barna að tónlist
„Það er mikilvægt að geta boðið
börnum upp á það allra besta
og BIG BANG-hátíðin gefur ekki
afslátt af gæðum. Það er margt
spennandi að gerast í barnamenn-
ingu á Íslandi og það er ekki ama-
legt að geta boðið börnum upp á
þessa flottu dagskrá í þessu æðis-
lega húsi, Hörpu. Það eykur fram-
boð á viðburðum fyrir börn en býr
um leið til vettvang fyrir tón-
listarfólk til að miðla tónlist sinni
til barna,“ segir Harpa. „Hátíðin
opnar líka dyrnar út í heim því
að við munum fá erlenda gesti á
næstu hátíðir og vonandi getum
við sent íslenskt tónlistarfólk á
hátíðir annars staðar í heiminum í
náinni framtíð.
Að þessu sinni er hátíðin meira
íslensk en hún átti upphaflega
að vera. Hún átti að fara fram
fyrir tveimur árum en þá gátum
við ekki fengið erlent listafólk til
landsins vegna heimsfaraldursins.
Á næsta ári verðum við með fleiri
tónlistaratriði að utan og atriði
sem hátíðin hefur vottað sem
framúrskarandi fyrir börn,“ segir
Harpa. „Það er líka alltaf eitt atriði
sem er skipulagt með börnum,
svokallað NOMAD-verkefni, en í
ár er danski slagverkssnillingurinn
Rune Thorsteinsson að vinna með
120 krökkum í Dalskóla, Ingunnar-
skóla og Sæmundarskóla, sem
tromma á múrbala með látum.
Við erum líka með krakka sem
sem við köllum erindreka og þau
hafa unnið að hátíðinni með
okkur og búið sig undir að taka á
móti gestum, kynna tónleika og
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Danski slag
verkssnill
ingurinn Rune
Thorsteinsson
hefur verið að
vinna með 120
krökkum í Dal
skóla, Ingunnar
skóla og Sæ
mundarskóla,
sem tromma á
múrbala með
látum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Hátíðin er skipu
lögð af Barna
menningarhátíð
í Reykjavík, List
fyrir alla, Tón
listarborginni
Reykjavík og
Hörpu tónlistar
og ráðstefnu
húsi, en það eru
einnig ýmsir
samstarfsaðilar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
BIG BANGhá
tíðin er haldin í
17 borgum í Evr
ópu og Kanada
og Reykjavík er
sú allra nýjasta.
Þessi mynd er
frá hátíðinni
í Lille í Frakk
landi.
MYND/AÐSEND
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
taka viðtöl við listafólk og gesti
hátíðarinnar,“ segir Harpa. „Við
verðum líka í mörgum rýmum í
Hörpu sem fólk fær venjulega ekki
að koma í. Eitt af stóru mark-
miðum hátíðarinnar er að auka
aðgengi barna að tónlist. Þess
vegna er frítt inn á alla viðburði en
hátíðin er styrkt af Creative Europe
og Barnamenningarsjóði. Við
viljum að öll börn og fjölskyldur
þeirra geti farið á tónleika óháð
efnahag. Við erum með erlenda
og íslenska styrki fyrir þessu öllu
saman og því getum við sleppt því
að rukka inn.“
Fjölbreytt tónlistartengd
upplifun
„Á hátíðinni verða alls konar
tónleikar en líka fjölbreytt tón-
listartengd upplifun eins og
teknófiðlur, afrískur trommu-
sláttur og óperuleikhústónleikar
þar sem Niels Girerd sýnir leikhús
sem hann bjó til þegar hann var
barn,“ segir Harpa. „Það verður
líka tónlistarsmiðja þar sem börn
geta lært að búa til tónlist á iPad
og svo tónlistarleiðangur þar sem
krakkarnir fá að hitta geggjað flott
tónlistarfólk sem þeir fá að fara
mjög nálægt og jafnvel skella sér
undir píanó eða horfa ofan í kokið
á óperusöngkonu.
Einnig verður börnunum boðið
upp á kósýhorn Borgarbóka-
safnsins, hugleiðslurými á vegum
dj. f lugvélar og geimskips, upp-
lifunarrýmið Hringátta í kjallara
Hörpu, Vísindasmiðjuna sem
verður með tónlistartengd vísindi
og hina nýopnuðu Hljóðhimna,
sérstakt rými fyrir börn í Hörpu
sem er staður til að uppgötva töfra-
heim hljóðs og tóna,“ segir Harpa.
„Gestum verður einnig boðið
að horfa á bíómyndina Háværu
nágrannarnir, sem fjallar um börn
sem búa alein og allir nágrann-
arnir eru tónlistarfólk.
Tónleikarnir sem við bjóðum
upp á verða líka mjög ríkir af upp-
lifun. Við erum með stóra tónleika
sem byggja á ævintýrinu Hver vill
hugga Krílið? eftir Tove Janssen
sem er með nýrri tónlist, mörgum
barnakórum af öllu landinu og
sögumanni,“ segir Harpa. „Einn-
ig hefur hann Wouter, stofnandi
hátíðarinnar, sem fer á allar
hátíðirnar í Evrópu, verið að vinna
með listafólki síðustu daga, eins
og hljómsveitinni Breki, við að
gera tónleikana skemmtilegri fyrir
krakka.“
Fjórða tilraun til að
halda hátíðina
„Tónlistarhátíðin var stofnuð árið
2010 af sex evrópskum samstarfs-
aðilum. Árið 2015 hlaut hátíðin
hin virtu EFFE-verðlaun sem veitt
eru framúrskarandi evrópskum
menningarhátíðum og árið 2018
hlotnaðist BIG BANG fjögurra
ára stuðningur á vegum Creative
Europe-áætlunar Evrópusam-
bandsins,“ segir Harpa. „Árið
2019 var okkur svo boðið að taka
þátt í verkefninu. Núna er hátíðin
haldin í 17 borgum í Evrópu og
Kanada og Reykjavík er sú allra
nýjasta.
Það stóð til að halda hátíðina á
Barnamenningarhátíð 2020 en þá
kom Covid og ekkert mátti gera.
Við erum síðan búin að ákveða
dagsetningar fjórum sinnum og
skipuleggja hátíðina en fáum núna
loksins að halda hana,“ útskýrir
Harpa. „Það er sérstaklega fyndið
að erindrekar hátíðarinnar, sem
eru alltaf börn, voru flestir um 11
ára þegar við byrjuðum að skipu-
leggja hátíðina en núna eru þeir
orðin unglingar og miklu stærri og
þroskaðri.
Hérna á Íslandi er hátíðin
skipulögð af Barnamenningar-
hátíð í Reykjavík, List fyrir alla,
Tónlistarborginni Reykjavík og
Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi,“
segir Harpa. „Svo vinnum við með
ýmsum aðilum, eins og Borgar-
bókasafninu, Mixtúru og skóla- og
frístundasviði Reykjavíkur. Síðan
verðum við auðvitað að nefna allt
tónlistarfólkið og erindrekana
sem hafa verið með okkur frá því
við hófum að skipuleggja hátíðina
fyrst árið 2020.“ ■
Nánari upplýsingar um hátíðina er
að finna á vefnum www.barna
menningarhatid.is.
Það er
mikilvægt
að geta
boðið
börnum
upp á það
allra besta
og BIG
BANG-
hátíðin
gefur ekki
afslátt af
gæðum.
Harpa Rut
Hilmarsdóttir
2 kynningarblað A L LT 21. apríl 2022 FIMMTUDAGUR