Fréttablaðið - 21.04.2022, Qupperneq 32
Útgáfan
var stórt
skref fyrir
mig og það
er mjög
persónu-
legt að
syngja
eigin texta,
ég var smá
smeyk en
viðtökurn-
ar hafa
verið
afskaplega
góðar.
Jazzhátíð Garðabæjar verður
haldin í 16. sinn dagana 21.-
24. apríl. Listrænn stjórnandi
er Sigurður Flosason tón-
listarmaður.
Í ár skartar hátíðin fjölbreyttu
úr vali íslenskra jazztónlistar-
manna af ólíkum kynslóðum en
einnig koma gestir frá Danmörku
og Svíþjóð. Aðgangur er ókeypis.
Að þessu sinni fara f lestir tónleikar
hátíðarinnar fram í Sveinatungu,
salarkynnum bæjarstjórnar að
Garðatorgi 7. Einir tónleikar verða
í Jónshúsi, félagsmiðstöð eldri
borgara.
Hátíðin hefst með tónleikum
í kvöld, sumardaginn fyrsta, kl.
20.30. Söngkonan Ellen Kristjáns-
dóttir leiðir tríó sem meðal ann-
ars er skipað eiginmanni hennar,
píanóleikaranum Eyþóri Gunnars-
syni. Á föstudagskvöldinu 22. apríl
kemur fram hin vinsæla danska
jazzsöngkona Cathrine Legardh.
Hún og Sigurður Flosason eiga að
baki langt samstarf og tónsmíða-
samvinnu.
Á laugardeginum 23. apríl geta
gestir notið jazztónlistar á tvenn-
um tónleikum. Þeir fyrri hefjast kl.
15.00 í félagsmiðstöðinni Jónshúsi
á Sjálandi. Þar kemur fram söng-
konan Marína Ósk og f lytur ásamt
valinkunnum hljóðfæraleikurum
brasilíska bossanova-tónlist og
frumsamin lög í sama stíl. Kl. 20.30
leikur svo hið margreynda tríó
Sunnu Gunnlaugsdóttur í Sveina-
tungu. Sunna hefur leikið mikið
erlendis og er einn af máttarstólp-
um íslensks jazzlífs.
Kynnir verðlaunaplötu
Á sunnudegi kl 17.00 kynnir píanó-
leikarinn Anna Gréta Sigurðardóttir
nýútkomna plötu sína Nightjar in
the northern sky en hún var kjörin
jazzplata ársins á Íslensku tónlistar-
verðlaununum og Anna Gréta höf-
undur ársins.
„Þetta eru lög og textar eftir mig
sem ég syng og spila á píanó og er
með góða hljóðfæraleikara með
mér, Skúli Sverrisson og Johan Teng-
holm eru á bassa, Einar Scheving er
á trommum, Hilmar Jensson er á
gítar og pabbi (Sigurður Flosason)
spilar á saxófón, segir Anna Gréta
um þessa fyrstu plötu sína sem jafn-
framt er verðlaunaplata. Um þessar
góðu viðtökur segir hún: „Það var
gaman að finna fyrir stuðningi.
Útgáfan var stórt skref fyrir mig og
það er mjög persónulegt að syngja
eigin texta, ég var smá smeyk en
viðtökurnar hafa verið afskaplega
góðar.“
Hún segir textana fjalla um allt
milli himins og jarðar. „Titillagið
fjallar um nightjar sem er sjaldgæf-
ur fugl á norðurslóðum og leitina að
því sérstaka. Umfjöllunarefnin eru
alls konar, til dæmis fjallar eitt lag-
anna um svefnleysi. Platan er fram-
leidd af mér og Alberti Finnboga-
syni sem sá um upptöku. Það var
mjög gaman að vinna með honum.“
Verðlaunuð í Svíþjóð
Anna Gréta, sem er farin að leggja
drög að nýrri plötu, hefur búið og
starfað í Svíþjóð síðan 2014. „Ég fór
í nám í Svíþjóð en það var svo mikið
að gera við að spila að ég var lengi
að klára skólann. Kærastinn minn
er frá Stokkhólmi og við búum þar
og ég kann mjög vel við mig í þessari
fallegu borg.“
Í Svíþjóð hefur Anna Gréta fengið
Monicu Zetterlund-verðlaunin
og viðurkenningu jazzklúbbsins
Fasching. „Ég er þakklát, þessi vel-
gengni er ekki sjálfgefin. Svíar hafa
tekið mér opnum örmum. Þeir
halda mikið upp á jazz og eiga frá-
bæra tónlistarmenn á því sviði.“ n
Velgengnin
ekki sjálfgefin
Anna Gréta
kynnir plötu
sína á jazzhátíð.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
kolbrunb@frettabladid.is
Þórir Jóhannsson kontrabassa-
leikari og Ingunn Hildur Hauks-
dóttir píanóleikari flytja tónlist eftir
Zoltán Kodály, Giovanni Bottesini,
Max Bruch, Árna Egilsson, Karólínu
Eiríksdóttur og Þórð Magnússon.
Tónleikarnir verða í Hofi sunnu-
daginn 24. apríl kl. 16.00. Yfirskrift
tónleikanna er Hljóðs bið ek allar
helgar kindir.
Þórir og Ingunn tefla fram þessari
blöndu hljóðfæra í verkum sem eru
samin fyrir þessa samsetningu eins
og Rhapsodia Þórðar, Völukvæði
Árna og Fantasia Bottesinis, eða eru
aðlöguð þessum hljóðfærum, eins og
Gradus ad Profundum, Kol Nidrei og
Epigrammák. n
Hljóðs bið ek allar helgar kindir
Þórir og Ingunn spila í Hofi. MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Á sumardaginn fyrsta, í dag,
fimmtudaginn 21. apríl, munu óma
lög úr ýmsum áttum á hádegistón-
leikum í Fríkirkjunni við Tjörnina.
Sú hugmynd kom upp að allir með-
limir hljómsveitarinnar myndu
velja sér eitt til tvö lög á mann. Úr
því kom skemmtilegur og fjölbreyti-
legur lagalisti. Þar má nefna Pennies
from heaven sem Louis Prima gerði
frægt, Underbart är kort eftir Povel
Ramel, Morgunn eftir Tómas R.
Einarsson og fleiri skemmtileg lög.
Flytjendur eru: Særún Rúnu-
dóttir söngur, Lilja Eggertsdóttir
söngur/raddsetningar, Kristín
Sigurðardóttir söngur, Aron Steinn
Ásbjarnarson saxófónn, Gunn-
ar Gunnarsson, píanó, Þorgrímur
Jónsson, kontrabassi og Erik Qvick,
trommur.
Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka
um hálfa klukkustund. Aðgangs-
eyrir er 2.000 krónur. Ekki er tekið
við greiðslukortum. n
Fjölbreytilegur lagalisti
Sungið verður í Fríkirkjunni í hádeginu. MYND/AÐSEND
24 Menning 21. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 21. apríl 2022 FIMMTUDAGUR