Fréttablaðið - 21.04.2022, Síða 33
TÓNLIST
Kórtónleikar
Verk eftir Duruflé, Alain
og Fauré
Flytjendur: Kór Langholtskirkju,
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir,
Fjölnir Ólafsson og Björn Steinar
Sólbergsson
Stjórnandi: Magnús Ragnarsson
Hallgrímskirkja
laugardagur 16. apríl
Jónas Sen
Sálumessa Gabriels Fauré er svo fal-
leg að vart er hægt að lýsa henni með
orðum. Tónskáldið samdi hana ekki
eftir pöntun eins og Mozart, heldur
í minningu föður síns, og er hún
þrungin sannri trúartilfinningu.
Hún er laus við ofsafengið dramað í
velflestum sambærilegum verkum,
þar sem kvalir syndugra sálna í
hreinsunareldinum eru gjarnan
aðalatriðið, og eldspúandi ófreskjur
flögra um.
Til gamans má geta að ein frumleg
hugmynd um helvíti er að þar séu
eingöngu leikin misheppnuð tón-
verk eftir léleg tónskáld. Glymja þau
í eyrum syndaranna án afláts. Engin
man eftir þessum tónskáldum í dag,
en þar neðra vita sko allir hver þau
eru. Ef þetta er ekki helvíti, þá veit ég
ekki hvað er það. Sálumessa Faurés
á hins vegar heima á himninum, og
hlýtur að vera uppáhaldstónverk
Guðs.
Sálumessan var flutt í Hallgríms-
kirkju laugardaginn fyrir páska
af Kór Langholtskirkju. Af hverju
tónleikarnir fóru ekki fram í þeirri
kirkju veit ég ekki, en Hallgríms-
kirkja er síst verri ef maður situr
sæmilega nálægt flytjendum. Aftar
í kirkjunni fer bergmálið að hafa
miður góð áhrif.
Lágstemmd og hógvær
Verk Faurés er til í nokkrum hljóð-
færasamsetningum, en hér var f lutt
útgáfa þar sem eingöngu var leikið
á orgel. Það gerði ekkert til. Tónlist-
in er að mestu lágstemmd og hóg-
vær og orgelið umvafði kórsönginn
einkar fallega, skapaði honum hug-
ljúfa umgjörð. Kórinn söng af næmi
og innileika, söngurinn var hreinn
og í prýðilegu jafnvægi. Útkoman
var einstaklega áhrifarík. Magnús
Ragnarsson stjórnaði og gerði það
af smekkvísi. Ljóðræna var í tón-
listinni sem var ákaflega sannfær-
andi. Það var yfir henni andakt og
helgi sem átti þar fyllilega heima.
Tveir einsöngvarar komu fram,
en hlutverk þeirra voru ekki veiga-
mikil miðað við ýmsar aðrar sálu-
messur. Fjölnir Ólafsson baríton
söng af einlægni og sannri tilfinn-
ingu, rödd hans var þróttmikil og
breið. Álf heiður Erla Guðmunds-
dóttir sópran söng svo einn þekkt-
asta kaf lann í sálumessunni, Pie
Jesu, en þar var eingöngu orgel-
undirleikur; kórinn kom hvergi
við sögu. Pie Jesu er oft sunginn
af drengjasópran, það þarf að vera
þannig birta og tærleiki í túlkun-
inni. Álfheiður náði þessu fullkom-
lega, söngur hennar var einstaklega
fagur og gæddur viðeigandi bæna-
hita.
Lifandi og kraftmikill
Björn Steinar Sólbergsson lék á
orgelið og gerði það af ögun og
nákvæmni. Hann spilaði líka á
undan sálumessunni Prelúdíu og
fúgu um nafnið Alain eftir Maurice
Duruflé. Leikur hans var lifandi og
kraftmikill, notaleg stígandi var í
tónlistinni, akkúrat eins og hún
átti að vera.
Loks ber að geta Vocalise dori-
enne – Ave Maria eftir Jehan Alain,
sem var sungin af Álfheiði og Björn
Steinar lék með. Það var hrífandi
tónlist sem komst ágætlega til skila
í mögnuðum flutningi. Þetta voru
dásamlegir tónleikar og yndislegur
inngangur að páskunum. n
NIÐURSTAÐA: Frábærir tónleikar
með einstakri tónlist.
Engar eldspúandi ófreskjur
Magnús Ragnarsson stjórnaði af smekkvísi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sálumessa Faurés á
hins vegar heima á
himninum, og hlýtur
að vera uppáhaldstón-
verk Guðs.
Nýtt í sölu stórglæsilegar 3-5 herbergja íbúðir í fjögurra
hæða fjölbýli. Mjög vandaðar íbúðir af öllum stærðum
og gerðum. Frá 90-134 fm. Sérafnotareitur á jarðhæð.
Íbúðirnar skilast fullbúnar með gólfefnum frá Parka
og Nobilia innréttingar frá GKS og kvartsborðplata frá
Rein. Með stærri íbúðum fylgja hjónasvíta og stæði í
bílageymslu
Verð frá 65.900.000 kr
Maríugata 28
Glæsilegar 3ja til 4ra herbergja íbúðir á fallegum stað
efst í Urriðaholtinu. Um er að ræða 14 íbúða steinsteypt
hús á fjórum hæðum, íbúðirnar eru af fjölbreyttum
stærðum og gerðum. Eingangrað að utan og klætt með
álklæðningu með bílageymslu á 1. hæð fyrir 7 bíla.
• Öll innanhúshönnun er í höndum Tvíhorf arkítekta.
• Allar innréttingar eru frá Nobilia, GKS trésmiðju. Ýmist klæd-
dar svartri viðaáferð eða hvítar.
• Ljós kvarststeinn er á borðum eldhús og baðherbergis.
• Heimilistæki eru frá AEG
• Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar með harðparket frá Parka, öll
votrými flísalögð.
• Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgir öllum íbúðum!
• Stæði fylgir stærri íbúðunum
Herbergi: 3-5
Stærðir: 90-134.2 m2
Þorgeir Símonarson
fasteignasali
gsm: 696 6580
thorgeir@fstorg.is
Rebekka Rosinberg
fasteignasali
gsm: 776 8624
rebekka@fstorg.is
Urriðaholti - 210 Garðabæ
MARÍUGATA 28 OPIÐ HÚS
Áb. Sigurður Gunnlaugsson löggiltur fasteignasali
fimmtudaginn 21 apríl. kl 14.00-16.00
Verð: frá 65,9 millj.
Bókið skoðun í síma 6966580 og/eða thorgeir@fstorg.is
FIMMTUDAGUR 21. apríl 2022 Menning 25FRÉTTABLAÐIÐ