Fréttablaðið - 21.04.2022, Blaðsíða 36
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það er alveg fyllsta
ástæða til að hafa
áhyggjur en eina
lækningin gegn því er
að reyna að laga
vandamálið.
ninarichter@frettabladid.is
Sjúkrabílabangsar eru fimm ára
gamalt verkefni á Íslandi sem unnið
er að skandinavískri fyrirmynd.
Fjórir starfsmenn Foldaskóla hófu
verkefnið og er Arndís Hilmars-
dóttir einn þeirra. „Við ákváðum
að gera þetta á landsvísu og fengum
því tengla víða um landið sem hafa
sinnt þessu á hverjum stað fyrir sig,“
segir Arndís.
„Þetta hefur legið aðeins niðri í
Covid, vegna þess að við vorum ekki
vissar um hvort hægt væri að koma
þessu í sjúkrabílana á þeim tíma,“
segir hún.
Frá upphafi verkefnisins hafa þær
skilað tvö- til þrjú hundruð böngs-
um af sér, einu sinni til tvisvar á ári.
Aðspurð seg ir A r ndís v ið-
brögðin hafa verið góð. „Það hefur
komið fyrir að fólk hafi samband
og við höfum deilt þeim sögum á
Facebook-síðunni þegar fólk hefur
gefið leyfi. Við birtum ekki neitt án
leyfis,“ segir hún.
Á Facebook-síðu verkefnisins
má finna uppskrift að prjónuðum
bangsa. Hafi fólk áhuga á að taka
þátt geti það prjónað bangsa og
komið þeim til Slökkviliðsins við
Skógarhlíð 14 í Reykjavík, eða til
tengiliða á landsbyggðinni.
„Við höfum haft samband og
beðið þau um að láta okkur vita
þegar hefur vantað bangsa, en það
hefur aldrei náð þeim punkti. Þann-
ig að við höfum náð að anna eftir-
spurninni,“ segir Arndís.
„Út frá þeim sögum sem við
höfum fengið hefur þetta skipt
sköpum fyrir þá krakka sem hafa
fengið bangsa,“ segir hún. „Við ætl-
uðum að útvíkka þetta líka í lög-
reglubílana, en það er einn lögreglu-
maður í Kef lavík sem við höfum
látið fá bangsa.“ Að sögn Arndísar
er prufuverkefni þar í gangi sem er
ekki sé komið langt. „En ég vona að
það gangi líka,“ segir Arndís. n
Sjúkrabílabangsar skipta sköpum
Sjúkrabíla
bangsar eru litlir
vinir fyrir börn
sem þurfa á
þjónustu sjúkra
bíls að halda.
MYND/AÐSEND
Arndís
Hilmarsdóttir
Sævar Helgi Bragason sendir
frá sér bókina Umhverfið,
þar sem hann fjallar um
umhverfismál fyrir börn á
aðgengilegan og valdeflandi
hátt.
tsh@frettabladid.is
Umhverfi er önnur bókin í bóka-
flokknum Vísindalæsi eftir Sævar
Helga Bragason með myndum eftir
Elísabetu Rún en í fyrra sendu þau
frá sér bókina Sólkerfið.
„Þessi bók er öðruvísi en aðrar
bækur sem fjalla um umhverfis-
mál. Í henni er áherslan á að segja
sögur af fólki sem bjargaði mann-
kyninu frá sjálfu sér. Vísindafólki
sem uppgötvaði hvað við vorum að
eyðileggja og hvernig okkur tókst
svo að leysa vandann,“ segir Sævar.
Á meðal þeirra sem fjallað er um
í bókinni eru dýrafræðingurinn
Rachel Carson sem skrifaði bókina
Raddir vorsins þagna, sem leiddi
til þess að reglur voru hertar um
notkun skordýraeiturs, og vísinda-
maðurinn Clair Patterson sem upp-
götvaði hættuleg áhrif blýmeng-
unar.
„Í bókinni er líka fjallað um lofts-
lagsbreytingar. Í stað þess að segja
krökkum að þeir verði að gera hitt
og þetta, eru þeir einfaldlega hvattir
til þess að fræðast og nýta áhrif sín
með því einfaldlega að tala um
vandann, en sérstaklega lausnirnar
við fullorðna fólkið,“ segir Sævar.
Næsta kynslóð miklu betri
Að sögn Sævars Helga skrifaði hann
bókina til að valdefla börn og hjálpa
þeim að takast á við loftslagskvíða.
„Ég hitti stundum krakka og
finn það á þeim að þeir kvíða svo-
lítið fyrir framtíðinni. Ég held það
sé bara einfaldlega vegna þess að
þau hafa ekki fengið nægilega mikla
fræðslu og hafa heldur ekki fengið
nægilega mikla fræðslu um þær
lausnir sem verið er að vinna að.“
Sævar Helgi, sem titlar sig vís-
indamiðlara, hefur unnið ötullega
að því undanfarin ár að fræða börn
og unglinga um umhverfismál og
vísindi. Spurður um hvort honum
finnist krakkar í dag vera meðvit-
aðir um þessa hluti segir hann:
„Ég er sannfærður um að næsta
kynslóð sé miklu betri heldur en
nokkurn tíma kynslóðin okkar. En
þau upplifa mörg hver samt sem
áður einhvers konar vonleysi og
finnst lítið vera að gerast. Það er satt
að mörgu leyti en eina leiðin til þess
að laga það er að leysa vandann og
við höfum frábær dæmi úr sögunni
þar sem okkur tókst það.“
Fyllsta ástæða til áhyggja
Eins og áður sagði er bókinni ætlað
að auka vísindalæsi hjá börnum.
Spurður um hvort honum finnist
vísindalæsi vera ábótavant hér á
landi segir Sævar Helgi:
„Já, ég finn alveg áberandi fyrir
því að vísindalæsi er ekkert sérstak-
lega gott og þessar bækur eru þar af
leiðandi ekkert síður fyrir fullorðna
fólkið. Ég hef heyrt frá foreldrum að
krakkarnir þeirra séu að lesa bæk-
urnar fyrir mömmu og pabba.“
Hvað myndirðu segja við fólk sem
upplifir vonleysi gagnvart loftslags-
breytingum?
„Það er alveg fyllsta ástæða til að
hafa áhyggjur en eina lækningin
gegn því er að reyna að laga vanda-
málið. Við getum gert ótrúlega
margt upp á eigin spýtur sem dregur
ekki úr lífsgæðum okkar heldur
eykur þau. Gerir lífið bókstaflega
betra og ódýrara. En svo er náttúru-
lega líka mikilvægt að tileinka sér
allar þessar lausnir sem verið er að
vinna að sem eru úti um allt,“ segir
Sævar Helgi að lokum. n
Valdefling með vísindalæsi
Sævar Helgi
segir eitt af
markmiðum
bókarinnar
vera að efla
vísindalæsi hjá
börnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Í KVÖLD
FRÉTTAVAKTIN
MANNAMÁL
SUÐURNESJAMAGASÍN
PRESSAN
Kl. 18.30 og kl. 20.30
Kl. 19.00 og kl. 21.00
Kl. 19.30 og kl. 21.30
Kl. 20.00 og kl. 22.00
28 Lífið 21. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ