Fréttablaðið - 22.04.2022, Side 4
Svona nýtum við betur
mannaflann hérna
innanhúss og læknir
þarf ekki að koma að
hverri beiðni.
Emilía Petra Jóhannsdóttir,
fagstjóri hjúkrunar
Á mánudag verður
opinn fundur í fjárlaga-
nefnd um sölu Íslands-
banka.
Móðirin hefur fundað
tvisvar með ríkislög-
reglustjóra.
Rannsóknir eru forsenda framfara.
Krabbameinsfélagið stundar eigin
rannsóknir, auk þess að vera í
samstarfi við fjölda innlendra og
erlendra aðila. Megináhersla er
á rannsóknir á eðli krabbameina,
áhrifaþáttum, horfum og gæðum
greiningar og meðferðar. Stofnun
Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins
var bylting í krabbameinsrannsóknum
hér á landi og fjöldi vísindafólks getur
sinnt sérhæfðum rannsóknum með
styrkjum úr sjóðnum.
Takk, kæri Velunnari.
Með þér getum við gert svo ótalmargt.
krabb.is/velunnari
birnadrofn@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Heilsugæslan á Sel
tjarnarnesi er fyrsta heilsugæslan á
höfuðborgarsvæðinu sem býður
upp á þjónustu sjúkraþjálfara fyrir
fólk með stoðkerfisvandamál. Um
tilraunaverkefni er að ræða sem
bæði forstjóri Heilsugæslunnar á
höfuðborgarsvæðinu, Óskar Reyk
dalsson, og fagstjóri hjúkrunar
á Heilsugæslu Seltjarnarness og
Vesturbæjar, Emilía Petra Jóhanns
dóttir, segja ganga vonum framar.
„Heilsugæslunni á Seltjarnarnesi
hefur alltaf gengið vel rekstrarlega
svo þau höfðu möguleikann á því að
fara með þetta verkefni í gang, það
eru því miður ekki allar stöðvar í
þeirri stöðu,“ segir Óskar.
Á öllum heilsugæslustöðvum
höfuðborgarsvæðisins er starfandi
hreyfistjóri, það er sjúkraþjálfari
með aðsetur á heilsugæslustöðvum
sem aðstoðar fólk við að fara af stað
í hreyfingu. „Í þessu tilraunaverk
efni er um að ræða sjúkraþjálfara
sem aðstoðar fólk sem glímir við
skyndilega verki, veikindi eða stoð
kerfisvandamál en þarf ekki lang
tíma sjúkraþjálfun,“ segir Emilía.
Sjúkraþjálfarinn metur sjúkl
inginn og leiðbeinir honum með
æfingar. Ef þörf er á getur sjúkra
þjálfarinn sent tilvísun um frekari
meðferð í tilvísanagátt Heilsuveru.
„Svona nýtum við betur mann
aflann hérna innanhúss og læknir
þarf ekki að koma að hverri beiðni,“
segir Emilía.
Þá segir hún verkefnið geta verið
fyrirbyggjandi fyrir fólk með stoð
kerfisvandamál. Séu sjúklingar
meðhöndlaðir snemma sé hægt
að sporna við vandamálum sem
annars gætu orðið. „Við fórum upp
haflega af stað með þetta verkefni
vegna þess að við sáum þörfina.
Fólk hefur almennt verið ánægt
með þjónustuna og við sjáum fyrir
okkur að veita hana áfram,“ segir
Emilía.
„Þetta er hluti af okkar framtíð
arsýn, að fjölga fagstéttum innan
heilsugæslunnar og veita aukna
þjónustu,“ segir Óskar. ■
Fyrirbyggjandi meðferð við stoðkerfisvanda á heilsugæslunni
Móðir drengs segir lögregluna
þurfa að endurskoða verklag
sitt eftir að sonur hennar
varð tvisvar fyrir barðinu á
lögreglu í tengslum við leit
að strokufanga. Sonurinn
og strokufanginn eru báðir
dökkir á hörund en töluverð
ur aldursmunur er á þeim.
benediktarnar@frettabladid.is
elin@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð
borgarsvæðinu hefur í tvígang haft
afskipti af sextán ára dreng í leit
sinni að strokufanganum Gabríel
Duoane Boama, sem strauk úr Hér
aðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag.
Þeir eiga það sameiginlegt að vera
dökkir á hörund. Móðir hans segir
það ekki líðandi að þjálfaðir lög
reglumenn af hjúpi vanþekkingu
sína með þessum hætti en stroku
fanginn er tvítugur að aldri.
Á miðvikudag var drengurinn
umkringdur af vopnuðum sérsveit
armönnum í strætisvagni. Hann var
ekki handtekinn en varð svo skelk
aður eftir atvikið að hann fór út úr
vagninum og félagar hans fylgdu
honum heim í leigubíl.
Í gær hafði lögregla aftur afskipti
af drengnum í bakaríi í Mjóddinni
og bað hann um kennitölu. Móðir
drengsins segist hafa hvatt hann
til að koma með sér út í bakaríið
þar sem hann treysti sér ekki til að
mæta til vinnu þann dag, einmitt
til þess að hann gæti reynt að yfir
vinna óttann frá því þegar lögreglan
hafði afskipti af honum í strætis
vagninum.
Móðirin segir augljóslega þurfa að
skoða verklag lögreglunnar gaum
gæfilega og að vitundarvakning í
samfélaginu um „racial profiling“ sé
nauðsynleg. Rasismi lifi því miður
góðu lífi á Íslandi og sé stórt sam
félagslegt vandamál.
Móðirin hefur átt tvo fundi
með Sigríði Björk Guðjónsdóttur
ríkislögreglustjóra vegna málanna
tveggja. Ríkislögreglustjóri gaf út
yfirlýsingu eftir fyrra atvikið þar
sem það var harmað að aðgerðir lög
reglu hefðu bitnað á ungum dreng.
„Leit að hættulegu fólki má ekki
verða til þess að minnihlutahópar
í okkar samfélagi upplifi óöryggi
eða ótta við að samferðafólk þeirra
tilkynni það til lögreglu án tilefnis,“
segir í yfirlýsingu ríkislögreglu
stjóra.
Eftir atvikið í bakaríinu sagði
Gunnar Hörður Garðarsson, sam
skiptastjóri yfirstjórnar lögreglu,
við Fréttablaðið að það væri erfitt
að saklaus strákur væri tilkynntur
til lögreglu tvo daga í röð. „Það er
rosa lega erfitt að sami strákur sé að
lenda í því að ein hver til kynni hann
og að við séum að bregðast við og
koma að honum. Það er gífur legt
á fall fyrir ungan dreng sem hefur
ekkert gert,“ segir Gunnar.
Móðirin segir drenginn sinn mjög
óttasleginn eftir atburðina og þora
ekki að fara af heimili sínu.
Á meðan er strokufanginn Gabrí
el enn þá ófundinn. Hann er 192
sentí metrar á hæð, með brún augu
og um 85 kíló að þyngd. Hann var
klæddur í hvíta hettu peysu, galla
buxur og hvíta skó þegar hann lét
sig hverfa úr haldi lög reglu.
Þau sem geta gefið upp lýsingar
um ferðir Gabríels eða vita hvar
hann er niður kominn eru vin sam
legast beðin um að hafa tafar laust
sam band við lög reglu í síma 112.
Lögregla og fangelsismálastjóri
hafa einnig hvatt Gabríel til að gefa
sig strax fram. ■
Lögreglan hafði í tvígang afskipti
af sama barni í leit að strokufanga
Sérsveit Ríkis-
lögreglustjóra
hafði afskipti
af drengnum í
fyrra skiptið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Mikið hefur gengið á undanfarið en
stjórnin ekki fundað.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
elinhirst@frettabladid.is
ALÞINGI Ríkisstjórnarfundur verður
haldinn í fyrramálið í fyrsta skipti
síðan föstudaginn 8. apríl síðast
liðinn. Alþingi fór sem kunnugt er í
tveggja vikna páskaleyfi þann sama
dag.
Boðað hefur verið til opins fjar
fundar í f járlaganefnd Alþingis
mánudaginn 25. apríl næstkomandi
vegna útboðsins á rúmlega 22 pró
senta hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Stjórnarandstaðan hélt áfram
að krefjast þess síðasta þingdaginn
fyrir páska að óháð rannsóknar
nefnd Alþingis yrði skipuð til að
rannsaka söluna. ■
Fyrsti fundurinn
frá aprílbyrjun
4 Fréttir 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ