Fréttablaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 36
Þetta er
boðskapur
sem er
þarfur á
flestum
tímum en
kannski
sérstaklega
í dag.
Fjórtán verk verða
til sýnis í galleríi í
Sotheby’s-upp boðs-
hús inu í London.
ninarichter@frettabladid.is
Breska popparanum Robbie Willi-
ams er margt til lista lagt. Dagana
11. til 25. maí setur hann upp mál-
verkasýningu á svart-hvítum mál-
verkum sínum, sem hann vann
ásamt félaga sínum Ed Godrich.
Fjórtán verk verða til sýnis í gall-
eríi í Sotheby's-uppboðshúsinu í
London. Verkin unnu þeir saman í
stúdíói sínu í Los Angeles.
Í næstu viku stýra þeir sölusýn-
ingu hjá Sotheby’s, á myndum eftir
nokkra af sínum eftirlætis lista-
mönnum, þar á meðal Jean-Michel
Basquiat, Grayson Perry og Damien
Hirst. Sú sýning verður opin dagana
22. til 28. apríl.
Breska blaðið The Guardian
hefur eftir Williams að sameigin-
leg ást þeirra Godrich á götulist sé
rauði þráðurinn í þeirra eigin list
og einnig ríkjandi þema á sölu-
sýningunni.
Williams er einn af þeim fyrstu
sem fjárfestu í list götulistamanns-
ins Banksy og á popparinn nokkur
af hans frægustu verkum. n
Robbie Williams
sýnir myndlist
Robbie Williams er eigandi nokkurra
af frægustu verkum Banksy.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Íslensk uppsetning á söng-
leiknum um ráðagóðu
blondínuna Elle Woods fer á
svið í Gamla bíói í maí.
arnartomas@frettabladid.is
Gamanmyndin Legally Blonde gerði
allt vitlaust við árþúsundamótin og
hefur í seinni tíð skipað fastan sess
á áhorfslistum þeirra sem þurfa á
upplyftingu að halda. Myndin segir
frá háskólanemanum Elle Woods
sem sigrast á staðalímyndum um
ljóskur með undraverðri velgengni
sinni í lögfræðiheiminum.
Söngleikur byggður á myndinni
var fyrst sýndur árið 2007 og vakti í
kjölfarið lukku víðs vegar um heim.
Söngleikjadeild Söngskóla Sigurðar
Demetz hefur nú skellt söngleiknum
í íslenskan búning, undir heitinu
Ljóska í gegn, og verður hann settur
upp í Gamla bíói þann 10. og 11. maí.
„Þetta er bjartur, léttur og
skemmtilegur söngleikur sem fjallar
samt um eitthvað sem mætti kalla
klassískt viðfangsefni,“ segir Orri
Huginn Ágústsson leikstjóri söng-
leiksins. „Þetta er boðskapur sem er
þarfur á flestum tímum en kannski
sérstaklega í dag – að standa með
sjálfum sér og að dæma ekki of fljótt
eða harkalega þá sem þú hittir.“
Nemendur söngleikjadeildar-
innar hafa lengi verið spenntir
fyrir söngleiknum en Orri Huginn
segir að fyrst hafi verið lagt í hann
þegar útlit var loks fyrir að tak-
mörkunum vegna Covid yrði aflétt.
„Það var langþráð að geta sett upp
sýningu þar sem mikil áhersla er
á sviðshreyfingar og dans,“ segir
hann. „Nemendurnir hafa verið í
stífum þjálfunarbúðum til að ráða
við efnið.“
Snúnar þýðingar
Íslensk þýðing á söngleiknum lá
ekki fyrir svo að íslenska þurfti
textana frá grunni.
„Við einhentum okkur í það verk-
efni, ég og Þór Breiðfjörð deildar-
stjóri, en við höfum þekkst lengi
og unnið við söngleiki af öllum
stærðum og gerðum,“ útskýrir
Orri Huginn, sem segir verkefnið
hafa verið snúið. „Það eru sárafáar
senur í verkinu sem ekki er tónlist
undir og miklu minni texti sem er
f luttur talaður en sunginn. Það er
líka mikið af orðagríni og rími sem
Ljóskan lagafróða á svið í Gamla bíói
Reese Witherspoon í hlutverki Elle Woods í Legally Blonde frá árinu 2001.
Hrefna Hlyns-
dóttir fer með
hlutverk Elle
Woods.
MYND/AÐSEND
getur verið þrautin þyngri að færa
yfir á íslensku. Þetta var ekkert hrist
fram úr erminni.“
Lögin í sýningunni eru flest í létt-
ari kantinum en teygja sig í ýmsar
áttir.
„Þarna má finna ballöður sem
hafa skírskotanir í keltnesk áhrif
þegar ein aðalpersónan syngur
um draumastaðinn Írland. Svo
eru djass-áhrif þegar sungið er um
hvað þarf til þess að vera hákarl.“
„Þetta er leikandi og skemmtileg
tónlist sem er keyrð áfram af krafti.
Við flytjum tónlistina með lifandi
undirleik frá stóref lishljómsveit
skipaðri nemendum við FÍH.“
Miðasala fer fram á tix.is. n
Götulistaverk eftir Banksy í
Betlehem. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
KVIKMYNDIR
The Northman
Leikstjórn: Robert Eggers
Aðalleikarar: Alexander
Skarsgård, Nicole Kidman, Claes
Bang og Anya Taylor-Joy
arnartomas@frettabladid.is
Robert Eggers hefur stimplað sig
inn á síðustu árum sem metnaðar-
fullur leikstjóri sem geðjast ekki
öllum. Síðustu myndir hans, The
Witch og The Lighthouse, lögð-
ust ýmist vel í fólk eða hreinlega
alls ekki, án nokkurs millivegar.
Nýjasta útspil Eggers, The Nort-
hman, hefur þó verið tekið betur
af áhorfendum enda er frekar erfitt
að missa marks þessa dagana þegar
sexí víkingar sem eru úr að ofan eru
annars vegar.
Myndin segir frá víkingaprins-
inum Amlóða sem verður vitni að
morði föður síns af hendi frænda
síns, Fjölnis. Amlóði sver þess eið
að ná fram hefndum en endar á
áralöngum f lækingi meðal ber-
serkja þar sem hann virðist hafa
glatað tilgangi sínum. Hann heldur
til Íslands í vígahug eftir að hann
fregnar að Fjölnir sé þar niðurkom-
inn en hefndarþorstinn dvín þegar
hann verður ástfanginn af ambátt-
inni Olgu. Við taka sjóðheitar ástir
og blóðsúthellingar innan um jarð-
hræringar og dulspeki. Jeminn!
Sagan er í sjálfu sér bara klassísk
Hamlet-hefndarræma í víkinga-
galla. Persónurnar eru ekki dýpri
en þær þurfa að vera og allar sögu-
flækjur leysast á frekar fyrirsjáan-
legan hátt. Þrátt fyrir að áhorfand-
inn myndi ekkert sérstaklega djúpa
tengingu við aðalpersónurnar eru
leikararnir þó nægilega góðir til að
hreyfa við manni.
Handritið er sum sé ekki f lókið
en það þjónar tilgangi sínum og það
er allt í góðu lagi með það. Þetta er
bara þannig mynd. The Northman
er nefnilega stórkostlegt sjónar-
spil þar sem ekkert er til sparað.
Tæknibrellurnar eru vel útfærðar
og drekkja ekki áhorfandanum
heldur fá glæsilegar sviðsmyndir
og búningar að njóta sín. Tónlistin
er síðan naglinn í kistu umræð-
unnar um hvort það sé þess virði að
sjá myndina í bíó eða ekki. Það er
svo auðvitað gaman að sjá framlag
Íslendinga landfræðilega og í lista-
fólki.
Á heildina litið er The Northman
ágætis mynd í stórkostlegri umgjörð
sem skilur ekki jafnmikið eftir sig og
fyrri myndir Eggers. n
NIÐURSTAÐA: Ágætis mynd í
stórbrotinni umgjörð. Sjónarspilið
er bíómiðans virði.
Hamlet fer norður
Amlóði og Olga eru ekki ofarlega á lista yfir kynþokkafyllstu mannanöfnin
en Skarsgård og Taylor-Joy redda því fyrir horn.
20 Lífið 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 22. apríl 2022 FÖSTUDAGUR