Fréttablaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 12
Manni finnst maður svo oft
vera fastur í einhverri
rútínu og að hlutirnir séu
búnir en það er langt frá
því.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingigerður Dóra
Þorkelsdóttir
Bröttugötu 4, Hólmavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á
Hólmavík miðvikudaginn 13. apríl.
Útför hennar fer fram frá Hólmavíkurkirkju
mánudaginn 25. apríl kl. 13.00.
Margrét Árný Halldórsdóttir
Þorkell Örn Ólason
Björn Valur Ólason Kristina Musiichenko
Sigríður Óladóttir Gunnlaugur Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Tónlistarmaðurinn KK fagnar
þrjátíu ára afmæli plötunnar
Lucky one með tónleikum í
Háskólabíói í kvöld.
arnartomas@frettabladid.is
„Ég hafði búið í þrettán ár í Svíþjóð
og hafði þvælst um götur Evrópu og
spilað áður en ég kom heim 1990 með
heilmikið af lögum í farteskinu,“ segir
tónlistarmaðurinn KK sem treður upp
í Háskólabíói í kvöld. „Ég fer í stúdíó
ári síðar ásamt Eyþóri Gunnars mági
mínum þar sem við tókum upp Lucky
one sem var mín fyrsta plata.“
Lucky one vakti mikla lukku hjá gagn-
rýnendum og hlustendum. Platan náði
gullsölu enda hafði hún fengið góða
dóma og mikla spilun í útvarpi og skaut
KK rakleitt inn í íslensku tónlistarsen-
una þar sem hann situr enn sem fastast.
„Þetta féll vel í kramið hjá landanum
og var ferskt blóð í þennan litla pott
sem Ísland getur verið stundum,“ segir
hann. „Ég var búinn að vera erlendis
svo lengi og kom beint af götunni inn
í stúdíó.“
Hann var þó ekkert unglamb þegar
hann gaf frá sér þessa vel heppnuðu
frumraun, 35 ára gamall.
„Ég hitti svo mikið af krökkum í
kringum þrítugt sem kvarta undan því
að finnast þau ekki hafa gert neitt í líf-
inu,“ segir hann hlæjandi. „Það er nægur
tími! Manni finnst maður svo oft vera
fastur í einhverri rútínu og að hlutirnir
séu búnir en það er langt frá því.“
Lagið varð til á staðnum
KK á margar góðar minningar frá upp-
tökum á plötunni en segir sögu titil-
lagsins, Lucky one, vera sér sérstaklega
kæra.
„Lagið varð til í stúdíóinu. Ég hafði
aldrei spilað það áður og strákarnir
höfðu þess vegna auðvitað aldrei heyrt
það,“ segir hann. „Ég byrjaði að spila
á gítarinn, bara eitthvað að djamma
þegar við vorum að bíða, og strákarnir
taka undir. Við héldum keyrslunni
áfram og spiluðum heilt lag. Eyþór
hafði verið með upptökuna í gangi svo
við tókum upp lagið um leið og það var
samið.
KK hefur síðan reynt að endurtaka
leikinn, án árangurs.
„Svona lagað skeður bara þegar
maður veit ekki af því,“ segir hann og
hlær.
Í tilefni af tímamótunum hóaði KK
saman upprunalega hópnum sem kom
að plötunni og kemur fram á tónleik-
unum í kvöld. Þar verður Eyþór Gunn-
ars á hljómborði, Þorleifur Guðjónsson
á bassa, Guðmundur Pétursson á gítar,
Sigtryggur Baldurs og Matthías Hem-
stock á trommum auk Ellenar Kristjáns
sem syngur samhliða KK.
„Við ætlum að leika hin ýmsu lög sem
fólk þekkir og vill heyra. Það er mjög
góður fílingur og allir í skýjunum.“
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 á
morgun. Miðasala fer fram á tix.is ■
Fagnar frumrauninni
með afmælistónleikum
KK var 35 ára gamall þegar hann sendi frá sér Lucky one. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1529 Austurhveli jarðar er
skipt milli Spánar
og Portúgals með
Saragossasátt-
málanum.
1870 Lenín, rússnesk-
ur byltingarleið-
togi, fæðist.
1906 Sérstakir auka
Ólympíuleikar
eru settir í Aþenu
í tilefni af tíu ára
afmæli nútíma
Ólympíu-
leikanna.
1917 Jón Helgason
er vígður
biskup.
1918 Konur eru
kosnar í
fyrsta skiptið
til þjóðþings Danmerkur í þingkosningum.
1937 Bandaríski leikarinn Jack Nicholson fæðist.
1944 Bresk flugvél ferst rétt við nýja
stúdentagarðinn í Reykjavík,
Nýja Garð. Öll áhöfnin ferst
með vélinni.
1950 Leikritið Íslandsklukkan eftir
Halldór Kiljan Laxness er frum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu.
1967 Víðir Reynisson, yfirlögreglu-
þjónn almannavarnasviðs ríkis-
lögreglustjóra, fæðist.
1970 Dagur jarðar haldinn
hátíðlegur í fyrsta
skipti.
1978 Ísrael sigrar í
Söngvakeppni
evrópskra
sjónvarps-
stöðva með laginu A-Ba-Ni-Bi.
2001 Bandaríska teiknimyndin Shrek er frumsýnd.
2016 Á þessum degi hafa 175 lönd undirritað Parísarsam-
komulagið.
Merkisatburðir
arnartomas@frettbladid.is
Vigdísarstofnun fagnar fimm ára afmæli sínu í dag en hún
var stofnuð á sumardaginn fyrsta 2017. Þann sama dag var
Veröld – hús Vigdísar formlega tekið í notkun.
Samhliða tímamótunum fagnar stofnunin einnig Alþjóð-
legum áratug frumbyggjatungumála þar sem leitast verður
við að skipuleggja rannsóknir, ráðstefnur og fleiri viðburði
sem helgaðir verða fámennistungumálum. Sérstök áhersla
verður á menningu og tungumál Sama, Ínúíta og Rómafólks.
Þá verður margmiðlunarsýningin Mál í mótun einnig
opnuð í Veröld – húsi Vigdísar í dag. Hún fjallar um tungu-
mál heimsins og var sett upp í samstarfi við Gagarín og and-
rúm arkitekta. ■
Vigdísarstofnun fagnar fimm ára afmæli
Veröld – hús
Vigdísar var
formlega
tekið í notkun
sumardaginn
fyrsta 2017.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GVA
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 22. apríl 2022 FÖSTUDAGUR