Fréttablaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 8
Núna liggur boltinn hjá íslenskum stjórn- völdum og bandalags- ríkjum okkar í NATO. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ Prófessor í stjórnmálafræði segir umræðu um varnar- mál á Íslandi minni en í nágrannalöndunum á undan- förnum árum. Það hafi þurft allsherjarinnrás Rússa til að koma henni almennilega af stað. Þó að áhugi almennings dvíni muni stjórnvöld halda henni áfram. odduraevar@frettabladid.is VARNARMÁL Baldur Þórhallsson, st jór nmálaf ræðiprófessor v ið Háskóla Íslands, segir umræðu um varnarmál á Íslandi komna til að vera, í hið minnsta meðal stjórn- málamanna og í stjórnsýslunni, jafnvel þó að áhuginn fari minnk- andi meðal almennings. „ Nú na l ig g u r bolt i n n hjá íslenskum stjórnvöldum og banda- lagsríkjum okkar í NATO,“ segir Baldur, spurður að því hvort hann sjái merki þess að áhugi á umræðu um varnarmál minnki eftir því sem fjær dregur upphafi stríðsins í Úkraínu. „Þar er vinna hafin við að meta varnarþörf Íslands og á Norður- Atlantshafi, þannig að umræðan er komin til að vera meðal þeirra sem móta stefnuna, hvort og hvernig sem hún verður í almennri umræðu,“ segir hann. Í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu jókst áhugi almennings á varnar- málum Íslands mjög, en Baldur segir það furðu sæta hve langt á eftir Norðurlandaþjóðunum Íslendingar eru í þeirri umræðu. „Allt frá því að Rússar réðust inn í Donbas-héruðin og tóku yfir Krím- skaga frá 2014, hefur verið vaxandi umræða um varnarmál í Evrópu og nánast öll ríki Atlantshafsbanda- lagsins og Evrópusambandsins hafa verið að styrkja varnir sínar,“ segir Baldur. Hin Norðurlöndin hafi nýverið gert samninga sín á milli og við Bandaríkin, á ýmsum sviðum öryggis- og varnarmála. „Það kom mér alltaf dálítið á óvart hvað mér þótti við vera miklir eftirbátar hvað þetta varðar,“ segir Baldur og vísar til áranna eftir að Rússar tóku Krímskaga af Úkraínu og réðust inn í austurhéruðin. „Bæði hvað það var í raun tak- mörkuð umræða í samfélaginu í kjölfar breyttrar stöðu í Evrópu vegna yfirgangs Rússa og líka í ljósi þess hvað helstu nágrannaþjóðir okkar voru að gera, sem ég sá hvorki merki um í umræðunni hér heima né í stefnumótun stjórnvalda.“ „Það er eins og þessi umræða fari ekki af stað heima fyrr en Rúss- arnir ráðast núna með allsherjar- innrás inn í Úkraínu,“ segir Baldur. Hann segir hingað til hafa verið ákveðna tilhneigingu á Íslandi til þess að útvista stefnumótun í varn- armálum hérlendis til útlanda. „Það sem ég hef verið að benda á í þessari umræðu, og mér hefur fund- ist mikilvægt, er að við byrjum að vinna heimavinnuna okkar og við byrjum að móta okkur þá stefnu hvernig við myndum helst vilja sjá vörnum Íslands fyrirkomið,“ segir Baldur. Það hafi verið ríkt í umræðunni hér að leita álits Bandaríkjamanna. Bandaríkin telji loftrýmisgæslu við Ísland mikilvæga fyrir eigin varnir. „Það getur verið að það sé mikil- vægt fyrir okkur að vera með litla fasta öryggissveit sem kæmi til aðstoðar ef eitthvað kæmi hér upp á. Ég er ekki að segja að það sé nauð- synlega þörf á þessu, en við þurfum að ræða þetta, því það fer ekki endi- lega saman hvað öðrum banda- lagsríkjum finnst og hvað okkur kannski endilega finnst. “ ■ Umræðan um öryggis- og varnarmál á Íslandi sé loks komin til að vera Baldur telur Íslendinga eftirbáta hinna Norðurlanda- þjóðanna í umræðunni um varnarmál. MYND/KRISTINN INGVARSSON Eitt af þeim erfiðu viðfangsefnum sem blasa við þegar krabbamein greinist í fjölskyldunni, er að ákveða hvernig ræða eigi við börnin. Ráðgjafar Krabbameinsfélagsins veita foreldrum góð ráð um það hvernig best sé að miðla upplýsingum til barna. Jafnframt veitir fagfólk félagsins ráðgjöf til skóla og heilsugæslu varðandi stuðning við börn þegar foreldri deyr. Takk, kæri Velunnari. Með þér getum við gert svo ótalmargt. krabb.is/velunnari georg@frettabladid.is ÚKRAÍNA Vladimír Pútín Rússlands- forseti hrósaði varnarmálaráðherra sínum, Sergej Shoígú, fyrir góðan árangur rússneska hersins í austur- hluta Úkraínu í gær. Á fundi sem sýndur var í beinni útsendingu á rússneskum ríkissjónvarpsstöðvum hrósaði Pútín ráðherranum sérstak- lega fyrir að hafa tekið yfir hafnar- borgina Maríupol, við Asovshaf. Innrásarher Rússlands hefur setið um borgina í rúmlega tvo mánuði. Sigur Rússa í Maríupol virðist þó ekki vera endanlega í höfn. Úkra- ínskt herlið er enn í borginni og heldur til í stálverksmiðju í borginni, ásamt óþekktum fjölda af óbreytt- um borgurum. Fyrir skömmu skip- aði Pútín herliði sínu að gera ekki árás á verksmiðjuna og kallaði eftir því að svæðið yrði girt af. Þá var haft eftir Joe Biden Bandaríkjaforseta að árangur Rússa í Maríupol væri óljós. Ummælin komu skömmu eftir að yfirvöld í Bandaríkjunum tilkynntu um stórar viðbótar stuðningsað- gerðir til Úkraínu. Viðtalið hefur verið í stöðugri endursýningu í rússnesku sjónvarpi og er talið vera liður í að telja íbúum þar í landi trú um að innrásin gangi vel fyrir sig. Að undanförnu hafa sérfræðingar og blaðamenn víða orðið varir við vísbendingar um að afstaða almennra rússneskra ríkisborgara til innrásarinnar hafi versnað. Í gær sagði forstjóri rúss- neska olíurisans Lukoil af sér og telja margir það hafa verið gert í mótmælaskyni við innrás Pútíns. Fréttamiðillinn Reuters greindi frá því að stjórn Lukoil hefði fyrir nokkrum vikum sent frá sér til- kynningu þar sem kallað var eftir því að Rússland byndi enda á stríð sitt í Úkraínu. ■ Óljós árangur hjá Rússum í hafnarborginni Maríupol georg@frettabladid.is FRAKKLAND Frakkar ganga til kosn- inga og velja sér forseta á sunnudag. Frambjóðendurnir sem etja kappi eru þeir sömu og í síðustu forseta- kosningum, Emmanuel Macron og Marine Le Pen. Sitjandi forseta, Macron, tókst að sigra mótfram- bjóðanda sinn með miklum yfir- burðum í síðustu kosningum en nú telja sumir Le Pen eiga meiri mögu- leika. Nýjustu kannanir benda þó til þess að Macron verði endurkjörinn. Hann nýtur stuðnings á bilinu 55 til 57 prósenta á meðan 42 til 45 pró- sent styðja Le Pen. Þetta er í þriðja sinn sem Le Pen býður sig fram til forseta fyrir hönd hægriöfgaflokksins Rassemblement National, áður Front National. Frambjóðendurnir mættust í sjónvarpskappræðum á þriðjudag og þótti mörgum álitsgjöfum Le Pen hafa staðið sig betur en í síðustu rökræðum sem fóru fram árið 2017. Á fréttamiðlinum France24 er sagt að um nokkurs konar hlutverka- skipti hafi verið að ræða, frá því að kappræðurnar voru haldnar síðast. Macron gekk á mótframbjóðanda sinn, á meðan Le Pen hélt stillingu. Tekist var á um afstöðu Le Pen til múslima og búrkubanns. Þá vó Macron harkalega að Le Pen fyrir fjárhagsleg tengsl við rússnesk fjár- málafyrirtæki og lán sem hún tók árið 2014 í banka með rússneskan bakgrunn. ■ Macron og Le Pen tókust á í beinni Kappræður frambjóðendanna. Maríupol hefur legið undir stans- lausum árásum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA 8 Fréttir 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.