Fréttablaðið - 22.04.2022, Qupperneq 22
Rafhjólatrygging
TM er sérsniðin
trygging fyrir rafmagns-
reiðhjól, rafmagns-
hlaupahjól, rafmagns-
vespur og rafdrifna
hjólastóla.
Arna Rún Guðlaugsdóttir
Vegna mikillar aukningar í
sölu rafhjóla og rafhlaupa
hjóla ákvað TM að bjóða,
fyrst tryggingafélaga hér á
landi, upp á rafhjólatrygg
ingu. Umsóknarferlið er
einfalt og þægilegt.
TM er eina tryggingafélagið hér á
landi sem býður viðskiptavinum
sínum upp á rafhjólatryggingu, en
félagið ákvað að bæta henni við
vöruframboð sitt vegna þeirrar
miklu aukningar sem hefur verið
í sölu rafhjóla og rafhlaupahjóla
undanfarin misseri, að sögn Örnu
Rúnar Guðlaugsdóttur, sérfræð-
ings í viðskiptaþróun hjá Kviku,
móðurfélagi TM. „Undanfarið
höfum við séð mikla aukningu
í sölu á rafhjólum og rafhlaupa-
hjólum og oft og tíðum koma þessi
tæki í staðinn fyrir bíl númer tvö
á heimilinu. Þetta eru dýr tæki og
því kalla nýir tímar í samgöngum
á nýjar tegundir trygginga. Þegar
hjólin eru orðin þetta dýr þá falla
þau ekki lengur undir heimilis-
tryggingar og því sá TM tækifæri
til að bjóða upp á þessa nýju trygg-
ingu.“
Valkvæðir liðir
Rafhjólatrygging TM er sérsniðin
trygging fyrir rafmagnsreiðhjól,
rafmagnshlaupahjól, rafmagns-
vespur og rafdrifna hjólastóla.
„Rafhjólatryggingin gildir hvar
sem er á Íslandi og samanstendur
af þremur mögulegum liðum:
munatryggingu, slysatryggingu og
ábyrgðartryggingu. Allir liðirnir
eru valkvæðir svo hver og einn
getur valið það sem hentar best.“
Tjón á rafhjólinu við hjólreiðar,
eða slys sem sá sem er með trygg-
inguna, maki hans eða börn yfir 12
ára aldur verða fyrir á rafhjólinu,
eru dæmi um tjón sem rafhjóla-
tryggingin bætir, segir Arna. „Einn-
ig bætir tryggingin læknisaðstoð
og endurhæfingu eftir rafhjólaslys
sem og viðgerðir á tönnum sem
brotna eða laskast. Þetta er þó
ekki tæmandi upptalning, heldur
algeng og lýsandi atriði sem gefa
góða mynd af tryggingunni í stuttu
máli.“
Stafrænar lausnir einfalda lífið
Undanfarin ár hefur TM lagt
áherslu á þróun stafrænna lausna
til að einfalda lífið fyrir viðskipta-
vini sína og kemur vefsala TM þar
sterk inn, að sögn Örnu. „Vefsölu
TM er hægt að nálgast á tm.is en
þar getur þú keypt allar tryggingar
með hjálp rafræns ráðgjafa. Ef þú
vilt kaupa rafhjólatryggingu þá
setur þú trygginguna saman eins
og þér hentar með aðstoð rafræns
ráðgjafa og getur séð strax hvað
tryggingin þín kostar. Að því loknu
klárar þú ferlið í gegnum TM-appið
með því að taka myndir af hjólinu
eða því sem þú vilt tryggja. Þetta
er einfalt og tekur örfáar mínútur.
Síðan er auðvelt að nálgast yfirlit
yfir sínar tryggingar og iðgjöld
ásamt því að tilkynna tjón í TM-
appinu.“
Rafhlaðan er tryggð
Arna segir starfsfólk TM oft spurt
hvort rafhlaðan á rafhjólinu sé
tryggð ef henni er stolið og svarið
sé já. Þar sem rafhlaðan er hluti af
rafhjólinu fæst hún bætt ef henni
er stolið. „Einnig er oft spurt hvort
tryggingin gildi líka fyrir börnin
á heimilinu en hún er í gildi fyrir
þau börn á heimilinu sem eru yfir
12 ára aldri.“
Hún segir marga viðskiptavini
TM velta fyrir sér hvort rafhjólin
séu tryggð með heimatrygging-
unni. „Rafmagnshlaupahjól eru
innifalin í heimatryggingum
vegna þjófnaðar og skemmda ef þú
ert með innbúskaskó. Hefðbundin
reiðhjól falla undir heimatrygg-
inguna upp að vissri upphæð. Hins
vegar eru rafhjól yfirleitt talsvert
dýrari en það hámark sem heima-
tryggingin bætir. Þá eru ákveðnir
flokkar rafhjóla skráningarskyld
ökutæki samkvæmt umferðarlög-
um og falla þess vegna utan heima-
tryggingar. Með rafhjólatryggingu
getur þú verið viss um að rafhjólið
sé tryggt, óháð verði og gerð.“
Einnig sé oft spurt hvort slysa-
og ábyrgðartryggingar tengdar
rafhjólum séu innifaldar í heima-
tryggingunni eða hvort kaupa
þurfi þær sérstaklega. „Í Heima-
tryggingu TM2, TM3 og TM4 eru
bæði slysa- og ábyrgðartryggingar
innifaldar. “ n
Nánar upplýsingar á tm.is
Fyrst til að bjóða upp á rafhjólatryggingu
„Með rafhjólatryggingu getur þú verið viss um að rafhjólið sé tryggt óháð
verði og gerð,“ segir Arna Rún Guðlaugsdóttir, sérfræðingur í viðskiptaþróun
hjá Kviku, sem er móðurfélag TM. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sumardagurinn fyrsti var
í gær og það þýðir að nú fer
börnum að fjölga úti við og
þá ekki síst á reiðhjólum.
elin@frettablaðið.is
Huga þarf vel að reiðhjólum
barnanna áður en þau halda út í
sumarið og gæta þess að allt sé í
góðu lagi.
Bremsur eiga að vera í lagi og
sömuleiðis réttur loftþrýstingur
í dekkjum. Þá er gott ráð að fara
með ungum börnum út að hjóla
fyrst og sýna þeim örugga staði til
að vera á. Muna þarf að sýna alltaf
gangandi vegfarendum tillitssemi.
Mörg börn eru trúlega að fá hjól
í fyrsta skipti þessa dagana og þá
þarf að gæta þess að þau æfi sig þar
sem engrar umferðar bifreiða er að
vænta. Foreldrar sem eru að kenna
börnum sínum að hjóla ættu að
velja skólalóðir eða aðra slíka staði
þar sem engin truflun er.
Allir hjólreiðamenn eiga að bera
hjálm á höfði og yngstu börnin
ættu sömuleiðis að vera í fatnaði
sem sést vel. Það er mikið örygg-
isatriði fyrir alla.
Ef hjólað er á gangstétt eða hjóla-
stíg skal hjólreiðamaður vera til
hægri. Ef fleiri en einn hjóla saman
þurfa þeir að mynda einfalda röð
eftir stígnum. Þá skal ganga þannig
frá hjóli þegar stöðvað er að ekki
skapist hætta eða truflun fyrir
aðra. Hjólreiðamaður skal alltaf
víkja fyrir gangandi vegfarendum
á gangstéttum, göngustígum og
göngugötum. n
Öryggi fyrir börnin
Kenna þarf börnum að hjóla á öruggum stöðum fjarri umferð.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Eftir takmarkanir á ferðalög
um vegna heimsfaraldursins
dreymir nú marga um hjóla
túra utan landsteinanna.
Hér er bent á þrjár frábærar
hjólaleiðir í Evrópu.
thordisg@frettabladid.is
Girona á Spáni
Ef þig fýsir að hjóla í sólinni er
Girona í Katalóníu-héraði á Spáni
alveg málið. Þar hjóla margir af
mestu hjólagörpum heimsins
ásamt því sem hægt er að gera
vel við sig í mat og drykk. Borgin
var eitt sinn heimili hjólakapp-
ans Lance Armstrong og þar
hafði bandaríska hjólalandsliðið
æfingabúðir. Það jók enn á áhuga
hjólafólks sem sækir til Girona
sökum fullkomnar blöndu af
ögrandi brekkum, ómótstæði-
legum strandvegum og sögulegum
áfangastöðum. Girona geymir líka
ofgnótt hjólastíga sem eru full-
komnir fyrir fjallahjólreiðar.
Lombardia á Ítalíu
Lombardia-hérað er á milli Alpa-
fjalla og Pó-dalsins á Norður-
Ítalíu. Þar er landslagið ægifagurt
og einstök upplifun að hefja
hjólatúrinn frá Como-vatni.
Mikilvægasti áfangastaðurinn er
Madonna del Ghisallo, þangað
sem liggur löng og brött brekka og
þar er kapella sem þar til nýlega
hýsti safn til heiðurs hjólreiðum,
en nýtt safn hefur nú verið opnað í
næsta húsi. Í Lombardia er haldin
hjólakeppnin Race of the Falling
Leaves í október og í Madonna del
Ghisallo standa styttur af goð-
sögnum hjólreiða.
Flæmingjaland í Belgíu
Síðast en ekki síst má benda á hér-
aðið Flæmingjaland í Belgíu, sem
sumir kalla mekka allra hjólastaða,
með sínar frægu brekkur, stíga,
vegi og nánast allt sem tengist
hjólreiðum. Þar er hægt að finna
fjölmargar og spennandi hjóla-
leiðir sem leiða hjólafólk á slóðir og
í spor mestu hjólakappa heimsins.
Í Flanders er einnig framleiddur
margur af bestu bjórum veraldar,
sem margir elska að njóta með
frönskum og mæjó. n
Fallegar hjólaleiðir í Evrópu
Evrópa er
undurfögur og
víða hægt að
ferðast um á
hjóli til að njóta
landslags og
menningar, um
leið og reynt er
á sig eftir getu
hvers og eins.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
8 kynningarblað 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURÚT AÐ HJÓLA