Fréttablaðið - 22.04.2022, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Þegar maður er farinn
að skilja yfir langan
tíma hvernig þessi
hljóðheimur á að vera.
Hvaða litir eiga að fara
í hann.
More Than You Know er fyrsta
plata djassdúós Steingríms
Teague og Silvu Þórðardóttur,
sem ákváðu í samkomubanni
að skella sér í upptökur eftir
samspil um árabil. Platan
kemur út á streymisveitum
þann 29. apríl.
ninarichter@frettabladid.is
Djasssöngkonan Silva Þórðardóttir
og Steingrímur Teague, sem gjarnan
er kenndur við Moses Hightower,
hafa leitt saman hesta sína í ljúfri
djassplötu sem kemur út í lok
mánaðarins. Platan dregur nafn
sitt af einu laganna, More Than You
Know, sem er eitt af sjö djasslögum
sem þau útsetja með sínu nefi.
Var lítill í sér í djassinum
Steingrímur segir að þau hafi spilað
saman lengi áður en að því kom.
„Við höfðum spilað saman á Bryggj-
unni til dæmis, og á alls konar tæki-
færisviðburðum. Svo þegar það var
ekki lengur hægt, út af svolitlu,
ákváðum við að slá til.“
Hann segist hafa komið að djass-
inum frekar lítill í sér. „Ég hafði
alveg lært eitthvað um djass og
svona, ég hafði verið að spila annað
dót. Mér fannst ég ekkert vera mikill
djasskall og hafði verið frekar lítill
í mér djass-megin.“ Þannig hafi
komið kjörið tækifæri þegar Silva
hafði samband. „Hún er svona djass-
haus. Þá hafði maður tækifæri til að
máta sig aftur við þessa tónlist,“
segir hann.
Steini segir að þegar fólk sé farið
að þekkjast, búið að syngja og spila
saman, sé gaman að gefa sér tíma
í stúdíói og skapa eitthvað saman.
„Þegar maður er farinn að skilja yfir
langan tíma hvernig þessi hljóð-
heimur á að vera. Hvaða litir eiga að
fara í hann,“ segir hann.
Instrúmental hlustun mikilvæg
Steini hefur verið áberandi í
íslenskri tónlistarsenu um árabil,
meðal annars sem hljómborðs-
leikari og annar söngvara Moses
Hightower. Silva Þórðardóttir lærði
djasssöng við FÍH á árunum 2012 til
2016 og segist hafa spilað á kaffihús-
um og börum alla daga síðan. Silva
gaf út plötuna Skylark árið 2019.
„Ég hef hlustað mikið á instrú-
mental djass, sem er mikilvægt
þegar maður er að syngja djasstón-
list,“ segir Silva. „Ég er búin að hlusta
alveg rosalega mikið á tónlist sem
hefur komið mér áfram í söngnum.“
Söngurinn sem saxófónn
Steini segir magnað, þegar þau Silva
byrjuðu að vinna saman, hvernig
hún nálgist sönginn eins og saxó-
fónleikari getur spilað lag. „Hún
nálgaðist þetta bara á sama hátt.
Ekki eingöngu, auðvitað. En hún
kom algjörlega með þann orðaforða
inn í þetta,“ segir hann og bætir við
að þau hafi ekki hlustað mikið á
sungnu útgáfurnar þegar hún var
að kynna sér lögin, heldur frekar
instrúmental útgáfurnar.
„Það er svo að maður verði ekki
fyrir of miklum áhrifum frá þessum
söngkonum sem maður samt elskar
og hlustar mikið á,“ segir Silva. „Það
er svolítið það sem við erum að gera
með plötuna okkar. Þetta er alls
ekki „traditional“.“
Gefa aukahljóðum pláss
Spurður út í hljóðheim verksins
og hlýja áferð á tónlistinni, segir
Steini að það hafi verið meðvituð
ákvörðun.
„Ég held að við höfum heyrt fyrir
okkur að þetta yrði f lott þannig,
með því að skapa mikla nálægð
og hlýju, hafa mikið pláss og leyfa
aukahljóðum að njóta sín. En auð-
vitað verður maður að passa sig að
fara ekki of langt með svoleiðis, það
verður bara tilgerðarlegt. En það var
svo mikið pláss í hljóðmyndinni að
það rímaði bara vel,“ segir hann.
Ragna Kjartansdóttir tók upp
grunnana með þeim, þar sem byggt
var á Wurlitzer-hljómborði og söng
Silvu. Næst hafi píanóið komið
ofan á, sem Steini segir hafa gefið
skemmtilega og skrýtna yfirtóna.
„Við tókum það upp í stúdíóinu
hans Magnúsar Jóhanns Ragnar-
sonar, en hann lánaði okkur píanóið
sitt. Svo mixaði og masteraði Styrm-
ir Hauksson, þannig að þetta var allt
mjög f linkt og þægilegt fólk, sem
eyddi tíma í að skilja hvað maður
var að reyna að gera.“ n
Sjö lög Silvu og Steina
Silva og Steingrímur senda frá sér djassplötu undir lok mánaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fjarðargata 11 · Dalvegur 32b
spadinn.is
PIZZUR
ALLA
L Í K A
KALLA
KONUR
&
ninarichter@frettabladid.is
Bandaríski söngvarinn Khalid
heldur tónleika í Laugardalshöll 4.
maí og er óhætt að ætla að íslenskir
aðdáendur séu orðnir langeygir
eftir sýningunni, en tónleikunum
var frestað í tvígang vegna heims-
faraldurs.
„Ég hlusta mjög mikið á hann
og ég byrjaði nefnilega að hlusta á
hann þegar ég var í útskriftarferð
til Balí 2017, þá var hann nýbúinn
að gefa út plötuna American Teen,“
segir Ragna Sigurðardóttir, læknir
og borgarfulltrúi og einarður Kha-
lid-aðdáandi. „Ég hlustaði mjög
mikið á þessa plötu, bæði á leiðinni
út og þegar ég var á ströndinni og
við sundlaugina á Balí,“ segir hún.
„Khalid minnir mig svo mikið á
þá afslöppun sem átti sér stað þar,“
segir hún og hlær. „Þannig að ég var
með þá plötu á repeat.“
Ragna bjó í níu ár í miðvestrinu
í Wisconsin í Bandaríkjunum, og
segist tengjast Khalid líka í gegnum
nostalgíu sem tengist þeim árum,
en hún flutti aftur til Íslands 15 ára
gömul. „Ég ólst upp í Bandaríkj-
unum þannig að þetta minnir mig
líka á æskuna og unglingsárin þar.
Það er það sem platan hans Amer-
ican Teen snýst um,“ segir hún og
bætir við: „Sem er eitthvað sem fólk
leitar oft að í tónlist, einhvers konar
nostalgíu.
Ég hef ekki sérþekkingu á tónlist
eða hans tónlistarstefnu en alltaf
þegar ég heyri Khalid í útvarpinu
er þetta smá afslöppun og nostalgía
og líka, þetta er svolítið einlægt.
Hann virkar eins og einlægur tón-
listarmaður, sem ég held að margir
sæki í. Að það sé mannleg tenging í
tónlistinni,“ segir Ragna sem ætlar
að skella sér á tónleikana í Höllinni
í byrjun maí. n
Tengir Khalid við Balí og slökun
Khalid spilar í Laugardalshöll í maí.
22 Lífið 22. apríl 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ