Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2016, Blaðsíða 3
3Siglfirðingablaðið
Siglfirðingakaffið verður haldið sunnudaginn 22. maí í Grafarvogskirkju og hefst
kl. 14.00 með messu. Sjálft kaffisamsætið hefst síðan að messu lokinni eða um kl.
15.00.
Prestur í messunni verður séra Vigfús Þór Árnason. Séra Vigfús hefur nú látið af
embætti sóknarprests í Grafarvogskirkju og verður þessi messa síðasta formlega
Siglufjarðarmessan hans.
Honum til aðstoðar verða Siglfirðingarnir Eysteinn Orri Gunnarsson, sjúkrahúsprestur,
Hólmfríður Ólafsdóttir, djákni og Snævar Jón Andrésson guðfræðinemi.
Ræðumaður dagsins verður athafnamaðurinn Róbert Guðfinnsson og um
tónlistarflutning sér tenórinn Hlöðver Sigurðsson.
Árgangar 1956, 1966, 1976, 1986 verða félaginu innan handar við undirbúning og
bakstur. Samt sem áður hvetjum við fólk sem getur og vill, til að koma endilega með
kökur og annað bakkelsi. Tekið er á móti veitingum frá kl. 11 í Grafarvogskirkju.
Siglfirðingakaffið
22. maí 2016