Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2016, Qupperneq 9

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2016, Qupperneq 9
9Siglfirðingablaðið sem við bjuggum þangað til núna í desember þegar við fluttum aftur til Kristianstad. Þetta er sannkallað flökkulíf sem maður lifir og maður veit aldrei hvert leiðin liggur næst. Sannkallað ævintýri og maður kemur vonandi heim einn daginn nokkrum tungumálum ríkari. Lífið og tilveran Við fjölskyldan höfum það alveg ótrúlega gott hér í Svíþjóð og erum miklir aðdáendur Svía og Svíþjóðar. Hér í Kristianstad búa margir Íslendingar og til að toppa allt var Bjarni Mark bróðir minn að flytja hingað líka og ætlar að spila með fótboltaliði bæjarins. Ég er einmitt sjúkraþjálfari hjá fótboltaliðinu sem heitir því skemmtilega nafni KFC, en ég vinn einnig á stofu hérna í bænum. Óli spilar svo handbolta með IFK Kristianstad en handboltaliðið er einmitt stærsta áhugamál allra bæjarbúa og hér er slegist um alla 5000 miðana sem eru í boði á hvern leik. Allir mæta í appelsínugulu svo stemningin er alveg ótrúleg. Það er ákveðin upplifun að mæta á leiki hér og ég hef ekki upplifað svona stemningu áður á handboltaleik.Ólína er svo byrjuð í fjórða leikskólanum með þriðja tungumálið, og hún er aðeins 3ja ára! Sem betur fer eru börn fljót að tileinka sér nýja hluti og þurfa oft ekki tungumálið til að eiga samskipti. Núna svarar hún á þýsku þegar hún er ávörpuð á sænsku. Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á íslenskuna hjá henni og finnst mikilvægt að hún nái góðum tökum á henni, enda er alltaf planið að koma “heim” einn daginn. Framtíðarplön Eins og staðan er núna erum við ekki á heimleið í bráð og ef allt gengur vel og heilsan er í lagi gætum við alveg átt 10 ár eftir erlendis. Planið núna er að vera í Svíþjóð í allavega eitt ár í viðbót, ef ekki tvö, en maður veit reyndar aldrei í þessum handboltaheimi. Okkur líður mjög vel hér og í raun langar okkur ekki heim strax. Það er ótrúlega þroskandi og skemmtilegt að prófa að búa erlendis, kynnast öðruvísi menningu og læra ný tungumál. Auðvitað saknar maður samt fjölskyldunnar og vinanna. Ég þakka bara fyrir nútímasamskiptatækni og hvað foreldrar mínir eru duglegir að heimsækja okkur. Heim – í fjörðinn fagra Ég gæti alveg hugsað mér að flytja til Siglufjarðar og sérstaklega þegar æskuvinirnir eru að flykkjast aftur heim í fjörðinn fagra. Ég myndi alveg vilja að börnin mín upplifðu að alast upp á svona stað, en ætli þau verði ekki bara send í sveit til ömmu og afa! Mér þykir alltaf vænt um Siglufjörð og mér finnst ekkert betra en að koma heim til mömmu og pabba í frí. Margir úr stórfjölskyldunni, amma og afi, búa líka ennþá á Siglufirði og margar af æskuvinkonunum eru fluttar heim aftur svo það gerir þetta ennþá betra. Það hefur hjálpað mér í gegnum lífið, bæði í skóla og vinnu, að hafa alist upp við frelsið og sjálfstæðið sem maður hafði sem barn. Maður lærði líka að vinna og að vera dugleg enda hef ég oft heyrt að fólk utan af landi er eftirsótt í vinnu. Uppbyggingin sem hefur verið á Siglufirði síðustu ár er alveg frábær og gleður mig mjög að fylgjast með þessari þróun. Ég segi stolt frá heimabænum mínum hvar sem ég er og hvet alla til þess að heimsækja fallegasta stað í heimi. Ég get líka sagt það að ég er stoltur Siglfirðingur og vinir mínir gera oft grín að því hvað ég er með mikið af myndum af Siglufirði uppi á vegg hjá mér. Það þarf náttúrulega ekki að taka það fram, við komum jú frá nafla alheimsins!

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.