Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2016, Side 10

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maj 2016, Side 10
10 Siglfirðingablaðið Þú varst á Hafliða SI2 á námsárunum þínum. Hvernig kom það til og af hverju Siglufjörður? Mig vantaði sumarvinnu árið 1968. Þá var kreppa og lítið um vinnu. Ég heyrði auglýsingu í útvarpinu, að það vantaði vanan netamann á Hafliða SI-2 og sótti um starfið og fékk það. Flaug svo norður daginn eftir. Var á togaranum fram á haust og fór þá á Narfa RE. Það var oft glatt á hjalla, þegar í land var komið og ástand einstakra áhafnarmeðlima var oft skrautlegt, þegar farið var aftur á sjóinn. Ég kynntist ekki mikið af fólki, en fór þó einu sinni í heimsókn í Rauðu Mylluna, sem var upplifun út af fyrir sig. Aðdragandi þess að þú tókst að þér starf bæjarstjóra Fjallabyggðar? Það var hringt í mig að morgni snemma í janúar í fyrra og mér boðið starfið. Ég hitti síðan oddvita meirihlutans um kvöldið og svaraði játandi daginn eftir. Hvernig líkar þér veran og viðmótið? Mér líkar mjög vel í Fjallabyggð, enda uppalinn dreifbýlismaður úr Fljótshlíðinni. Okkur hjónum hefur verið vel tekið og höfum yfir engu að kvarta í þeim efnum. Hver eru að þínu mati brýnustu verkefni í Fjallabyggð og hvað ber að varast? Brýnustu verkefni í Fjallabyggð eru: a) Holræsaveitan. Ástandið í þeim málum er ekki gott, sérstaklega á Siglufirði. Hér er matvælaframleiðsla, líftæknifyrirtæki, ferðamennska o.fl., þannig að þessir hlutir verða að vera í lagi. Ekki er gott að fá persónueiningarnar fljótandi inn í hafnirnar. Við gerðum fjögurra ára plan í fyrra og þar er stefnt að því að öllum útrásum verði komið í viðunandi horf árið 2018 fyrir báða byggðarkjarnana. Þá þarf að endurnýja holræsalagnir, sérstaklega á Eyrinni á Siglufirði. Ástand lagna í Ólafsfirði er mun betra. b) Endurnýjun slitlags á götur bæjarfélagsins Ástand þeirra er frekar bágborið. Reiknað er með, að það verkefni verði langt komið haustið 2018. c) Skólar Nýlokið er uppbyggingu grunnskólanna og verið er að byggja við leikskólann Leikskála á Siglufirði, en fjölgun hefur orðið í fjölda barna á leikskólaaldri í bæjarfélaginu, sem er gleðiefni. d) Skólalóðir Ástand lóða bæði á leik- og grunnskólum í bæjarfélaginu er ekki gott. Verið er að endurhanna lóðirnar og áætlað að hefja framkvæmdir á næsta ári og ljúka verkefninu 2019. e) Fjallabyggðarhafnir Verið er að endurnýja bæjarbryggjuna á Siglufirði og því verkefni lýkur 2017. Ástand hafnarkantsins var vægast sagt mjög bágborið og hann raunar að hruni kominn. Þetta er gífurlega stórt verkefni á okkar mælikvarða, eða um 500 mkr. og hlutur Fjallabyggðar er 120-130 mkr. Framkvæmdum verður lokið snemmsumars á næsta ári. f) Rekstur Rekstur Fjallabyggðar er og hefur verið í góðu lagi. Mikilvægt er að halda áfram sama kúrsi. Lítið sem ekkert verður framkvæmt ef lítill rekstrarafgangur er til staðar. Framtíðaráformin? Framtíðaráform mín eru klár til vorsins 2018, en ég var ráðinn bæjarstjóri til þess tíma. Eftir það veit maður ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér. Samvinnan við Róbert og Rauðku? Samvinnan milli bæjarfélagsins og Rauðku er gott. Það er náttúrulega hvalreki fyrir þetta samfélag að Róbert Guðfinnsson skuli vera Hafnarframkvæmdir fyrir um 500 milljónir -spjallað við Gunnar Birgisson bæjarstjóra Fjallabyggðar

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.