Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2016, Blaðsíða 21

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni - maí 2016, Blaðsíða 21
21Siglfirðingablaðið hann sína fyrstu ræðu á íslensku aðeins fimm vikum eftir að hann kom til landsins. Hann á eflaust mestan þátt í að hreyfingin festi rætur hérlendis, en hún var formlega stofnuð í Reykjavík árið 1906 og er því 110 ára í ár. Olav Johan Olsen sem tók við af David Östlund fæddist í Noregi, en hafði ungur haldið til Vesturheims og numið þar guðfræði. Hann kom til Íslands ásamt konu sinni Aline Josephine árið 1911 með farþegaskipinu Vestu. Olsen varð síðan öflugur forstöðumaður Kirkju sjöunda-dags aðventista allt fram til ársins 1947. Hann fór víða um land og stóð fyrir stofnun safnaða í Keflavík, Bolungarvík, Vestmannaeyjum, Siglufirði, Akureyri og á Fáskrúðsfirði. Kirkja byggð á Siglufirði. Olav Johan Olsen mun hafa komið til Siglufjarðar um haustið eða snemma vetrar árið 1928 í þeim tilgangi að stofna þar söfnuð og stóð fyrir fyrirlestrum veturinn 1928-29. Honum mun hafa orðið sæmilega ágengt og var söfnuður Sjöunda-dags aðventista á Siglufirði formlega stofnaður á árinu 1929. Ekki er mér kunnugt um hve fjölmennur hann varð, líklega einhverjir tugir þegar mest varð. Um sumarið 1929 byggði Olsen ásamt Snorra Mikaelssyni húsasmið og öðrum safnaðarmeðlimum lítið samkomuhús við Hverfisgötuna, en fyrsti safnaðarformaðurinn á Siglufirði hét Friðrik Sveinsson. Í bæjarblaðinu Siglfirðingi frá 16. febr. 1929 birtist eftirfarandi frétt: „Trúarhreifing hefir um skeið verið meiri hjer í bænum en venjulega. Olsen aðventistaprjedikari hefir haldið fyrirlestra öðru hvoru í kvenfjelagshúsinu. Hafa fyrirlestrar Olsens verið allvel sóttir, og mun nú ekki standa á öðru en skírnarathöfninni til þess, að söfnuður aðventista myndist hjer. — Hjálpræðisherinn hefir haldið samkomur þessa viku undir stjórn Árna Jóhannessonar og knúið fólk til bæna, og loks var hjer í gær eitthvað af götuprjedikurum, sem leituðust við að reka oss, þverbrotna siglfirska syndara að fótskór meistarans með hljóðum og hálf sóðalegu orðbragði. — Margar eru leiðirnar þótt markið sje eitt“. Guðshúsið uppi á Brekkunni varð ein af útstöðvunum, en í höfuðstaðnum var allt mun stærra í sniðum. Þar reistu Aðventistar sér kirkju við Ingólfsstræti sem var vígð í janúar 1926, rúmaði 600 manns og kostaði stórfé, eða á annað hundrað þúsund krónur á þeim tíma. Mínar heimildir herma að Hólmkell Jónasson verkamaður (1893-1955) og Jósefína Hólmfríður Björnsdóttir húsfrú (1894-1981) hafi haft einhvers konar umsjón með Aðventistakirkjunni á Siglufirði síðustu árin sem einhver starfsemi var þar. Þau bjuggu þá í næsta nágrenni við hana, eða að Hverfisgötu 12. Hólmkell var bróðir Björns Jónassonar „keyrara“ sem var faðir þeirra Ásgeirs og Þórhalls í Versló svo og Jónasar Björns. Hann var einnig bróðir Garðars, eða Gæa „gamla“ sem var svo faðir Óskars Garðars sem margir muna eflaust enn eftir. Ég spurði Siglfirðinginn Erling Snorrason, sem er sonur Snorra Mikaelssonar smiðs, um litla samkomuhúsið að Hverfisgötu 10. „Ég er fæddur og uppalinn að Aðalgötu 13 sem var eitt fyrsta steinsteypta íbúðarhúsið á Siglufirði, er mér sagt. Foreldrar mínir voru aðventistar, Snorri Mikaelsson, trésmiður, og Cecilie Mikaelsson (norsk), nuddkona. Við fjölskyldan, ásamt fleirum, fórum í kirkju á laugardagsmorgnum í Aðventkirkjuna við Hverfisgötuna“. Erling er í dag formaður Aðventkirkjunnar á Íslandi. Kirkjan fær nýtt hlutverk. Næstu 20 árin sótti söfnuður Sjöunda-dags Aðventista á Siglufirði kirkju sína samviskusamlega, en um 1950 fór ýmislegt að breytast til hins verra í Klondike norðursins. Síldin sem allt hafði snúist um varð enn hverfulli en áður, mætti jafnvel ekki á miðin þegar hennar var vænst og ævintýrið mikla hafði þarna náð hámarki sínu. Líklega varð íbúafjöldinn mestur á Siglufirði árið 1948 þegar hann fór eitthvað yfir 3.100 og stórir árgangar, eða í kring um hundrað börn fæddust

x

Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni
https://timarit.is/publication/627

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.