Fréttablaðið - 14.06.2022, Síða 28
A F S L ÁT T U R
20%
STILL ANLEGIR
DAGAR
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
SETTU ÞIG Í STELLINGAR
FYRIR BETRI SVEFN
MEÐ ÞVÍ EINU AÐ SNERTA TAKKA GETUR ÞÚ STILLT
RÚMIÐ Í HVAÐA STELLINGU SEM ÞÉR HENTAR
Splendid Royal heilsudýnan frá Serta er
pokagormadýna skipt upp í fimm mismunandi
svæði. Gormakerfið er með þéttari stuðning við bak
og mjaðmasvæði en mýkri við axlir. Þannig tryggir
þú rétta svefnstellingu hver sem svefnstaða þín er
og hjálpar þér að ná dýpri og betri svefni. Hægt er
að sérsníða rúmið eftir þínum þörfum; velja um þrjá
mismunandi stífleika sem og fjórar mismunandi
toppdýnur. Áklæðið utan um dýnuna er mjúkt og
slitsterkt, ofnæmisfrítt og andar vel.
Serta Splendid stillanlegt heilsurúm með Ocean gafli
og HR toppi. 2x90x200 cm. Fullt verð: 679.900 kr.
Tilboð 543.920 kr.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Venju samkvæmt halda
Íslendingar þjóðhátíðardag-
inn hátíðlegan á afmælisdegi
frelsishetjunnar Jóns Sigurðs-
sonar, 17. júní, sem að þessu
sinni ber upp á föstudaginn.
Það er því ekki seinna vænna
að kippa sér í frelsisgírinn
og til þess eru þessar fjórar
frelsisbaráttu-bíómyndir
gráupplagðar.
toti@frettabladid.is
Sjálfsagt er ekkert mikilvægara
þeim þjóðum sem þess njóta en
sjálfstæðið, sem er síður en svo
sjálfsagður munaður, enda geyma
bæði kvikmynda- og mannkyns-
sagan ótal dramatísk og blóði drifin
dæmi um hversu langt fólk er tilbúið
til þess að ganga þegar frelsið og
grundvallarmannréttindi eru í húfi.
Frelsið sem þjóðin fagnar með
fjallkonuræðum, gasblöðrum með
amerískum ofurhetjum og lúðra-
blæstri á föstudaginn fékkst að
vísu með lágmarks blóðsúthell-
ingum, skriffinnsku og pólitískum
kjafta vaðli og einmitt þess vegna er
landanum hollt og gott að rifja upp
hversu margar þjóðir hafa keypt
sjálfstæði sitt miklum mun dýrara
verði. n
Hæ, hó og jibbíjei!
Það var lítill hátíðarbragur yfir flugeldunum í aðdraganda þjóðhátíðardags allra landa í Independence Day.
Gandhi (1982)
Sigur hans breytti heiminum að eilífu.
Leikstjórinn Richard Attenborough, bróðir
dýravinarins Davids, kvikmyndaði ævisögu ind-
versku frelsishetjunnar Mahatma Gandhi í þá
daga þegar stórmyndir voru alvöru STÓR myndir.
Ben Kingsley hlaut Óskarsverðlaun og heims-
frægð fyrir túlkun sína á lögfræðingnum sem
skráði nafn sitt á spjöld sögunnar þegar hann
leiddi andóf Indverja gegn ofríki bresku ný-
lendukúgaranna.
Gandhi hlaut á sínum tíma átta Óskarsverð-
laun en auk besta leikarans var hún valin besta
myndin, Attenborough besti leikstjórinn og
myndin var verðlaunuð fyrir besta frumsamda
handritið, kvikmyndatökuna, listrænu stjórnun-
ina, bestu búningana og klippinguna.
Independence Day (1996)
Við höfum alltaf trúað því að við værum ekki ein.
Þann 4. júlí munum við óska þess að svo væri.
Geimverur með yfirburða tækni og einarðan
drottnunarvilja ráðast á jörðina og eru meira að
segja ákafari en mannkyn í því að eyða henni
og öllu lífi sem þar þrífst. Andspænis ofureflinu
reynist viljinn til að lifa af vera öflugasta vopn
okkar í varnarbaráttunni sem að sjálfsögðu
hefst fyrir alvöru, undir stjórn forseta Banda-
ríkjanna, á þjóðhátíðardegi þeirra, 4. júlí.
Engum sögum fer hins vegar af því hvernig því
hættuspili hefði lokið ef 17. júní hefði orðið fyrir
valinu til gagnárásar. Þjóðhátíðardagur Banda-
ríkjanna varð hins vegar í kjölfarið sjálfstæðis-
dagur gervallrar heimsbyggðarinnar.
Braveheart (1995)
Saga manns með frjálsa sál … og hugrekki til þess
að fylgja henni.
Skoski vígamaðurinn William Wallace leiðir
landa sína blámálaða og pilsklædda í uppreisn
til þess að frelsa fósturjörðina undan oki Ját-
varðs I Englandskonungs. Ekki hafði hann þó
alveg erindi sem erfiði og skutilsveinar konungs
enduðu með að rekja úr honum garnirnar bók-
staflega. Frelsisandinn lifði þó hetjuna sem Mel
Gibson lék en hann leikstýrði einnig.
Upprunalega lét þulur þau orð falla í lok
myndarinnar að þrátt fyrir örlög Wallace hafi
Skotar unnið frelsi sitt … að eilífu. Þetta þótti
þó ekki alveg standast skoðun og Sean Con-
nery hefði seint kvittað undir þessa yfirlýsingu,
þannig að í síðari útgáfum af myndinni hefur „...
að eilífu“ verið látið niður falla.
Michael Collins (1996)
Írland, 1916. Draumar hans vöktu von. Orð hans
vöktu ástríðu. Hugrekki hans mótaði örlög
þjóðar.
Skammt undan Skotlandi, að vísu löngu síðar,
hóf írski uppreisnarmaðurinn Michael Collins
upp raust sína og ofbeldisfullan skæruhernað
gegn oki, þið megið geta einu sinni. Jú, Breta.
Írski leikstjórinn Neil Jordan, sem áður hafði
gert garðinn frægan með Mona Lisa, The Crying
Game og Interview with the Vampire, tefldi
landa sínum, Liam Neeson, áður en hann tók við
harðhausakeflinu af Bruce Willis, fram í hlutverki
Collins og hlutu báðir nokkra frægð fyrir.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
16 Lífið 14. júní 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 14. júní 2022 ÞRIÐJUDAGUR