Fréttablaðið - 14.06.2022, Page 32
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Kristbjargar
Þórisdóttur
n Bakþankar
„Hvers virði er allt heimsins prjál
ef það er enginn hér sem stendur
kyrr er aðrir hverfa á braut. Sem
vill þér jafnan vel og deilir með
þér gleði og sorg þá áttu minna
en ekki neitt ef þú átt engan vin.“
Þennan fallega texta ritaði Ólafur
Haukur Símonarson sem sunginn
er við lag Gunnars Þórðarsonar,
Vetrarsól.
Þetta lag hljómaði innra með
mér eftir að hafa kvatt tvær af
mínum bestu vinkonum eftir
góða samveru. Fjölskylda, heilsa
og vinátta eru stoðir þess að
þrífast vel. Góður vinur veitir þér
athygli, sýnir þér ást, er tilbúinn
að grípa þig þegar þú hefur misst
f lugið, situr með þér, klífur með
þér fjallið eða hleypur yfir mark-
línuna með þér. Góður vinur er sá
sem deilir með þér gleðistundum,
styður þig í sorg, lánar þér dóm-
greind og er með þér í lífsins ólgu-
sjó, líka þegar þú ert berskjölduð.
Í mínum störfum sem klínískur
sálfræðingur tala ég of oft við
fólk sem er einmana og skortir
vini eða nær litlum tengslum
við annað fólk. Einmanaleiki er
vondur förunautur og getur leitt
til, ýtt undir eða viðhaldið þung-
lyndi.
Alvarleg geðlægð er að mati
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unarinnar (WHO) talin helsta
ástæða hömlunar (disability) í
heiminum. Því er spáð að 2030
muni það verða kostnaðarsam-
asti sjúkdómur tekjuhárra ríkja.
Verkefni okkar allra er meðal
annars að sporna við einmana-
leika. Jafnframt að sinna forvörn-
um og meðferð gegn þunglyndi
og öðrum tilfinningavanda. Hvert
og eitt okkar fær eina ferð um
lífsins veg. Ég er þakklát fyrir þau
sem ég fæ að ferðast samhliða.
Takk. n
Vinátta
FRÍTT
ALLAN HRINGINN
KAFFI
G E R I Ð G Æ Ð A - O G V E R Ð S A M A N B U R Ð
STILLANLEG
HJÓNARÚM
MEÐ BODYPRINT DÝNU
PANDORA
STILLANLEGUR
HÆGINDASTÓLL
VANDAÐAR
SÆNGUR OG
KODDAR Í
ÚRVALI
EITT MESTA
ÚRVAL AF
HEILSUDÝNUM
Á LANDINU
ÚRVAL AF
VÖNDUÐUM
HEILSURÚMUM
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS
ENGJATEIGI 17-19,
REYKJAVÍK
S:581 2233
BALDURSNESI 6,
AKUREYRI
S: 461 1150
OPIÐ:
VIRKA DAGA.......KL. 10:00 -18:00
LAUGARDAGA....KL. 12:00 - 16:00
UMBOÐSAÐILAR:
HÚSGAGNAVAL, HÖFN Í HF.
BARA SNILLD, EGILSSTAÐIR
Svefn heilsa&
VERSLANIR: