Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 40

Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 40
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Torg ehf. DREIFING Póstdreifing ehf. dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025 Kolbeins Marteinssonar n Bakþankar Sigraðu innkaupin fyrir útileguna MARKAÐS- DAGAR SUMAR afsláttur af völdum vörum 25-50% 25% afsláttur af gagnvarinni furu Skoðaðu allt úrvalið af pallaefni hér Skannaðu kóðann Kláraðu pallinnnúna! 25% afsláttur af girðingaeiningum 25% afsláttur af timbur- blómakössum Skannaðu kóðann og skoðaðu tilboðin á byko.is Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Allt fyrir veisluna Skreytingar Borðbúnaður Búningar Tækjaleiga Til er kenning sem segir að við verðum aðeins ástfangin af þremur manneskjum á ævinni. Fyrsta ástin. Þetta ástarsamband á sér oftast stað þegar vð erum ung. Oft enda slík sambönd út af ein- hverju smáræði eða vegna þess að einstaklingarnir vaxa sitt í hvora áttina. Þegar við lítum til baka á þessa fyrstu ást gæti jafnvel læðst sú hugmynd að manni að kannski hafi þetta jafnvel ekki verið ástarsam- band. En á þessum tímapunkti var þetta ást eins og við héldum að ást væri, saklaus og reynslulaus. Síðan er það ást númer tvö. Sú erfiða. Hér verðum við særð og upp- lifum oft mikla ástarsorg. Tilgangur þessa ástarsambands er að kenna og þroska okkur, gera okkur sterk- ari. Þetta samband getur falið í sér lygar, virðingarleysi, óheiðarleika, sársauka, svik og haft slæm áhrif á líf okkar til lengri tíma. En það er hér sem við vöxum og áttum okkur á því hvað það er sem við viljum og viljum ekki. Og kannski það mikil- vægasta, þá lærum við hér muninn á slæmum og góðum maka. Síðan er það þriðja ástin. Oft kemur þessi ást úr óvæntri átt og án þess að við leitum að henni, hún kemur til okkar fyrirhafnarlaust. Hlutirnir verða áreynslulausir og grundvallast af sterkum tilfinn- ingum. Þriðja ástin er líka oft ólík þeim týpum sem við höfum laðast að áður. En sökum fyrri reynslu þá vitum við hvað við viljum og hvað ekki. Hér er maki sem við horfum í augun á og við sjáum fyrir okkur að giftast og stofna með fjölskyldu. Ef þú býrð svo vel að eiga maka sem þú veist að þú vilt eyða með ævinni, skaltu láta maka þinn vita af því strax í dag og ræktaðu með þér þakklæti. Síðan máttu muna að allt á sér tilgang hér í þessu lífi, líka fyrrverandi makar. n Þrjár ástir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.