Fréttablaðið - 21.07.2022, Page 14
Amanda spilaði aðeins
rúmar tíu mínútur
fyrir Ísland á Evrópu-
mótinu en gat á þeim
mínútum sýnt snilli
sína.
Sveindís er nú þegar
meðal bestu knatt-
spyrnukvenna Íslands.
Þrátt fyrir ungan aldur
er Alexandra marg-
reyndur leikmaður
sem spilaði sinn fyrsta
landsleik aðeins 17 ára.
Cecilía er nýbúin að
skrifa undir langtíma-
samning við þýska
stórveldið Bayern
München.
Agla átti flotta spretti
á EM í mánuðinum
og fór út í atvinnu-
mennsku fyrr á árinu.
Leiða má líkur að því
að Áslaug fylli upp í
skarðið í bakvarðar-
stöðunni sem Hallbera
Guðný skilur eftir sig.
14 Íþróttir 21. júlí 2022 FIMMTUDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 21. júlí 2022 FIMMTUDAGUR
Íslenska landsliðið í knattspyrnu komst því
miður ekki upp úr riðli sínum á Evrópumótinu
á Englandi þrátt fyrir að hafa ekki tapað leik
á mótinu. Svekkelsið var mikið en þó er hægt
að finna ljósa punkta í frammistöðu liðsins
á mótinu og ljóst að efniviðurinn til frekari
afreka og þátttöku á stórmótum er til staðar.
Hér verður varpað ljósi á nokkra framtíðar-
leikmenn íslenska landsliðsins sem tóku þátt á
mótinu, listinn er ekki tæmandi.
Framtíðarstjörnur
Íslands
Aron
Guðmundsson
aron
@frettabladid.is
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
20 ára miðjumaður
Bayern München
Karólína spilaði stórt hlutverk með landsliðinu á EM, byrjaði alla leiki
liðsins og spilaði bróðurpart þeirra. Hún var með bestu leikmönnum
íslenska landsliðsins á mótinu og kom mörgum skemmtilega á óvart.
Karólína mun með meiri reynslu aðeins vaxa sem leikmaður og
verður stór hluti af íslenska landsliðinu á komandi árum.
Amanda Jacobsen
Andradóttir
18 ára miðjumaður
Kristianstad
Amanda spilaði aðeins rúmar
tíu mínútur fyrir Ísland á Evr-
ópumótinu en gat á þeim mín-
útum sýnt snilli sína. Þarna er
á ferðinni virkilega spennandi
miðjumaður sem mun án efa
leika stórt hlutverk í íslenska
landsliðinu í framtíðinni.
Sveindís Jane Jónsdóttir
21 árs sóknarmaður
Vfl. Wolfsburg
Sveindís er nú þegar meðal
bestu knattspyrnukvenna Ís-
lands og hefur látið til sín taka
á stærsta sviði Evrópuboltans,
Meistaradeild Evrópu. Sveindís
verður algjör lykilleikmaður í
árangri íslenska kvennalands-
liðsins næstu árin.
Alexandra Jóhannsdóttir
22 ára miðjumaður
Eintracht Frankfurt
Tók þátt í tveimur leikjum Ís-
lands á EM og hefur verið reglu-
legur þátttakandi í leikjum
liðsins í undankeppni HM. Þrátt
fyrir ungan aldur er Alexandra
margreyndur leikmaður sem
spilaði sinn fyrsta landsleik
aðeins 17 ára gömul. Hún hefur
meðal annars orðið Íslands-
meistari í tvígang og bikar-
meistari hér á landi einu sinni.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
18 ára markvörður
Bayern München
Cecilía Rán meiddist því miður
skömmu fyrir EM en ljóst er að
þarna er á ferð gífurlega spenn-
andi og efnilegur markvörður
sem hefur fengið smjörþefinn
af átökunum með íslenska
landsliðinu í undankeppni HM.
Cecilía er nýbúin að skrifa undir
langtímasamning við þýska
stórveldið Bayern München.
Agla María Albertsdóttir
23 ára kantmaður
Häcken
Hefur leikið stórt hlutverk í
Íslenska landsliðinu og var
meðal annars hluti af íslenska
landsliðinu á EM 2017 þá
aðeins 18 ára gömul. Agla átti
flotta spretti á EM í mánuðin-
um og fór út í atvinnumennsku
fyrr á árinu.
Áslaug Munda
Gunnlaugsdóttir
21 árs bakvörður
Breiðabliki
Virkilega öflugur bakvörður
sem steig sín fyrstu skref á
stórmóti með íslenska lands-
liðinu á EM. Leiða má líkur að
því að Áslaug fylli upp í skarðið
í bakvarðarstöðunni sem
Hallbera Guðný skilur eftir sig,
en sú síðarnefnda hefur lagt
landsliðsskóna á hilluna.
10-60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAN ER Í
FULLUM GANGI