Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 1
1 5 1 . T Ö L U B L A Ð 2 2 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s M I Ð V I K U D A G U R 2 7 . J Ú L Í 2 0 2 2
Túrbó-Tinna
heldur reif
Helgi Björns
elskar streymi
Lífið ➤ 22 Lífið ➤ 24
NÚ ER TÍMI FYRIR
SUMMER SALE
Er ferðavagninn
þinn tryggður?
Hugsum í framtíð
HÚSNÆÐISMÁL Engin þeirra íbúða
sem eru til sölu á höfuðborgarsvæð-
inu um þessar mundir fellur undir
skilyrði hlutdeildarlána. Formaður
Samtaka leigjenda segir úrræðið
ekki virka og að stjórnvöldum hafi
mistekist að hjálpa tekjulágu fólki
að eignast húsnæði.
„Hreyfing á fjölskyldufólki út af
leigumarkaði er um eitt prósent.
Þetta nær ekki til þeirra. Það eru
meiri líkur á að læknast af illvígum
sjúkdómi en að komast út af leigu-
markaði. Staðan hefur ekkert breyst
með tilkomu þessa úrræðis,“ segir
Guðmundur Arngrímsson. SJÁ SÍÐU 11
Engar íbúðir fyrir
tekjulága í boði
Fimm daga stæði fyrir einka-
flugvél á Reykjavíkurflugvelli
kostar minna en stæði fyrir
bíl í bílakjallara í miðbænum.
Þetta sýna útreikningar sem
Isavia hefur staðfest.
ragnarjon@frettabladid.is
SAMGÖNGUR Í ljósi þess fjölda einka-
þota sem lenda á Reykjavíkurflug-
velli nú í sumar tók Fréttablaðið til
skoðunar þann kostnað sem hlýst
af því að lenda einkaþotu á f lug-
vellinum. Í útreikningum var notuð
gjaldskrá Isavia sem gildir um flug-
velli utan Keflavíkurflugvallar.
Sé Cessna Citation M2 vél tekin
sem dæmi, einkaf lugvél í minni
kantinum, með farrými fyrir sjö
farþega, kostar 35.485 krónur að
leggja slíkri vél á Reykjavíkurflug-
velli í fimm sólarhringa.
Miðað er þá við að flugvélin sé í
hámarksþyngd þegar hún lendir
og því um hámarksgjald fyrir slíka
vél að ræða. Sé um stærri f lugvél
að ræða er kostnaðurinn hærri. Ef
færri farþegar, minna eldsneyti eða
minni farangur er í vélinni myndi
það lækka kostnað við lendinguna
og geymslu þar sem gjaldskrá Isavia
reiknast aðallega út frá þyngd flug-
vélar og fjölda farþega.
Dýrara að leggja bíl en einkaflugvél
Það stefnir í vætusama verslunarmannahelgi, en rigningu er spáð um allt land um komandi helgi. Hitastigið verður almennt í kringum tíu stig, en hlýjast verður yfir landinu á sunnudaginn. Lands-
menn á faraldsfæti ættu því að búa sig undir rigninguna og pakka niður regnfatnaði, eða hreinlega halda sig heima. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Til samanburðar má nefna að
ef bifreið er lagt í bílakjallaranum
undir Hafnartorgi í miðborg Reykja-
víkur er gjaldið 440 krónur fyrir
hvern klukkutíma milli klukkan
8.00 og 20.00 en 210 krónur frá 20.00
til 8.00.
Ef miðað er við að bíllinn standi í
bílakjallaranum í fimm sólarhringa
kostar það 39.000 krónur.
Fréttablaðið bar útreikninga sína
undir Isavia sem staðfesti að þeir
væru réttir.
Fleiri dæmi og nánari útlistun
á gjaldi fyrir einkaþotur á Reykja-
víkurflugvelli má sjá á vef Frétta-
blaðsins, frettabladid.is. n
Justin Bieber hefur eflaust verið
ánægður með góð kjör í Reykjavík.