Fréttablaðið - 27.07.2022, Page 4
Þetta lýsir í mínum
huga einhverju öðru
en kærleiksríkri trú.
Guðrún Karls
Helgudóttir,
sóknarprestur í
Grafarvogskirkju
Regnbogafáninn við Grafar-
vogskirkju hefur orðið fyrir
skemmdarverkum tvisvar á
skömmum tíma. Skemmd-
irnar hafa verið kærðar til
lögreglu. Starfsfólk kirkjunnar
hefur einnig fengið hatursbréf.
thorgrimur@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Krotað var yfir
regnbogafánann á gangstéttinni
fyrir framan Grafarvogskirkju í
annað skipti á þremur dögum á
mánudaginn. Í fyrra skipti var þar
ritað „Antichrist!“ og í hið seinna
„Leviticus 20, 20:13.“ Í bæði skiptin
virðist vera um að ræða hatursskila-
boð gegn stuðningi kirkjunnar við
réttindi hinsegin fólks.
Guðrún Karls Helgudóttir, sókn-
arprestur í Grafarvogskirkju, segir
að skemmdarverkið hafi verið til-
kynnt til lögreglu. „Ég gerði það ekki
eftir fyrra skiptið, þá ákváðum við
að gefa þessu séns. En núna hefur
þetta verið tilkynnt.“
Þegar fáninn var málaður á gang-
stéttina voru viðtökurnar að sögn
Guðrúnar afar jákvæðar. Eftir að
kirkjan birti myndir af skemmdar-
verkinu á Facebook-síðu sinni segir
Guðrún þó að ýmsir hafi lagt orð
í belg með sjónarmið af ýmsum
toga.
„Það hef ur ver ið heilmik il
umræða á Facebook-síðunni þar
sem eru skoðanir í f leiri áttir,“ segir
Guðrún. „Svo hringdi ein í gær og
kvartaði yfir fánanum og fannst
hann alveg ómögulegur. Það eru
aðeins f leiri að koma fram, þau sem
eru ekki ánægð með að kirkjan taki
þessa afstöðu.“
Versið sem vitnað er til í seinna
krotinu er að finna í þriðju Móse-
bók Gamla testamentisins. Í því er
lögð dauðarefsing við kynmökum
milli tveggja karlmanna. Gjarnan
hefur verið vísað til versins til að
mæla gegn réttindum samkyn-
hneigðra á trúarlegum grundvelli
en Guðrún telur það ekki rökrétta
túlkun á kristinni trú.
„Það að taka þetta vers úr sínu
samhengi til að styðja málstað gegn
hinsegin fólki lýsir í mínum huga
einhverju öðru en kærleiksríkri
trú,“ segir Guðrún. „Viðkomandi
hefði alveg eins getað tekið út úr
sama textabálki að það eigi að líf-
láta fólk fyrir að bölva foreldrum
sínum, eða að ef karl sefur hjá konu
á blæðingum eigi að líf láta þau
bæði. Það er ýmis svona boðskapur
í Biblíunni og hann hefur sínar
sögulegu skýringar, en þessi texti
er til kominn um það bil 250 árum
fyrir Krist. Það er talið mjög líklegt
að með þessum textabút hafi verið
að gagnrýna þjóðir þarna í kring þar
sem það viðgekkst að karlar væru að
misnota unga drengi.“
Grafarvogskirkja er ekki eini stað-
urinn á Íslandi þar sem kirkjunnar
fólk hefur orðið fyrir aðkasti vegna
stuðnings síns við réttindi hin-
segin fólks að undanförnu. Pétur G.
Markan biskupsritari og Margrét
Lilja Vilmundardóttir prestur fengu
á föstudaginn nafnlaust hatursbréf
inn um lúguna þar sem þau voru
kölluð „krípí fólk“ með „úrkynjaða
hegðun“.
Guðrún segist ekki vita hvort
hatursbréfið tengist skemmdar-
verkunum við Grafarvogskirkju
beint en segir það vafalaust tengjast
óbeint. „Þetta er af sama meiði, að
fólk er ósátt við að kirkjunnar fólk
styðji réttindi hinsegin fólks. Við
vitum að það er mikið af öfgatrúar-
hópum sem eru á móti hinsegin
fólki. Í mínum huga er þetta ekki úr
kristninni komið. Þetta snýst frekar
um að pakka hatri í umbúðir trúar.
En hvatinn sé einhver annar en heit
trú.“
Búið er að koma myndavél fyrir
við gangstéttina fyrir framan Graf-
arvogskirkju, þar sem málað hefur
verið yfir krotið. „Ef við finnum út
hver þetta var er viðkomandi hjart-
anlega velkominn í kaffi til okkar,“
segir Guðrún. ■
Kæra skemmdir á regnbogafánanum
Seinna krotið
á regnboga
fánanum við
stéttina fyrir
framan Grafar
vogskirkju.
MYND/AÐSEND
olafur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Gavia Invest ehf., sem
keypti í gær ríflega 16 prósenta hlut
í Sýn hf., setti í gærmorgun fram
kröfu um hluthafafund til að kjósa
félaginu nýja stjórn.
Harkalegt orðalag í tilkynningu
til Kauphallar vekur athygli. Þar
kemur fram að þess sé krafist að
umboð núverandi stjórnar verði
fellt niður og ný stjórn kjörin. Þetta
þykir gefa til kynna að hluthafar
Gavia Invest ætli sér ekki að vera
hlutlausir fjárfestar í Sýn.
Einn viðmælandi Fréttablaðs-
ins telur þessi kaup Gavia Invest
einungis fyrsta leik í stærri f léttu.
Kaupverðið væri hátt, en hlutabréf
í Sýn hafa hækkað um nálega 50
prósent síðasta árið.
Annar viðmælandi segir kaup-
endur greinilega sjá dulið virði í
Sýn og býst við tíðindum eftir kjör
nýrrar stjórnar.
Hann bendir á að Jón Skaftason,
forsvarsmaður Gavia Invest, og Jón
Ásgeir Jóhannesson, stjórnarfor-
maður Skel fjárfestingafélags, séu
nánir samstarfsmenn og forvitni-
legt verði að fylgjast með fram-
haldinu.
Í hópi kaupenda Sýnar eru Jona-
than R. Rubini, sem áður var hlut-
hafi í Nova, og Mark Kroloff, sem
sat í stjórn Nova. Skammt er síðan
greint var frá nánu samstarfi Sýnar
og Nova við uppbyggingu 5G-far-
símanets. ■
Kaup Gavia Invest fyrsti leikur í stærri fléttu
Í hópi kaupenda eru aðilar sem hafa
tengst fjarskiptafyrirtækinu Nova.
ser@frettabladid.is
FERÐAÞJÓNUSTA Fjórfalt meiri
umferð var um Keflavíkurflugvöll í
júní í ár en í sama mánuði á síðasta
ári, að því er fram kemur í nýjum
tölum Hagstofunnar.
Yfir 240 þúsund brottfarir farþega
voru í þeim mánuði samanborið við
ríflega 56 þúsund í fyrra. Af þessum
fjölda fóru rösklega 176 þúsund
útlendingar um völlinn í júní í ár en
ríflega 42 þúsund í júní í fyrra.
Eðli málsins samkvæmt hefur
gistináttum á hótelum líka fjölgað,
en þær voru tæplega 328 þúsund í
maí í vor, sem er gott betur en þre-
falt meira en í sama mánuði í fyrra. ■
Fjölgar í Leifsstöð
Faraldurinn setti svip á síðustu ár.
ser@frettabladid.is
VINNUMARKAÐUR Áttatíu pró-
sentum færri launamenn misstu
atvinnu sína vegna gjaldþrota
fyrirtækja á öðrum ársfjórðungi í
ár miðað við tímabilið apríl til júní
á síðasta ári.
Af tölum Skattsins má augljóslega
sjá viðspyrnu í atvinnulífinu á milli
ára. Nærri fimm hundruð manns
misstu vinnu sína á þessu tímabili í
fyrra, en 101 launamaður í ár.
Samtals voru 28 fyrirtæki, sem
skráð voru í fyrirtækjaskrá Skatts-
ins, tekin til gjaldþrotaskipta í júní
síðastliðnum sem er tæplega 70 pró-
senta fækkun frá júní 2021. ■
Færri missa vinnu
vegna gjaldþrota
Sjá má viðspyrnu í tölum Skattsins.
4 Fréttir 27. júlí 2022 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ